CIA vill bankamenn í vinnu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. júní 2009 07:56
Atvinnulausir bankamenn eru nú eftirsóttir af nýjum vinnuveitanda í Bandaríkjunum, sjálfri leyniþjónustunni. Frá Wall Street til CIA, þetta er það sem nú blasir við mörgum fjármálasérfræðingnum vestanhafs. Meðal hæfisskilyrða er að geta staðist lygapróf með þar til gerðum búnaði og hafa meiri löngun til að þjóna ættjörðinni en veskinu þínu. Og hver hefur það ekki? Leyniþjónustan auglýsir nú sérstaklega eftir hagfræðingum og öðrum sem vit hafa á hagkerfum og geta rannsakað misferli, undanskot og óhreint mjöl í hinum fjölmörgu pokahornum hagkerfa heimsins. Atvinnuviðtöl hefjast á mánudaginn og fara að sjálfsögðu fram á leynilegum stað í New York. Kannski á Wall Street, hver veit? Ron Patrick, starfsmannastjóri leyniþjónustunnar, segir að þegar hafi nokkur hundruð umsóknir borist og öruggt sé að hæfileikar þeirra sem verða ráðnir verði notaðir á töluvert annan hátt en í bönkunum. Launin eru góð, allt að 160.000 dollarar í árslaun fyrir reynslubolta og bónusar ofan á það ef vel gengur en áður en umsækjandinn landar þessu draumastarfi þarf hann að undirgangast ítarlega læknisskoðun og bakgrunnsrannsókn auk þess sem fyrr var nefnt. Meðal þess sem nýju sérfræðingarnir munu aðstoða CIA við að rannsaka er bandaríska bankahrunið í heild sinni og ábyrgðarmenn þess. Þarna er sem sagt að myndast bandaríska útgáfan af sérstökum saksóknara.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira