Fleiri fréttir Eldur í togara í Hafnarfirði Allt tiltækt lið slökkviliðsins er á leið í Hafnarfjarðarhöfn þar sem eldur logar í togara. Ekki er vitað að svo komnu hve mikinn eld er um að ræða. 15.7.2010 13:36 Segja Hizbolla koma sér upp mannlegum skjöldum Hizbollah samtökin í Líbanon neita að tjá sig um þær fullyrðingar Ísraela að samtökin séu að koma sér upp vopnabúrum í bæjum og þorpum í suðurhluta landsins. 15.7.2010 13:25 Strangari refsiviðmið vegna kynferðisglæpa Stjórnardeild trúarkenninga í Vatíkaninu hefur frá og með deginum í dag tekið í notkun strangari refsiviðmið á ýmsum sviðum, meðal annars um kynferðisglæpi. 15.7.2010 12:55 Jón Ásgeir ætlar að krefjast kyrrsetningar á eignum Steinunnar Jón Ásgeir Jóhannesson segist hafa selt fasteign í Lundúnum hinn 10. maí vegna skuldauppgjörs við fyrrverandi eiginkonu sína. Þá ætlar hann í persónulegt skaðabótamál á hendur Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar Glitnis banka. Hann ætlar að ganga lengra og krefjast kyrrsetningar á eignum hennar þangað til niðurstaða í skaðabótamálinu liggur fyrir. 15.7.2010 12:15 Fangelsi fyrir árás á Múhameðsteiknara Tveir bræður hafa verið dæmdir til fangelsisvistar í Svíþjóð fyrir að reyna að kveikja í húsi listamannsins Lars Vilks. 15.7.2010 12:11 Vilja nota áfengislása gegn ölvunarakstri Rannsóknarnefnd umferðarslysa vill að skoðaðir veðri kostir þess að innleiða svokallaða áfengislása vegna ökumanna sem aka ítrekað undir áhrifum áfengis. Þá vill Rannsóknarnefndin einnig að heimilt verði að dæma síbrotamenn á þessu sviði til áfengismeðferðar sem hluta af viðurlögum við ölvunarakstri. 15.7.2010 12:05 Kókaínmálið: Lagði 3 milljónir inn á reikning Íslendings á Spáni Einn af sakborningunum í kókaínmálinu staðfesti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hann hefði haft samband við Sverri Þór Gunnarsson á Spáni. Sverrir var á upphafsstigum málsins talinn hafa staðið að kaupum efnisins á Spáni og er eftirlýstur af Europol. 15.7.2010 11:50 Rannsókn á stærsta amfetamínsmygli sögunnar miðar ágætlega Rannsókn á innflutningi tveggja þýskra kvenna á 20 lítrum af amfetamínbasa er enn í fullum gangi og miðar ágætlega, að sögn Jóns H.B. Snorrasonar, aðstoðarlögreglustjóra. Hann segir rannsóknina miða að því að upplýsa um öll atvikin sem hér áttu sér stað, uppruna efnanna og ástæður fyrir flutningi þeirra hingað til lands. Það er allt gert í samvinnu við erlend lögregluyfirvöld og stofnanir. 15.7.2010 11:16 Kókaínmálið: Halda hlífiskildi yfir meintum höfuðpaur Sakborningarnir í kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur halda allir hlífiskildi yfir Davíð Garðarsyni, sem sakaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. Tveir sakborninganna breyttu framburði sínum verulega frá því í skýrslutökum lögreglu og fyrir dómi í dag. 15.7.2010 11:15 Játaði aðild að umfangsmiklum kókaíninnflutningi Jóhannes Mýrdal, einn sakborninganna í svokölluðu Spánarmáli, játaði sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Jóhannesi var gefið að sök að hafa tekið að sér að flytja kókaín til landsins en hann var stöðvaður í Leifsstöð. 15.7.2010 11:03 Stórskemmdu Porsche jeppa Skemmdarvargar unnu milljóna tjón á bílum og vinnuvélum í Vesturborginni í nótt og komust undan. 15.7.2010 10:44 Argentína leyfir hjónabönd samkynhneigðra Argentína er fyrsta land í Suður-Ameríku sem leyfir hjónabönd samkynhneigðra. Öldungadeild þingsins samþykkti lög þar um í gær. 15.7.2010 10:39 Hjálpsama löggan Þegar nágranni kom að tveim piltum sem voru að reyna að brjótast inn í einbýlishús á Austur-Jótlandi síðastliðna nótt lögðu dónarnir á flótta. 15.7.2010 10:03 Um 1200 börn fæddust Alls fæddust 1200 börn á öðrum fjórðungi ársins en 530 einstaklingar létust. Íslendingar voru tæpla 318 þúsund í lok ársfjórðungsins. 15.7.2010 09:12 Stórkostlegar gjaldskrárhækkanir óhjákvæmilegar hjá OR Á seinni hluta síðasta kjörtímabils virðist hafa ríkt þögult þverpólitískt samkomulag í borgarstjórn Reykjavíkur um að ýta vandamálum Orkuveitu Reykjavíkur fram yfir kosningar. Nú er nýr meirihluti í borginni að láta gera úttekt á gríðarlega erfiðri stöðu fyrirtækisins. 15.7.2010 08:00 Danskur fíkniefnahundur fann 100 milljónir í reiðufé Fíkniefnahundur sem lögreglan í Kaupmannahöfn var að þjálfa fann 5 milljónir danskra króna eða ríflega 100 milljónir króna í reiðufé fyrir tilviljun í farangursrými bíls út á Amager. 15.7.2010 07:49 Fjárhagsaðstoð sem lofað var berst ekki til Haítí Flest löndin sem lofuðu að senda fjárhagsaðstoð til Haítí hafa enn ekki borgað krónu af þeim fjármunum. Þetta sýnir könnun sem CNN hefur gert. 15.7.2010 07:46 Stormurinn Conson skilur eftir sig 18 látna á Filippseyjum Að minnsta kosti 18 fórust og 57 er saknað eftir að hitabeltisstormurinn Conson fór yfir Filippseyjar í gærdag. 4.000 manns eru strandaglópar víða á eyjunum eftir storminn. 15.7.2010 07:43 Heilu húsin flutt til og frá á Suðurlandi Einskonar fardagar voru á Suðurlandi í nótt þar sem verið var að flytja heilu húsin til og frá. 15.7.2010 07:41 Álagspróf BP á Mexíkóflóa hafið BP olíufélagið hefur hafið álagsprófun sína á nýju hettuna sem tókst að koma á olíuleiðsluna sem lekur í Mexíkóflóa fyrr í vikunni. 15.7.2010 07:32 Lýbíska flutningaskipið komið til hafnar í Egyptalandi Flutningaskip á vegum lýbísku góðgerðarsamtakanna Gaddafi Foundation er komið til hafnar í Egyptalandi. Þar með tókst skipinu ekki að brjóta hafnarbann Ísraelsmanna en skipinu var í fyrstu siglt til Gaza. 15.7.2010 07:31 Lögreglan leitar að stolnum hraðbát Lögreglan í Árnessýslu leitar að hvítum hraðbáti með Susukí utanborðsmótor, sem stolið var á vagni frá sumarbústað á Mjóanesi við Þingvalalvatn nýverið. 15.7.2010 07:26 Kríuvarpið í Garði ætlar að heppnast óvenju vel í sumar Kríuvarpið í Garði á Reykjanesi virðist ætla að takast óvenju vel í sumar, sem bendir til þess að þar hafi krían nægilegt æti. 15.7.2010 07:22 Segist alls engar eignir hafa flutt á Ingibjörgu 15.7.2010 07:00 Bæjarstjórar misstu af veiði í Elliðaánum Orkuveita Reykjavíkur nýtti ekki veiðileyfi sem frátekin voru fyrir fyrirtækið í Elliðaánum í gær heldur lét leyfin í hendurnar á Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. 15.7.2010 06:30 Skattbyrðin hér á landi er sögð svipuð og í Danmörku Skattbyrði Íslendinga er með því mesta sem gerist í aðildarlöndum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD), samkvæmt útreikningum sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Þetta kemur fram í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að beiðni íslenskra stjórnvalda. 15.7.2010 06:00 Dýrt að leigja bíl á Íslandi yfir hásumarið en ódýrt á veturna Leiga á bíl yfir hásumarið á Íslandi er dýrari en víðast hvar annars staðar. Ástæðan er sú að tekjur bílaleiganna koma nær eingöngu yfir sumarið þegar ferðamenn fjölmenna til landsins. 15.7.2010 04:00 Kópavogur greiðir ekki veitingar Breiðablik sem leikur á móti skoska liðinu Motherwell hér á landi 22. júlí næstkomandi fær veitingahúsareikninga vegna fyrirhugaðra veisluhalda í tengslum við heimsóknina ekki greidda úr bæjarsjóði Kópavogs. 15.7.2010 04:00 Áfram mokveiði í Blöndu Tvö holl sem voru að veiðum í vikunni á neðsta svæðinu í Blöndu veiddu samtals 380 laxa á fjórum dögum. Á þessu svæði er veitt á fjórar stangir. 15.7.2010 03:45 Þjóðgarðurinn fái hótelbætur Álfheiði Ingadóttur, formanni Þingvallanefndar, og Ólafi Erni Haraldssyni þjóðgarðsverði hefur verið falið af nefndinni að ræða við fulltrúa forsætisráðuneytisins um að þjóðgarðurinn fái að ráðstafa bótum sem fást eftir bruna Hótel Valhallar fyrir ári. 15.7.2010 03:30 Flestir trassa að skoða leiksvæði Innan við fimmtungur leiksvæða á leikskólum á Íslandi er skoðaður árlega eins og reglur kveða á um. Slíkri skoðun er ætlað að tryggja öryggi leikvallatækja og yfirborðsefna. 15.7.2010 03:00 Tuttugu og þrír vilja bæjarstjórastól Fjarðabyggðar Nýr listi yfir umsækjendur um bæjarstjórastól Fjarðabyggðar var birtur 13. júlí síðastliðinn. 15.7.2010 03:00 Sumargotssíld er enn sýkt Litlar vísbendingar eru enn um að sýking í íslensku sumargotssíldinni sé í rénun. Þetta er niðurstaða leiðangurs Bjarna Sæmundssonar á hrygningarslóðir síldarinnar. 15.7.2010 02:30 Götuverð á rítalíni hækkar Nýlegar aðgerðir lögreglu til að koma í veg fyrir sölu á rítalíni hafa haft áhrif að mati SÁÁ. Í verðkönnun á rítalíni sem keypt er með ólöglegum hætti kom í ljós að verðið hefur hækkað umtalsvert nýlega. 15.7.2010 01:00 Förðun fyrir stelpur og bílar fyrir stráka Álftanesskóli fer gegn jafnréttislögum með því að bjóða nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk upp á „stelpuval" og „strákaval" sem valgreinar. Jafnréttisstofu hafa borist erindi vegna málsins. Það staðfestir Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Hann segir standa í lögunum að kennsla og námsgögn skuli vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað. 15.7.2010 00:00 50 ára og eldri borga ekki inn á LungA Tíu ára afmælistónleikar LungA-listahátíðarinnar verða haldnir utandyra á Seyðisfirði á laugardagskvöldið. Aðgangseyrir fyrir yngri en fimmtíu ára er 2.000 krónur. Aðrir gestir borga ekkert. 15.7.2010 00:00 Jón Ásgeir fékk lán frá Danmörku fyrir snekkju Lítill danskur banki, með höfuðstöðvar í Skive á Jótlandi, lánaði Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fyrrum forstjóra Baugs, 4,5 milljónir evra til að kaupa lúxussnekkju, segir í frétt hins danska Berlingske Tidende. 14.7.2010 23:15 Ungur ökumaður keyrði á steypumót Ungur ökumaður missti stjórn á bíl og keyrði á steypumót hjá bensínstöðinni Orkunni á Dalvegi rétt í þessu, að sögn sjónarvotts. 14.7.2010 22:08 Sæðisbanki fyrir fallega? Stefnumótasíðan beautifulpeople.com, sem er einungis fyrir fallegt fólk, íhugar að stofna sæðisbanka. Sæðið yrði frá einstaklega myndarlegum karlmönnum. CNN greinir frá. 14.7.2010 21:42 Miðaverð á heimaleik NY Yankees rýkur upp Miðaverð á fyrsta heimaleik hafnaboltaliðsins New York Yankees frá því að eigandi liðsins féll frá á föstudaginn hefur hækkað um 77%. Business Insider greinir frá. 14.7.2010 21:17 Argentínska þingið kýs um hjónaband samkynhneigðra Argentínska þingið mun hefja umræður um hvort lögleiða eigi hjónaband samkynhneigðra þar í landi. 14.7.2010 20:49 Lagði niður nefnd sem átti að endurskoða lög um erlenda fjárfesting Gylfi Magnússon, efnahags og viðskiptaráðherra, lagði í fyrra niður nefnd sem átti að endurskoða lög um erlenda fjárfestingu. Forveri hans skipaði nefndina árið 2007. 14.7.2010 19:00 Sex bankar staðfesta að Iceland átti innistæðurnar Undirrituð skjöl frá sex bönkum sýna að innistæður upp á 38 milljarða króna sem slitastjórn Glitnis taldi að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi ráðið yfir haustið 2008, tilheyrðu bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods. 14.7.2010 18:34 TF-SIF sinnir mengunareftirliti á Mexíkóflóa Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF hélt í morgun til Houma í Louisiana þar sem flugvélin mun næstu fjórar vikur eða til 15. ágúst, sinna mengunareftirliti á Mexíkóflóa fyrir BP- British Petroleum. Bandaríska strandgæslan hefur yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins en TF-SIF leysir af flugvél samgöngustofnunar Kanada, Transport Canada við verkið. Sú flugvél er sömu tegundar og TF-SIF en þær eru báðar útbúnar öflugum hliðarradar „Side-looking airborne radar“ (SLAR) sem er sérhannaður fyrir mengunareftirlit. 14.7.2010 17:50 Verið er að þurrka út stétt leikskólakennara Það er verið að þurrka út stétt leikskólakennara, segir nemi í leikskólakennarafræðum sem er ósáttur við að nú þurfi að sitja fimm ár í háskóla til að teljast fullgildur leikskólakennari. Námslán í fimm ár séu þungur baggi að bera fyrir skammarleg laun. 14.7.2010 19:14 Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í togara í Hafnarfirði Allt tiltækt lið slökkviliðsins er á leið í Hafnarfjarðarhöfn þar sem eldur logar í togara. Ekki er vitað að svo komnu hve mikinn eld er um að ræða. 15.7.2010 13:36
Segja Hizbolla koma sér upp mannlegum skjöldum Hizbollah samtökin í Líbanon neita að tjá sig um þær fullyrðingar Ísraela að samtökin séu að koma sér upp vopnabúrum í bæjum og þorpum í suðurhluta landsins. 15.7.2010 13:25
Strangari refsiviðmið vegna kynferðisglæpa Stjórnardeild trúarkenninga í Vatíkaninu hefur frá og með deginum í dag tekið í notkun strangari refsiviðmið á ýmsum sviðum, meðal annars um kynferðisglæpi. 15.7.2010 12:55
Jón Ásgeir ætlar að krefjast kyrrsetningar á eignum Steinunnar Jón Ásgeir Jóhannesson segist hafa selt fasteign í Lundúnum hinn 10. maí vegna skuldauppgjörs við fyrrverandi eiginkonu sína. Þá ætlar hann í persónulegt skaðabótamál á hendur Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar Glitnis banka. Hann ætlar að ganga lengra og krefjast kyrrsetningar á eignum hennar þangað til niðurstaða í skaðabótamálinu liggur fyrir. 15.7.2010 12:15
Fangelsi fyrir árás á Múhameðsteiknara Tveir bræður hafa verið dæmdir til fangelsisvistar í Svíþjóð fyrir að reyna að kveikja í húsi listamannsins Lars Vilks. 15.7.2010 12:11
Vilja nota áfengislása gegn ölvunarakstri Rannsóknarnefnd umferðarslysa vill að skoðaðir veðri kostir þess að innleiða svokallaða áfengislása vegna ökumanna sem aka ítrekað undir áhrifum áfengis. Þá vill Rannsóknarnefndin einnig að heimilt verði að dæma síbrotamenn á þessu sviði til áfengismeðferðar sem hluta af viðurlögum við ölvunarakstri. 15.7.2010 12:05
Kókaínmálið: Lagði 3 milljónir inn á reikning Íslendings á Spáni Einn af sakborningunum í kókaínmálinu staðfesti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hann hefði haft samband við Sverri Þór Gunnarsson á Spáni. Sverrir var á upphafsstigum málsins talinn hafa staðið að kaupum efnisins á Spáni og er eftirlýstur af Europol. 15.7.2010 11:50
Rannsókn á stærsta amfetamínsmygli sögunnar miðar ágætlega Rannsókn á innflutningi tveggja þýskra kvenna á 20 lítrum af amfetamínbasa er enn í fullum gangi og miðar ágætlega, að sögn Jóns H.B. Snorrasonar, aðstoðarlögreglustjóra. Hann segir rannsóknina miða að því að upplýsa um öll atvikin sem hér áttu sér stað, uppruna efnanna og ástæður fyrir flutningi þeirra hingað til lands. Það er allt gert í samvinnu við erlend lögregluyfirvöld og stofnanir. 15.7.2010 11:16
Kókaínmálið: Halda hlífiskildi yfir meintum höfuðpaur Sakborningarnir í kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur halda allir hlífiskildi yfir Davíð Garðarsyni, sem sakaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. Tveir sakborninganna breyttu framburði sínum verulega frá því í skýrslutökum lögreglu og fyrir dómi í dag. 15.7.2010 11:15
Játaði aðild að umfangsmiklum kókaíninnflutningi Jóhannes Mýrdal, einn sakborninganna í svokölluðu Spánarmáli, játaði sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Jóhannesi var gefið að sök að hafa tekið að sér að flytja kókaín til landsins en hann var stöðvaður í Leifsstöð. 15.7.2010 11:03
Stórskemmdu Porsche jeppa Skemmdarvargar unnu milljóna tjón á bílum og vinnuvélum í Vesturborginni í nótt og komust undan. 15.7.2010 10:44
Argentína leyfir hjónabönd samkynhneigðra Argentína er fyrsta land í Suður-Ameríku sem leyfir hjónabönd samkynhneigðra. Öldungadeild þingsins samþykkti lög þar um í gær. 15.7.2010 10:39
Hjálpsama löggan Þegar nágranni kom að tveim piltum sem voru að reyna að brjótast inn í einbýlishús á Austur-Jótlandi síðastliðna nótt lögðu dónarnir á flótta. 15.7.2010 10:03
Um 1200 börn fæddust Alls fæddust 1200 börn á öðrum fjórðungi ársins en 530 einstaklingar létust. Íslendingar voru tæpla 318 þúsund í lok ársfjórðungsins. 15.7.2010 09:12
Stórkostlegar gjaldskrárhækkanir óhjákvæmilegar hjá OR Á seinni hluta síðasta kjörtímabils virðist hafa ríkt þögult þverpólitískt samkomulag í borgarstjórn Reykjavíkur um að ýta vandamálum Orkuveitu Reykjavíkur fram yfir kosningar. Nú er nýr meirihluti í borginni að láta gera úttekt á gríðarlega erfiðri stöðu fyrirtækisins. 15.7.2010 08:00
Danskur fíkniefnahundur fann 100 milljónir í reiðufé Fíkniefnahundur sem lögreglan í Kaupmannahöfn var að þjálfa fann 5 milljónir danskra króna eða ríflega 100 milljónir króna í reiðufé fyrir tilviljun í farangursrými bíls út á Amager. 15.7.2010 07:49
Fjárhagsaðstoð sem lofað var berst ekki til Haítí Flest löndin sem lofuðu að senda fjárhagsaðstoð til Haítí hafa enn ekki borgað krónu af þeim fjármunum. Þetta sýnir könnun sem CNN hefur gert. 15.7.2010 07:46
Stormurinn Conson skilur eftir sig 18 látna á Filippseyjum Að minnsta kosti 18 fórust og 57 er saknað eftir að hitabeltisstormurinn Conson fór yfir Filippseyjar í gærdag. 4.000 manns eru strandaglópar víða á eyjunum eftir storminn. 15.7.2010 07:43
Heilu húsin flutt til og frá á Suðurlandi Einskonar fardagar voru á Suðurlandi í nótt þar sem verið var að flytja heilu húsin til og frá. 15.7.2010 07:41
Álagspróf BP á Mexíkóflóa hafið BP olíufélagið hefur hafið álagsprófun sína á nýju hettuna sem tókst að koma á olíuleiðsluna sem lekur í Mexíkóflóa fyrr í vikunni. 15.7.2010 07:32
Lýbíska flutningaskipið komið til hafnar í Egyptalandi Flutningaskip á vegum lýbísku góðgerðarsamtakanna Gaddafi Foundation er komið til hafnar í Egyptalandi. Þar með tókst skipinu ekki að brjóta hafnarbann Ísraelsmanna en skipinu var í fyrstu siglt til Gaza. 15.7.2010 07:31
Lögreglan leitar að stolnum hraðbát Lögreglan í Árnessýslu leitar að hvítum hraðbáti með Susukí utanborðsmótor, sem stolið var á vagni frá sumarbústað á Mjóanesi við Þingvalalvatn nýverið. 15.7.2010 07:26
Kríuvarpið í Garði ætlar að heppnast óvenju vel í sumar Kríuvarpið í Garði á Reykjanesi virðist ætla að takast óvenju vel í sumar, sem bendir til þess að þar hafi krían nægilegt æti. 15.7.2010 07:22
Bæjarstjórar misstu af veiði í Elliðaánum Orkuveita Reykjavíkur nýtti ekki veiðileyfi sem frátekin voru fyrir fyrirtækið í Elliðaánum í gær heldur lét leyfin í hendurnar á Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. 15.7.2010 06:30
Skattbyrðin hér á landi er sögð svipuð og í Danmörku Skattbyrði Íslendinga er með því mesta sem gerist í aðildarlöndum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD), samkvæmt útreikningum sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Þetta kemur fram í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að beiðni íslenskra stjórnvalda. 15.7.2010 06:00
Dýrt að leigja bíl á Íslandi yfir hásumarið en ódýrt á veturna Leiga á bíl yfir hásumarið á Íslandi er dýrari en víðast hvar annars staðar. Ástæðan er sú að tekjur bílaleiganna koma nær eingöngu yfir sumarið þegar ferðamenn fjölmenna til landsins. 15.7.2010 04:00
Kópavogur greiðir ekki veitingar Breiðablik sem leikur á móti skoska liðinu Motherwell hér á landi 22. júlí næstkomandi fær veitingahúsareikninga vegna fyrirhugaðra veisluhalda í tengslum við heimsóknina ekki greidda úr bæjarsjóði Kópavogs. 15.7.2010 04:00
Áfram mokveiði í Blöndu Tvö holl sem voru að veiðum í vikunni á neðsta svæðinu í Blöndu veiddu samtals 380 laxa á fjórum dögum. Á þessu svæði er veitt á fjórar stangir. 15.7.2010 03:45
Þjóðgarðurinn fái hótelbætur Álfheiði Ingadóttur, formanni Þingvallanefndar, og Ólafi Erni Haraldssyni þjóðgarðsverði hefur verið falið af nefndinni að ræða við fulltrúa forsætisráðuneytisins um að þjóðgarðurinn fái að ráðstafa bótum sem fást eftir bruna Hótel Valhallar fyrir ári. 15.7.2010 03:30
Flestir trassa að skoða leiksvæði Innan við fimmtungur leiksvæða á leikskólum á Íslandi er skoðaður árlega eins og reglur kveða á um. Slíkri skoðun er ætlað að tryggja öryggi leikvallatækja og yfirborðsefna. 15.7.2010 03:00
Tuttugu og þrír vilja bæjarstjórastól Fjarðabyggðar Nýr listi yfir umsækjendur um bæjarstjórastól Fjarðabyggðar var birtur 13. júlí síðastliðinn. 15.7.2010 03:00
Sumargotssíld er enn sýkt Litlar vísbendingar eru enn um að sýking í íslensku sumargotssíldinni sé í rénun. Þetta er niðurstaða leiðangurs Bjarna Sæmundssonar á hrygningarslóðir síldarinnar. 15.7.2010 02:30
Götuverð á rítalíni hækkar Nýlegar aðgerðir lögreglu til að koma í veg fyrir sölu á rítalíni hafa haft áhrif að mati SÁÁ. Í verðkönnun á rítalíni sem keypt er með ólöglegum hætti kom í ljós að verðið hefur hækkað umtalsvert nýlega. 15.7.2010 01:00
Förðun fyrir stelpur og bílar fyrir stráka Álftanesskóli fer gegn jafnréttislögum með því að bjóða nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk upp á „stelpuval" og „strákaval" sem valgreinar. Jafnréttisstofu hafa borist erindi vegna málsins. Það staðfestir Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Hann segir standa í lögunum að kennsla og námsgögn skuli vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað. 15.7.2010 00:00
50 ára og eldri borga ekki inn á LungA Tíu ára afmælistónleikar LungA-listahátíðarinnar verða haldnir utandyra á Seyðisfirði á laugardagskvöldið. Aðgangseyrir fyrir yngri en fimmtíu ára er 2.000 krónur. Aðrir gestir borga ekkert. 15.7.2010 00:00
Jón Ásgeir fékk lán frá Danmörku fyrir snekkju Lítill danskur banki, með höfuðstöðvar í Skive á Jótlandi, lánaði Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fyrrum forstjóra Baugs, 4,5 milljónir evra til að kaupa lúxussnekkju, segir í frétt hins danska Berlingske Tidende. 14.7.2010 23:15
Ungur ökumaður keyrði á steypumót Ungur ökumaður missti stjórn á bíl og keyrði á steypumót hjá bensínstöðinni Orkunni á Dalvegi rétt í þessu, að sögn sjónarvotts. 14.7.2010 22:08
Sæðisbanki fyrir fallega? Stefnumótasíðan beautifulpeople.com, sem er einungis fyrir fallegt fólk, íhugar að stofna sæðisbanka. Sæðið yrði frá einstaklega myndarlegum karlmönnum. CNN greinir frá. 14.7.2010 21:42
Miðaverð á heimaleik NY Yankees rýkur upp Miðaverð á fyrsta heimaleik hafnaboltaliðsins New York Yankees frá því að eigandi liðsins féll frá á föstudaginn hefur hækkað um 77%. Business Insider greinir frá. 14.7.2010 21:17
Argentínska þingið kýs um hjónaband samkynhneigðra Argentínska þingið mun hefja umræður um hvort lögleiða eigi hjónaband samkynhneigðra þar í landi. 14.7.2010 20:49
Lagði niður nefnd sem átti að endurskoða lög um erlenda fjárfesting Gylfi Magnússon, efnahags og viðskiptaráðherra, lagði í fyrra niður nefnd sem átti að endurskoða lög um erlenda fjárfestingu. Forveri hans skipaði nefndina árið 2007. 14.7.2010 19:00
Sex bankar staðfesta að Iceland átti innistæðurnar Undirrituð skjöl frá sex bönkum sýna að innistæður upp á 38 milljarða króna sem slitastjórn Glitnis taldi að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi ráðið yfir haustið 2008, tilheyrðu bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods. 14.7.2010 18:34
TF-SIF sinnir mengunareftirliti á Mexíkóflóa Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF hélt í morgun til Houma í Louisiana þar sem flugvélin mun næstu fjórar vikur eða til 15. ágúst, sinna mengunareftirliti á Mexíkóflóa fyrir BP- British Petroleum. Bandaríska strandgæslan hefur yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins en TF-SIF leysir af flugvél samgöngustofnunar Kanada, Transport Canada við verkið. Sú flugvél er sömu tegundar og TF-SIF en þær eru báðar útbúnar öflugum hliðarradar „Side-looking airborne radar“ (SLAR) sem er sérhannaður fyrir mengunareftirlit. 14.7.2010 17:50
Verið er að þurrka út stétt leikskólakennara Það er verið að þurrka út stétt leikskólakennara, segir nemi í leikskólakennarafræðum sem er ósáttur við að nú þurfi að sitja fimm ár í háskóla til að teljast fullgildur leikskólakennari. Námslán í fimm ár séu þungur baggi að bera fyrir skammarleg laun. 14.7.2010 19:14