Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biskup kaþólikka sendir samúðarkveðjur Pétur Bürcher, biskup kaþólikka hér á landi, sendir pólsku þjóðinni og Pólverjum á Íslandi samúðarkveðjur sínar flugslyssins í Rússlandi í morgun. Þar fórust forseti Póllands, forsetafrú, hópur þingmanna og margir af æðstu embættismönnum pólska hersins. Hann var ekki viðstaddur minningarathöfnina í Kristskirkju í dag en hann er á ferðalagi um Austurland vegna ferminga. 10.4.2010 20:04
Eitt af stórvirkjum Brams flutt á tónleikum í Hallgrímskirkju Um 120 manns taka þátt í flutningi á meistaraverki Brahms, Ein Deutsches Reguiem eða þýskri Sálumessu á lokatónleikum Kirkjulistahátíðar nú um helgina. Stjórnandinn segist hafa beðið eftir því að fá flytja það í 30 ár enda telji hann það eitt fegursta verk sem samið hefur verið. 10.4.2010 19:14
Kynna og kanna undraheima vísindanna Ísprinsessa, vatnshrútur og eldorgel er á meðal þess sem börn á öllum aldri geta kynnt sér í Norræna húsinu næstu vikur, en Tilraunalandið opnaði þar í gær. Það er sýning sem hefur það að markmiði að kynna og kanna undraheima vísindanna. 10.4.2010 19:12
Fullt út úr dyrum í minningarathöfn Minningarathöfn í Kristskirkju á Landakoti um forsetann og alla þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi í morgun er nýlokið. Í slysinu fórust forseti landsins og fjölmargir háttsettir embættismenn. Fullt vart út úr dyrum í Kristskirkju en meðal þeirra sem sóttu athöfnina voru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 10.4.2010 17:29
Fyrirskipar viku þjóðarsorg í Póllandi Forseti pólska þingsins hefur tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eins og stjórnarskrá Póllands gerir ráð fyrir. Hann hefur fyrirskipað viku þjóðarsorg í landinu vegna flugslyssins skammt frá Smolensk í vesturhluta Rússlands, þar sem Lech Kaczynski forseti landsins og margir æðstu embættismenn landsins fórust. 10.4.2010 17:23
Söngkeppni framhaldsskólanna í beinni á Vísi Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld verður sýnd í beinni útsendingu á Vísi. Einnig verður sýnt frá keppninni í opinni dagskrá Stöðvar 2. Í þessari vinsælustu og fjölmennustu söngvarakeppni landsins mæta til keppni allir framhaldsskólar landsins og er þetta í 20. sinn sem keppnin er haldin. 10.4.2010 17:15
Hannes Hlífar Íslandsmeistari í skák í ellefta skipti Hannes Hlífar Stefánsson sigraði Guðmund Gíslason í elleftu og síðustu umferð Íslandsmótsins í skák í dag. Hannes hefur því tryggt sér sigur á mótinu og það í ellefta sinn á 13 árum en Hannes tók ekki þátt í mótinu árin 2000 og 2009 og hefur ávallt sigrað á Íslandsmótinu síðan 1998 hafi hann á annað borð tekið þátt í mótinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands. Hannes hlaut 8,5 vinning í 10 skákum. 10.4.2010 16:03
Komin fram Konan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er komin fram. Hún fór frá Landsspítalanum í gærdag og er síðast vitað um ferðir hennar við Hlemm eftir miðnætti í nótt. 10.4.2010 15:57
Jóhanna sendi samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust. 10.4.2010 15:54
Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins. 10.4.2010 14:57
Minningarathöfn vegna flugslyssins Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust. 10.4.2010 14:27
Lýst eftir þrítugri konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ragnheiði Þórdísi Stefánsdóttur. Hún fór frá Landsspítalanum í gærdag og er síðast vitað um ferðir hennar við Hlemm í Reykjavík, um klukkan þrjú aðfaranótt laugardags. 10.4.2010 13:55
Forseti Alþingis undrast gagnrýni Hreyfingarinnar Hvorki Þór Saari né Birgitta Jónsdóttir gerðu athugasemdir þegar fyrirhuguð dagskrá Alþingis í næstu viku vegna útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var samþykkt. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún undrast gagnrýni þingmanna Hreyfingarinnar sem sendu frá sér yfirlýsingu í gær vegna málsins. Þeir segja að ómögulegt sé fyrir þingmenn að kynna sér innihald skýrslunnar almennilega áður en gengið er til umræðu. 10.4.2010 13:51
Jón Ásgeir biðlar til Steingríms Jón Ásgeir Jóhannesson biður Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að gæta orða sinna þegar alvarlegar ávirðingar eru bornar á almenning í landinu. Öll mál eiga sér fleiri en eina hlið. Þetta kemur fram í bréfi sem Jón Ásgeir sendi fjármálaráðherra í dag og er birt á Pressunni. 10.4.2010 13:09
Svandís: Hegðun þáttagerðarmanna Top Gear verði rannsökuð Gæta þarf betur að umgengni ferðafólks upp að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Einkum nú þegar frost er að fara úr jörðu og jarðvegur verður viðkvæmur fyrir ágangi. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún vonast til þess að meintur utanvegaakstur þáttagerðamanna Top Gear verði rannsakaður. 10.4.2010 12:59
Vilhjálmur: Ekki við hæfi að fyrirtæki Pálma dreifi gjöfum Vilhjálmur Bjarnason, lektor, segist ekki vilja þiggja gjafir frá fyrirtæki í eigu manns sem hafi sennilega orðið uppvís að því að tæma banka. En hann neitaði að taka við flugmiða frá Iceland Express í gærkvöldi eftir sigur með liði sínu í spurningakeppninni Útsvar á Ríkissjónvarpinu. Hann segir ekki við hæfi að slíkt fyrirtæki dreifi gjöfum með þessum hætti. 10.4.2010 12:50
Ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér efni skýrslunnar Þingmenn Hreyfingarinnar lýsa furðu sinni á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis í næstu viku þar sem taka á fyrir skýrslu rannsóknarnefndar þingsins. Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, segir nær ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér innihalds skýrslunnar nægilega vel áður en hún er tekin til umræðu á Alþingi. 10.4.2010 12:24
Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10.4.2010 11:37
Þjófar í annarlegu ástandi handteknir Karl og kona voru handtekin um níuleytið í morgun í verslun við Skúlagötu í Reykjavík. Þau höfðu brotist inn í verslunina og voru komin með töluvert magn af þýfi þegar lögregla kom á staðinn. Fólkið var í annarlegu ástandi, að sögn varðstjóra. Þau verða yfirheyrð síðar í dag en bæði eru þau góðkunningjar lögreglu. 10.4.2010 11:15
Um þriðjungur Dana vill drottninguna burt Um þriðjungur Dana vill að Margrét Þórhildur Danadrottning afsali sér krúnunni og Friðrik sonur hennar taki við Þetta sýnir ný könnun sem Capacent gerði á meðal 2000 svarenda fyrir Rizau fréttastofuna. Um 17% eru í vafa um hvort drottningin eigi að sitja áfram í sæti sínu eða ekki. 10.4.2010 10:45
Fjöldaútför í Kirgistan Þúsundir manna mættu í jarðarför margra þeirra sem féllu í mótmælum í Bishkek höfuðborg Kirgistan á miðvikudag. 76 manns féllu í átökum við lögreglu og um 1400 manns særðust. Fjöldaútförin fór fram í útjaðri höfuðborgarinnar þar sem kistur hinna látnu voru bornar til grafar sveipaðar fána Kirgistans. Margir syrgjendur báru myndir af hinum látnu. Flestir hinna látnu féllu þegar lögregla skaut á mannfjölda sem réðst inn í opinberar byggingar í miðborginni. 10.4.2010 10:04
Líkklæði Krists til sýnis í Torínó Líkklæðið frá Turin sem margir telja að sé líkklæði Krists, verður til sýnis í borginni Torínó á Ítalíu frá og með deginum í dag. Raðir mynduðust við sýningarstaðinn strax í morgun en klæðið hefur ekki verið til sýnis frá því árið 2000. 10.4.2010 09:57
Ekkert ferðaveður í grennd við gosstöðvarnar Ekkert ferðaveður er í grennd við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögregla varar ferðamenn við að vera á svæðinu í dag. Mikill krapi er á Mýrdalsjökli sem er illfær. Þá hafa verið miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu. 10.4.2010 09:38
Innbrot í tölvuverslun Brotist var inn í tölvuverslun á Stórhöfða í nótt og ýmsum tölvubúnaði stolið. Lögreglu barst tilkynning um málið á sjöunda tímanum í morgun. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. 10.4.2010 09:25
Vegir víðast hvar auðir Það er hlýtt um allt land og vegir víðast hvar auðir. Þó eru hálkublettir á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði eru einnig hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 10.4.2010 09:13
Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10.4.2010 09:06
Vanmeta magn hraunsins „Nýting gervitungla er mjög skemmtileg viðbót,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, um nýjan búnað bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA), sem gerir vísindamönnum mögulegt að fylgjast með gosinu við Fimmvörðuháls úr geimnum. 10.4.2010 09:00
Samgöngumiðstöð á hreyfingu Hönnun samgöngumiðstöðvar verður boðin út í næsta mánuði og framkvæmdir við hana ættu að hefjast fyrir áramót, eftir að Reykjavíkurborg og samgönguyfirvöld komust að samkomulagi um hana á fimmtudag. 10.4.2010 07:00
Ráðherra lýsir stríði á hendur lúpínunni Ræktun lúpínu á Íslandi verður stórlega takmörkuð frá því sem nú er, samkvæmt nýrri áætlun umhverfisráðuneytisins. 10.4.2010 06:00
Útgönguleið fyrir unga afbrotamenn Undanfarin ár hafa blóðug átök milli glæpagengja í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku hvort tveggja vakið ótta almennings og magnað spennu víða í hverfum innflytjenda. 10.4.2010 06:00
Geta byrjað á álveri á Bakka árið 2013 Framkvæmdir geta hafist við álver á Bakka árið 2013, náist samningar og skilyrði umhverfismats verði uppfyllt, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sameiginlegt mat virkjana við Þeistareyki og álvers á Bakka verður auglýst síðar í mánuðinum. 10.4.2010 06:00
Vonir björgunarmanna dvína „Þetta var löng og erfið nótt,“ sagði Joe Manchin, ríkisstjóri Vestur-Virginíu, sem hefur fylgst með björgunaraðgerðum við kolanámuna í Montcoal, þar sem fjórir kolanámumenn hafa verið innilokaðir síðan á mánudag. 10.4.2010 06:00
Ný tæki komast ekki á Netið klárist IP-tölur Innan við tíundi partur er eftir af auðkennum sem tölvum er úthlutað á internetinu, IPv4. Unnið er að því að taka upp næstu kynslóð auðkenna í netsamskiptum, IPv6. OECD hvetur til hraðari upptöku til að hægi ekki á framþróun Netsins. 10.4.2010 05:00
Tóku sjónvarpshúsið á sitt vald Stuðningsmenn Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðhera Taílands, halda ótrauðir áfram mótmælum gegn núverandi stjórn. Í gær lögðu þeir undir sig fjarskiptafyrirtæki, sem lagðar höfðu verið niður útsendingar sjónvarpsstöðvar sem notið hefur vinsælda stjórnarandstæðinga. 10.4.2010 05:00
Fækka má slysum með nýjum búnaði Væri bílafloti landsmanna allur búinn nýjasta öryggisbúnaði mætti mögulega fækka umferðarslysum um ríflega þúsund á ári hverju. Þetta er mat Bílgreinasambandsins og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). 10.4.2010 05:00
Fráleitt að fresta viðræðum við ESB Fráleitt er að halda því fram að fresta eigi ESB-viðræðum eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra hefur gert, að mati Össurar Skarphéðinssonar, núverandi utanríkisráðherra. „Menn mega ekki fara á taugum þótt blási aðeins á móti,“ sagði hann í gær við Stöð 2. 10.4.2010 04:00
Hvetur Rússa til að birta skjöl Pólska þingið hvetur Rússa til þess að gera öll skjöl opinber er varða fjöldamorðin í Katýnskógi árið 1940, þegar rússneskir leyniþjónustumenn myrtu 22 þúsund pólska hermenn. 10.4.2010 04:00
Bakajev flúinn til Afganistans Þúsundir manna söfnuðust saman á aðaltorgi Biskeks, höfuðborgar Kirgisistan, til að minnast þeirra sem féllu í átökum í vikunni þegar stjórn Kurmanbeks Bakijev forseta var steypt af stóli. 10.4.2010 03:30
Ellefu kiðlingar komu í heiminn Geitburði er nú lokið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og mun það trú starfsmanna að nú sé vorið að koma. 10.4.2010 03:15
Félag fréttamanna ætlar að funda um stefnu Pálma „Ég geri ráð fyrir að við munum halda stjórnarfund fljótlega og fara í gegnum þetta," segir Aðalbjörn Sigurðsson, formaður í Félagi fréttamanna á RÚV, um stefnu Pálma Haraldssonar í Fons gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni. 9.4.2010 22:00
Vilhjálmur Bjarnason neitaði að taka við verðlaunum frá Iceland Express Garðabær sigraði í spurningakeppninni Útsvar sem fram fór á Ríkisútvarpinu í kvöld. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, var í sigurliðinu. Hann neitaði að taka við hluta verðlaunanna sem í boði voru fyrir sigurliðið. Um var að ræða ferðaávísun frá Iceland Express. 9.4.2010 21:15
Kvikan að færast í átt að Kötlu? Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur veltir upp þeim möguleika í grein á heimasíðu sinni að kvikan undir Eyjafjallajökli sé að færast til austurs í átt að Kötlu. Hann bendir á að jarðskjálftar hafi verið að færast undanfarna tvo daga í átt að Goðabungu í Mýrdalsjökli. 9.4.2010 19:50
Vilhjálmur Bjarnason: Þetta útskýrir sig sjálft „Ég þarf ekkert að útskýra þetta. Þetta útskýrir sig sjálft. Ég var hluthafi í Glitni,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands. Vilhjálmur var í sigurliði Garðabæjar í spurningakeppninni Útsvar sem fór fram á RÚV í kvöld. 9.4.2010 21:52
Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki styrkinn Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki 230 milljóna króna styrkinn frá Reykjavíkurborg eins og ákveðið var fyrr en öðrum framkvæmdum er lokið segir borgarstjóri. Stjórn klúbbsins hefði átt að greina borginni frá því að styrkur borgarinnar frá síðasta ári hafi verið notaður til að niðurgreiða eldri framkvæmdalán. 9.4.2010 19:17
Hönnun samgöngumiðstöðvar boðin út í næsta mánuði Hönnun samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli verður boðin út í næsta mánuði og smíði hafin fyrir áramót, eftir að ríki og borg náðu í gær samkomulagi um skipulagsmál. Samgönguráðherra vonast til að miðstöðin verði tilbúin innan tuttugu mánaða. 9.4.2010 19:12