Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Obama krefst rannsóknar í vegabréfamálinu Barack Obama krafðist þess í dag að rannsókn verði gerð á því hvers vegna verktakar hjá utanríkisráðuneytinu í Bandaríkjunum voru að hnýsast í vegabréfaumsóknir frambjóðenda til forseta þar í landi. Komið hefur í ljós að þrír starfsmenn ráðuneytisins hafa skoðað skýrslur um þau Obama, Hillary Clinton og John McCain án heimildar. 21.3.2008 20:39
Farið fram á gæsluvarðhald yfir sprautunálaræningjum Mennirnir þrír sem handteknir voru fyrr í dag í Breiðholti eru nú formlega grunaðir um að hafa framið ránið á Select stöðinni í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim en verið er að kanna hvort þeir eigi aðild að öðru ráni og tveimur ránstilraunum í Breiðholti. 21.3.2008 17:57
Einn látinn eftir skotárás í Gautaborg Annar þeirra sem skotinn var í Gautaborg fyrr í dag er nú látinn. Tveir menn voru skotnir í árás sem átti sér stað á sporvagnastöð í borginni í dag. Vitni sáu mann um fertugt hlaupa af vettvangi með skammbyssu í hönd. Fórnarlömin eru á þrítugsaldri og fékk annar skot í bakið en hinn í brjóstkassann. 21.3.2008 15:45
Össur segir vert að skoða þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir á pistli á heimasíðu sinni að vert sé að kanna vilja þjóðarinnar til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í pistli sínum hendir Össur á lofti ummæli Björns Bjarnasonar í þættinum Mannamál á Stöð 2 þar sem hann ræddi nauðsyn þess að Íslendingar komi sér upp vegvísi um hvað eigi að gera í Evrópumálum. 21.3.2008 20:00
Krossfestur í tilefni dagsins Á Fillipseyjum hefur það tíðkast hjá strangtrúuðum kaþólikkum að láta krossfesta sig á Föstudaginn langa til þess að minnast þess þegar Jesús Kristur var krossfestur á sínum tíma. 21.3.2008 19:30
Miklar skipulagsbreytingar framundan á Egilsstöðum Miklar skipulagsbreytingar eru framundan á Egilsstöðum en til stendur að breyta miðbæ staðarins.Gert er ráð fyrir að breytingar á muni kosta tæpan milljarð króna og er reiknað með að þeim ljúki eftir 3 ár. 21.3.2008 19:00
Passíusálmarnir lesnir og sungnir Hinn árlegi lestur Passíusálmanna fór fram í Hallgrímskirkju í dag í tilefni af föstudeginum langa. 21.3.2008 19:00
Slegið í gegn í Héðinsfjarðargöngum Söguleg tímamót urðu nú undir kvöld þegar bormenn rufu einangrun Héðinsfjarðar þegar þeir sprengdu síðasta haftið í jarðgöngunum til Siglufjarðar. 21.3.2008 18:45
Matsferli hafið við virkjun á Þeistareykjum Matsferli er hafið við 150 megawatta virkjun á Þeistareykjum sem og tvær háspennulínur vegna álvers á Húsavík. 21.3.2008 18:39
Krabbameinssjúklingar sem tilraunadýr Breska heilbrigðisráðuneytið og breska Krabbameinsfélagið hafa opnað nítján nýjar heilsugæslustöðvar. 21.3.2008 18:30
Heimskur þjófur Það eru til margar sögur af heimskum þjófum sem skildu eftir sönnunargögn á staðnum. 21.3.2008 17:35
Veitti sprautunálaræningjanum eftirför eftir ránið Ungur Íslendingur sem staddur er hér á landi í páskafríi varð vitni að sprautunálarráninu á Select stöðinni í morgun. Hann veitti ræningjanum eftirför og gaf síðan lögreglu skýrslu. Hann segir að ræninginn hafi verið einn á ferð. 21.3.2008 17:05
Brúðhjónin 10 og 11 ára Mohammed al-Rashidi er ellefu ára gamall. Hann er kvæntur frænku sinni sem er tíu ára. Það er þegar búið að gefa börnin saman en þau ætla ekki að halda upp á það fyrr en í sumar. Þá eru þau í fríi frá skólanum sínum í Saudi-Arabíu. 21.3.2008 16:55
Verkamenn á Grenimel beðnir um að fara sér hægt Lögreglan hafði í morgun afskipti af fjórum verkamönnum í nýbyggingu við Grenimel í Reykjavík. Ástæðan var ekki sú að banna mönnunum að vinna á þessum helga degi, heldur snérist málið um hve snemma þeir hófu vinnu sína. 21.3.2008 15:35
Jóga og bingó í blíðviðrinu á Austurvelli Bingóspilarar og jógaiðkendur komu saman á Austurvelli í blíðskaparveðri í dag. Bingóspilararnir voru frá Vantrú, félagi trúleysingja, en með uppákomunni voru þeir að brýna fyrir fólki að engin ástæða sé til að láta sér leiðast á föstudaginn langa þrátt fyrir að helgidagalöggjöf banni bingó og aðrar skemmtanir á þessum degi. 21.3.2008 14:57
Spor eftir úlf á Suður-Jótlandi Tveir danskir sérfræðingar segja vel mögulegt að fótspor eftir stóra skepnu á Suður-Jótlandi, séu eftir úlf. 21.3.2008 14:43
Morðingjarnir neita að tjá sig við lögreglu Piltarnir þrír sem handteknir hafa verið vegna morðsins í Kaupmannahöfn eru á aldrinum 15-17 ára. Þeir neita allir að tjá sig við lögreglu. 21.3.2008 14:35
Gjafmildur hraðbanki í Hull Vegfarendur sem nýttu sér hraðbanka í Hull á Englandi á þriðjudaginn var fengu heldur en ekki óvæntan glaðning þegar þeir tóku út úr bankanum. Kerfisvilla orsakaði að bankinn tvöfaldaði alltaf upphæðina sem beðið var um án þess að það kæmi fram á kvittunum. 21.3.2008 14:30
Þrír í haldi vegna sprautunálarána Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur þrjá menn í haldi, grunaða um aðild að sprautunálaránum sem framin hafa verið undanfarna daga í Fellahverfi í Breiðholti, samkvæmt heimildum Vísis. 21.3.2008 13:30
Skíðafjör á Siglufirði Mikil og góð stemning er nú á skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal enda færið með eindæmum gott og veðrið milt. Mikill fjöldi fólks er samankominn á svæðinu sem heimamenn kalla besta skíðasvæði landsins. 21.3.2008 13:28
Lést í bílslysi í Hafnarfirði Konan sem lést í bílslysi í Hafnarfirði á miðvikudag hét Anna Guðrún Antonsdóttir til heimilis að Álfaskeiði 64 í Hafnarfirði. 21.3.2008 13:03
Vatnslaust í Vaðneslandi Vatnslaust er í Vaðneslandi og í Hraunborgum vegna rafmagnstruflana sem voru þar í gær og í nótt. Unnið er að viðgerð. 21.3.2008 12:48
Þriðja sprautunálaránið framið við Suðurfell Þriðja sprautunálaránið var framið um ellefuleytið í morgun þegar þrír menn vopnaðir sprautunálum réðust inn á Select stöð við Suðurfell og ógnuðu starfsfólki þar. 21.3.2008 11:34
Viðrar vel til skíðaferða Gott veður er nú um allt land til skíðaiðkunar. Opið er í Bláfjöllum og Skálafelli frá klukkan 10 til klukkan sex. Hiti er í kringum frostmark og vindur hægur. 21.3.2008 10:19
Hættulegast að aka bíl í Kína Kína er hættulegasta land í heimi að aka um á bíl. Meðaltal banaslysa í heiminum eru tvö slys á hverja tíuþúsund bíla. 21.3.2008 10:17
Misþyrma hver öðrum vegna pínu Krists Filipseyingar eru nú byrjaðir að krossfesta hver annan í tilefni af því að í dag er föstudagurinn langi. 21.3.2008 10:12
Fíkniefnaakstur áberandi í nótt Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt fimm ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Af þeim voru tveir að auki kærðir fyrir ölvun við akstur. 21.3.2008 10:05
Danski blaðaburðardrengurinn látinn Sextán ára danskur blaðburðardrengur sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás á miðvikudag er látinn af sárum sínum. Þrír piltar á aldrinum 15 til 18 ára hafa verið handteknir. 21.3.2008 10:00
Helstu þjóðvegir færir Helstu þjóðvegir landsins eru nú greiðfærir á ný eftir norðanáhlaupið í gær, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Á sunnanverðum Vestfjörðum er þó þungfært á Klettshálsi og snjóþekja er á Kleifaheiði en mokstur stendur yfir. 21.3.2008 10:00
Sprautunálarán óupplýst Sprautunálaræninginn gengur enn laus, en rannsókn stendur enn yfir á tveimur keimlíkum ránum, sem framin voru í söluturnum í Fellahverfi í gær og í fyrrakvöld. 21.3.2008 09:55
Passíusálmarnir lesnir í Hallgrímskirkju Hinn árlegi lestur Passíusálma séra Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti hefst klukkan eitt. Að þessu sinni lesa félagar úr Mótettukórnum sálmana, en sumir sálmarnir verða sungnir af einsöngvurum, kór og eða söfnuðinum. Föstudagurinn langi hefst annars með guðsþjónustu í kirkjunni kl. 11. 21.3.2008 09:00
Clinton með forystu í skoðanakönnun Hillary Clinton hefur nú tekið forystu á Obama í barátunni fyrir forkosningar demókrata um forsetaembættið, ef marka má skoðanakannanir. Staða þeirra í skoðanakönnunum hefur verið býsna jöfn allt frá því í febrúar, en Clinton sækir á, samkvæmt síðustu Gallup könnun. 20.3.2008 20:47
Telur tal um að sniðganga Ólympíuleikana vera skaðlegt Það hefur ekki verið rætt á vettvangi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að sniðganga Ólympíuleikana í Peking í Kína, að sögn Ólafs Rafnssonar, formanns sambandsins. 20.3.2008 20:09
Biðja fyrir lífi sonar síns Foreldrar 16 ára gamals blaðaburðadrengs sem var barinn til óbóta með hafnarboltakylfu í Kaupmannahöfn á miðvikudag biðja nú fyrir drengnum. 20.3.2008 17:33
Einn í haldi vegna ránanna Lögreglan hefur mann í haldi vegna tveggja rána sem framin voru í Breiðholti, annað í gærkvöldi en hitt í hádeginu í dag. Verið er að yfirheyra hann núna. 20.3.2008 16:54
Friðardagskrá í Viðey frestað Fyrirhugaðri friðardagskrá í Viðey var frestað vegna veðurs. Þó verða ferðir í Viðey þessa vikuna á meðan kveikt er á friðarsúlunni og myndlistasýningin verður opin. Allar nánari upplýsingar um ferðir er hægt að finna á elding.is. 20.3.2008 18:27
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Digranesvegi fyrir fáeinum mínútum síðan. Sjúkraflutningamenn og lögregla voru kvödd á staðinn, en samvkvæmt upplýsingum frá þeim er ekki vitað hvort vegfarandinn er mikið slasaður. 20.3.2008 17:45
Undirbúningur í fullum gangi fyrir Aldrei fór ég suður Undirbúningur er í fullum gangi á Ísafirði fyrir tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður en hátíðin hefst annað kvöld. 20.3.2008 19:12
Starfsemi komin á fullt í Turninum Starfsemi er komin á fullt í hæsta húsi landsins í Kópavogi og starfa þar nú um tvö hundruð manns. Búið er að leigja út sautján af tuttugu hæðum Turnsins. 20.3.2008 19:08
McCain segir mikinn árangur hafa náðst í Írak John McCain er í heimsókn í Bretlandi þar sem hann meðal annars átti fund með Gordon Brown, forsætisráðherra. 20.3.2008 18:30
Aftakaveður á Kirkjubæjarklaustri Aftakaveður er nú á Kirkjubæjarklaustri og fyrir austan Klaustur. Þar fjúka þakplötur og ýmislegt lauslegt og fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að óþörfu. 20.3.2008 16:58
Libby sviptur málflutningsleyfi Dómstóll í Bandaríkjunum svipti í dag Lewis Libby, fyrrverandi starfsmannastjóra Dicks Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, málflutningsleyfi vegna aðildar hans að svokölluðu CIA-lekamáli. 20.3.2008 16:57
Flug enn úr skorðum Enn eru flugsamgöngur úr skorðum vegna veðurs. Athugað verður með flug til Vestmannaeyja klukkan 16.45 og til Ísafjarðar klukkan 17.30. 20.3.2008 16:34
Björgunarsveitir sóttu fólk í Víkurskarð Björgunarsveitin Týr á Svalbarðsströnd var kölluð út fyrr í dag til að aðstoða ökumenn tveggja bíla sem sátu fastir í Víkurskarði. 20.3.2008 16:05
Þak fauk af húsi í Vestmannaeyjum Mikil mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast þegar partur af þaki Netagerðar Ísfells í Vestmannaeyjum fauk í dag. Talsvert tjón varð á þakinu sjálfu enda fuku samtals um 130 fermetrar af þakinu burt. 20.3.2008 16:01