Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússnesk orrustuflugvél fórst Rússnesk orrustuflugvél að gerðinni SU-24 fórst í suðurhluta Rússlands í dag. Tveir hermenn voru um borð í vélinni og komust þeir báðir lífs af. Þetta er í annað sinn á þremur dögum sem að orrustuflugvél af sömu gerð ferst í Rússland en yfirvöld hafa bannað allt flug slíkra flugvéla á meðan að rannsókn fer fram á tildrögum slysanna. 19.6.2009 15:04
Dæmdur fyrir árás í Fjölbrautaskóla Suðurlands Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag 17 ára karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað miðvikudaginn 18. febrúar á þessu ári í Fjölbrautaskóla Suðurlands. 19.6.2009 14:51
Útilokar að ræða lækkun á launatöxtum við stjórnvöld Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, útilokar að ræða kerfisbundna lækkun á launatöxtum stéttarfélaga innan bandalagsins við stjórnvöld. 19.6.2009 14:28
Merkel gagnrýnir æðsta klerk Írans Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gagnrýnir Ali Khamenei, æðsta klerk Írans, og segir ræðu sem hann flutti í morgun hafa verið mikil vonbrigði. 19.6.2009 13:57
Barnaheill hleypa nýju átaki af stokkunum Fulltrúar Barnaheilla á öllum aldri hleyptu af stokkunum nýju söfnunarátaki á Lækjartorgi í dag og ræddu við áhugasama vegfarendur um alþjóðlegt menntaverkefni Barnaheilla, Save the Children, eða Bætum framtíð barna. 19.6.2009 13:43
Sálrænn stuðningur við fólk sem kemur að slysum og áföllum Fólk sem kemur að slysum og öðrum alvarlegum atburðum sem vitni, tilkynnendur og þátttakendur í skyndihjálp, björgun og sálrænum stuðningi fær nú tilboð um sálrænan stuðning til að vinna úr reynslu sinni. Þetta er gert í samvinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Rauða kross Íslands fyrir hönd Hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og formaður stjórnar SHS, og Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, undirrituðu samkomulag um verkefnið í gær. 19.6.2009 13:26
Grænfriðungar fordæma hvalveiðar Íslendinga Grænfriðungar hafa fordæmt hvalveiðar Íslendinga. Í yfirlýsingu umhverfisverndarsamtakanna frá í morgun segir að ríkisstjórn Íslands hafi brugðist í málinu en andstaða einstaka ráðherra við hvalveiðar hafi ekki dugað til að koma í veg fyrir þær. 19.6.2009 13:25
Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða. 19.6.2009 13:15
Býður Birni að vinna upp í 10 milljóna skuld „Ef hann vill friða samviskuna þá er honum velkomið að koma hingað norður og vinna upp í þessar tíu milljónir," segir Viðar Guðmundsson, bóndi að Miðhúsum í Kollafirði. 19.6.2009 13:14
Yfirmaður spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás Yfirmaður í hryðjuverkasveit spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás hryðjuverkamanna á Norður-Spáni í morgun. Aðskilnaðarhreyfingu ETA í Baskalandi er kennt um. Reynist það rétt er árásin sú fyrsta mannskæða sem samtökin hafa framið í hálft ár. 19.6.2009 12:44
Tony Blair flæktur í hneykslið Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er flæktur í kostnaðarhneysklið sem skekið hefur bresk stjórnmál og þjóðlíf Bretlands síðasta rúma mánuðinn. Blair mun hafa fengið endurgreiddan kostnað af þakviðgerðum á heimili sínu skömmu áður en hann lét af embætti. 19.6.2009 12:39
Þrír saksóknarar verði skipaðir við hlið sérstaks saksóknara Lagt er til að þrír sjálfstæðir saksóknarar verði skipaðir við hlið sérstaks saksóknara í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra sem lagt verður fyrir stjórnarflokkana í dag. Þá er lagt til að skipaður verði sérstakur ríkissaksóknir til að fara með eftirlitshlutverk í málaflokknum. 19.6.2009 12:31
Björn Mikkaelsson: Neyddist til að svíkja fólkið „Það er rétt hjá þeim,“ segir Björn Mikkaelsson um sögu hjónanna frá Miðhúsum í Kollafirði sem fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Í samtali við fréttastofu sagði Viðar Guðmundsson frá því að hann og kona hans borguðu Birni tæpar tíu milljónir upp í Finnskt einingahús sem þau fengu aldrei. Annars vegar 2,7 milljónir í staðfestingargjald og síðar 7,2 milljónir. 19.6.2009 12:27
Helmingur opinberra starfsmanna getur búist við launalækkun Helmingur opinberra starfsmanna má búast við endurskoðun heildarlauna. Hægt verður á vegaframkvæmdum eða þeim frestað, nefndakostnaður skorinn niður um helming, aðkeypt sérfræðiþjónusta snarminnkuð og setja á meiri hörku í að draga úr skattsvikum. Þetta er meðal þess sem stjórnvöld ætla að gera til að skera niður til að draga úr fjárlagahallanum. 19.6.2009 12:24
Stjórnin undrast harkalegar aðgerðir FME og fjármálaeftirlitsins Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar lýsir furðu sinni á hörðum aðgerðum Fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytisins, sem skipað hafa umsjónarmann með sjóðnum, þrátt fyrir að stjórn hans og framkvæmdastjóri hafi ítrekað og að eigin frumkvæði upplýst fulltrúa Fjármálaeftirlitsins um fjárfestingar hans. 19.6.2009 12:05
Steingrímur mælti fyrir frumvarpi um niðurskurð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Í frumvarpinu er leitað leiða til þess að bæta stöðu ríkissjóðs eftir bankahrunið með ýmsum aðgerðum og sagði ráðherrann að minnka eigi bilið á milli tekna og útgjalda. Steingrímur sagði að í frumvarpinu væri mennta- og félagsmálum hlíft eftir megni. 19.6.2009 11:38
Niðurrifsmaður á Álftanesi hafði milljónir af fimm manna fjölskyldu „Hann er ekki hetja í mínum augum,“ segir Barbara Ósk Guðbjartsdóttir. Hún og maður hennar Viðar Guðmundsson segja farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við Björn Braga Mikkaelsson sem þann 17. júní reif niður einbýlishús á Álftanesi. Húsið hafði hann misst í hendur Frjálsa Fjárfestingabankans. Þau Viðar og Barbara greiddu Birni tæpar tíu milljónir króna fyrir finnskt einingahús sem þau fengu aldrei í hendurnar. 19.6.2009 11:10
Samkomulagið um Icesave átti að opinbera fyrr Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að heppilegra væri ef að gögn um Icesave samkomulagið hefðu komið fram fyrr. Pétur Blöndal, þingþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega vinnubrögð þingflokka stjórnarflokkanna í málinu. 19.6.2009 11:02
Stjórn lífeyrissjóðs Kópavogs grunuð um lögbrot Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar er grunuð um lögbrot og hefur stjórninni verið skipaður umsjónaraðili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. 19.6.2009 10:16
Maður segist vera barn sem hvarf árið 1955 Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur sýnt fram á það með ítarlegum rannsóknum á erfðaefni manns nokkurs að hann er ekki ungbarn sem hvarf fyrir utan verslun á Long Island í New York árið 1955. 19.6.2009 08:36
Einn látinn eftir sprengingu í Bilbao Einn lést þegar bíll sprakk í loft upp í spænsku borginni Bilbao í morgun. Sá látni var lífvörður embættismanns nokkurs þar í borginni. 19.6.2009 08:16
CIA vill bankamenn í vinnu Atvinnulausir bankamenn eru nú eftirsóttir af nýjum vinnuveitanda í Bandaríkjunum, sjálfri leyniþjónustunni. 19.6.2009 07:56
Ánægður með matinn á lögreglustöðinni Atvinnulaus maður í Taiwan, sem nýverið var sleppt úr haldi lögreglu, braut af sér strax aftur vegna þess hve ánægður hann var með matinn á lögreglustöðinni. 19.6.2009 07:35
Línuraketta skall á húsi í Sandgerði Íbúum við Vallargötu í Sandgerði brá í brún í gærkvöldi þegar hár dynkur rauf næturkyrrðina. Íbúarnir grennsluðust fyrir um málið úti í garði og þar kom í ljós eins konar raketta sem lína var áföst við. 19.6.2009 07:32
Barþjónn skotinn í Horsens Slagsmálum á bar í bænum Horsens á Austur-Jótlandi í nótt lyktaði með því að barþjónn var skotinn með haglabyssu en ætlun þess sem skaut var þó að hæfa annan mann sem hann hafði átt í illdeilum við. 19.6.2009 07:30
Geimskot tókst með ágætum Geimskot gervihnattar, sem ætlað er að fara á sporbaug um tunglið og mynda yfirborð þess, tókst með ágætum en hnettinum var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída í gær. 19.6.2009 07:27
Auka viðbúnað á Hawaii vegna Norður-Kóreu Bandaríkjaher hefur aukið viðbúnað sinn á Hawaii vegna hugsanlegrar eldflaugaárásar Norður-Kóreu en japanskt dagblað greindi frá því í gær að Norður-Kóreumenn hefðu í hyggju að skjóta langdrægustu eldflaug sinni í átt að Hawaii nálægt þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí. 19.6.2009 07:25
Allen Stanford handtekinn fyrir fjársvik Bandaríska alríkislögreglan FBI handtók í gær auðkýfinginn Allen Stanford fyrir fjársvik en honum er gefið að sök að hafa gefið út skuldabréf að andvirði átta milljarða dollara með vöxtum sem eru of háir til að geta staðist. 19.6.2009 07:23
Brotist inn í Höfðahverfi Eitt innbrot var framið á höfuðborgarsvæðinu í nótt þegar brotist var inn í fyrirtæki í Höfðahverfi. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér flatskjá. Þá var gerð tilraun til innbrots í fyrirtæki í Hafnarfirði en ekki er talið að neinu hafi verið stolið þar. 19.6.2009 07:20
Fyrstu langreyðarnar veiddar í gær Hvalur 9 veiddi síðdegis í gær tvær fyrstu langreyðarnar sem veiða á í ár og var komið með dýrin að landi í nótt í Hvalfirði þar sem þau voru skorin að því er Skessuhorn greinir frá. 19.6.2009 07:12
Niðurskurðarhnífurinn hátt á loft Frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjámálum var lagt fram á Alþingi í gærkvöldi. Í frumvarpinu er leitað leiða til þess að bæta stöðu ríkissjóðs eftir bankahrunið og með ýmsum aðgerðum er stefnt að því að ríkið fái 13 milljarða króna í auknar tekjur á þessu ári. 19.6.2009 07:06
Öllum verður tryggð skólavist „Allir sem eru undir átján ára aldri eiga rétt á skólavist og þeim mun verða tryggð slík vist. Það verður bara að gera það,“ segir Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, sem þessa dagana fer yfir umsóknir í framhaldsskóla landsins. Samtals bárust 4.437 umsóknir frá nemendum úr 10. bekk, sem eru um 96 prósent þeirra sem luku grunnskólanámi í ár. 19.6.2009 06:00
Býr hjá vinum eftir að hafa rifið húsið „Ég er ekki að hvetja fólk til þess að gera þetta en ég sé alls ekki eftir þessu,“ segir Björn Mikkaelsson. Á þjóðhátíðardaginn reif hann húsið sem hann bjó í á Álftanesi en hann hefði þurft að afsala sér því í hendur sýslumanns í dag. 19.6.2009 06:00
Lækka á fjárlagahallann um 86 milljarða á tveimur árum Skera á ríkisútgjöld niður og afla nýrra tekna til að ná hallanum á ríkissjóði niður um samtals 86 milljarða króna á árunum 2009 og 2010. 19.6.2009 06:00
Harðar deilur um Icesave-samninginn Skrifi Alþingi undir Icesave-samninginn verða það afdrifaríkustu mistök í sögu þjóðarinnar. Þetta fullyrða fulltrúar Indefence-hópsins svokallaða, og vísa í þrjú lögfræðiálit sér til stuðnings, sem þeir segjast hafa látið vinna fyrir sig. Sérfræðingur um milliríkjasamninga segir hins vegar ekkert í samningnum koma á óvart. 19.6.2009 06:00
Segir Evu umdeilda en óháða „Eva Joly hefur orð á sér fyrir að vera afar sjálfstæð og slíku fylgir jafnan það gjald að vera umdeildur í leiðinni,“ segir Mads Andenæs, prófessor við lagadeild Háskólans í Ósló. Hann segir að oft hafi staðið styr um störf hennar í Noregi, þar sem hún hafi viðhaft harðar kröfur. 19.6.2009 05:00
Kærunefnd stöðvar Vodafone-samning „Það er ánægjulegt að kærunefndin skuli hafa stöðvað þetta ferli því það var klúður í uppsiglingu," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um þá ákvörðun kærunefndar útboðsmála að stöðva gerð samninga við Vodafone um símaþjónustu fyrir Landspítalann. 19.6.2009 05:00
Sakaður um að svíkja út háar fjárhæðir Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellt og ítrekað skjalafals, svo og þjófnaði og fíkniefnabrot. 19.6.2009 05:00
Þökur aftur á Ráðhústorgið Bæjarráð Akureyrar hefur tekið vel í erindi Sigurðar Guðmundssonar verslunarmanns og annars áhugafólks um eflingu miðbæjarins á Akureyri um að Ráðhústorgið verði lagt með túnþökum í sumar. 19.6.2009 04:00
Munum fyrir milljónir stolið Miklum verðmætum var stolið úr vörubifreið Línuborunar ehf., þar sem hún var á vinnusvæði við Nesjavallaveg ofan við Nesjavallavirkjun fyrir nokkrum dögum. 19.6.2009 03:30
Eitraður kræklingur í Eyjafirði Lömunareitrið PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði, að því er fram kemur á heimasíðu Matvælastofnunar. Stofnunin varar sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera rétt undir viðmiðunarmörkum en magn Alexandrium-þörunga sem valda eitrun yfir hættumörkum. 19.6.2009 02:00
Bandaríski herinn á slóð N-kóreskra skipverja Bandaríski herinn fylgist nú með norður kóreska skipinu Kang Nam, sem talið er flytja ólöglegan vopnabúnað eða tæki. Háttsettir yfirmenn í bandaríska hernum segjast ekki vita nákvæmlega hvað sé um borð, en skipið sé þekkt fyrir að flytja vafasaman varning. 18.6.2009 21:47
Dýravinir óánægðir með flugufregnir af Obama Dýraverndunarsamtökin PETA (People for the Ethical Treatment of Animals) lýstu í dag yfir óánægju sinni með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Ástæðan er sú að Obama steindrap flugu sem var að flögra um hann í miðju viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina. 18.6.2009 21:15
Hrollvekjandi fjöldi nauðgara í S-Afríku Einn af hverjum fjórum Suður Afrískum karlmönnum sögðust hafa nauðgað í könnun sem heilsurannsóknarstöð landsins gerði. Helmingur nauðgaranna viðurkenndi að hafa nauðgað fleiri en einu fórnarlambi. 18.6.2009 20:01
Mælti fyrir frumvarpi um launabreytingar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um kjararáð á Alþingi nú undir kvöld. Samkvæmt frumvarpinu skal kjararáð gæta þess að föst laun ríkisstarfsmanna fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra. 18.6.2009 19:43