Jón Ásgeir ætlar að krefjast kyrrsetningar á eignum Steinunnar Þorbjörn Þórðarson. skrifar 15. júlí 2010 12:15 Jón Ásgeir Jóhannesson telur að Steinunn Guðbjartsdóttir hafi valdið sér miklu tjóni með rangfærslum í eiðsvörnum vitnisburði sínum fyrir breskum og bandarískum dómstólum.
Jón Ásgeir Jóhannesson segist hafa selt fasteign í Lundúnum hinn 10. maí vegna skuldauppgjörs við fyrrverandi eiginkonu sína. Þá ætlar hann í persónulegt skaðabótamál á hendur Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar Glitnis banka. Hann ætlar að ganga lengra og krefjast kyrrsetningar á eignum hennar þangað til niðurstaða í skaðabótamálinu liggur fyrir. Morgunblaðið greinir frá því í dag að Jón Ásgeir hafi selt fasteign í Lundúnum hinn 10. maí síðastliðinn, degi áður en slitastjórn Glitnis krafðist kyrrsetningar á eignum hans úti um allan heim. Jón Ásgeir sagði í samtali við fréttastofu nú í morgun að sala á fasteigninni væri hluti af eignauppgjöri hans við fyrrverandi eiginkonu sína. Hann sagði að fasteignin hefði verið sett á sölu hinn 10. nóvember 2009 og að eins og allir vissu í Bretlandi tæki það þrjá til fjóra mánuði að ljúka sölu á fasteignum. Það vildi því þannig til að uppgjör vegna þessara fasteignaviðskipta hefði verið klárað hinn 10. maí síðastliðinn, en hann sagði að fyrrverandi eiginkona sín hefði skuldað sér peninga. Slitastjórn Glitnis banka gerði aldrei tilraun til að taka viðtal við Jón Ásgeir, eða hafa samband við lögmenn hans, með það fyrir augum að spyrja hann spurninga það heila ár sem rannsókn slitastjórnarinnar og rannsóknarfyrirtækisins Kroll hefur staðið yfir. Þetta kemur fram í greinargerð lögmanna hans fyrir breskum dómstólum. Sem kunnugt er hefur Malcolm Walker sent slitastjórn Glitnis bréf ásamt skriflegri staðfestingu frá sex breskum bönkum um að þær 202 milljónir punda, jafnvirði 38 milljarða króna, sem slitastjórnin taldi að tilheyrðu Jóni Ásgeiri eða einhverjum tengdum honum tilheyrðu í raun Iceland Foods. Jón Ásgeir hyggst höfða skaðabótamál á hendur Steinunni Guðbjartsdóttir, formanni slitastjórnarinnar, þ.e henni persónulega, vegna eiðsvarinnar yfirlýsingar sem hún gaf fyrir breskum dómstólum og þeirra rangfærslna sem þar birtast, en hann telur að veigamikill þáttur í málatilbúnaði slitastjórnarinnar byggist einmitt á þessum 202 milljónum punda sem voru aldrei í hans eigu. Jón Ásgeir sagði í samtali við fréttastofu í morgun að hann hyggðist krefjast kyrrsetningar á eignum Steinunnar þangað til að niðurstaða lægi fyrir skaðabótamálinu og ætlar hann að leggja fram beiðni um kyrrsetningu eigna hennar hjá sýslumanninum í Reykjavík. Ef sýslumaður fellst á kyrrsetningu þarf að höfða staðfestingarmál og hyggst Jón Ásgeir gera það. Þá þarf gerðarbeiðandi, þ.e í þessu tilviki Jón Ásgeir, í mörgum tilvikum að leggja fram tryggingu fyrir hugsanlegu tjóni sem kyrrsetningin getur valdið gerðarþola ef krafan reynist ekki lögmæt. Ekki náðist í Steinunni Guðbjartsdóttur í morgun. Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, er stjórnarformaður 365 miðla sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira