Innlent

TF-SIF sinnir mengunareftirliti á Mexíkóflóa

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF hélt í morgun til Houma í Louisiana þar sem flugvélin mun næstu fjórar vikur eða til 15. ágúst, sinna mengunareftirliti á Mexíkóflóa fyrir BP- British Petroleum. Bandaríska strandgæslan hefur yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins en TF-SIF leysir af flugvél samgöngustofnunar Kanada, Transport Canada við verkið. Sú flugvél er sömu tegundar og TF-SIF en þær eru báðar útbúnar öflugum hliðarradar „Side-looking airborne radar" (SLAR) sem er sérhannaður fyrir mengunareftirlit.

Verkefni TF-SIF felst í að kortleggja olíumengun á svæðinu suður af New Orleans og verður áhersla lögð á að meta hvar olían er í hreinsanlegu magni, segir í tilkynningu.

Öll gögn frá TF-SIF verða send sameiginlegri vettvangsstjórnstöð BP og US Coastguard, þar sem fulltrúi Landhelgisgæslunnar verður staðsettur. Daglega eru haldnir fundir þar sem farið er yfir stöðuna og næstu skref ákveðin en í stjórnstöðinni starfa á annað hundrað manns frá ýmsum löndum og stofnunum.

TF-SIF fylgja sjö starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem verða á staðnum tvær vikur í senn. Fjórir eru í áhöfn vélarinnar. Með þeim í för verða flugvirki og flugumsjónarmaður. Sem fyrr segir verður einn starfsmaður Landhelgisgæslunnar staðsettur í sameiginlegri vettvangsstjórnstöð í Houma. Reiknað er með að í hverju flugi verði einn starfsmaður frá bandarísku strandgæslunni.

Áætlað er að flogið verði 5-6 daga í viku, samtals rúmlega 100 flugtíma. Aðstoð og þátttaka Landhelgisgæslunnar sýnir að þegar stórslys verða þurfa þjóðir, jafnt litlar sem stórar, á aðstoð að halda. Landhelgisgæslan er stolt af að geta orðið bandarísku strandgæslunni og BP að liði í þessu stóra verkefni. Jafnframt mun Landhelgisgæslan og starfsmenn hennar fá mjög mikla reynslu á sviði mengunareftirlits og auðlindavörslu með þátttöku í starfi þessu. Fær Landhelgisgæslan greiddan útlagðan kostnað, launakostnað og leigu fyrir flugvélina.

Á meðan TF SIF er í verkefnum erlendis mun Landhelgisgæslan hafa aðgang að flugvél Mýflugs, TF FMS, til leitar- og eftirlitsstarfa. Sú flugvél er með búnað til að greina skip ( AIS búnað) og ágæta útsýnisglugga til leitar en er hins vegar með einfaldan og almennan radarbúnað. Hefur sú vél áður verið notuð í fjarveru eða sem viðbót við flugvél Landhelgisgæslunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×