Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dóttir Önnu Nicole Smith erfir allt eftir móður sína Dannilynn hin átján mánaða gamla dóttir kynbombunnar heitinnar Önnu Nicole Smith mun erfa allar eigur móður sinnar. 5.3.2008 08:16
Anders Fogh á leið til Evrópusambandsins Anders Fogh Rasmussen mun að öllum líkindum láta af störfum sem forsætisráðherra Danmerkur í lok ársins og taka við embætti forseta Evrópusambandsins. 5.3.2008 08:11
Ítalska lögreglan tók eignir Calabriu mafíunnar Ítalska lögreglan hefur lagt hald á eignir og fjármuni Calabriu mafíunnar í Lombardi héraðinu. Nemur andvirði þess sem lagt var hald á hátt í 27 milljöðrum króna. 5.3.2008 08:04
Þrír sluppu lítt meiddir úr bílveltu Þrír ungir menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra lenti á ljósastaur við hringtorgið á mótum Vesturlandsvegar og Korpúlfsstaðavegar í gærkvöldi. 5.3.2008 08:01
Engin niðurstaða í deilu Kólombíu við nágranna sína Engin niðurstaða fékkst á neyðarfundi Samtaka Ameríkuríkja um deiluna sem komin er upp milli Kólombíu annarsvegar og Ekvador og Venesúela hinsvegar. 5.3.2008 07:58
Hillary sigraði í bæði Ohio og Texas Hillary Clinton sigraði í bæði Ohio og Texas í forkosningunum þar í nótt. Þar með er ljóst að baráttu hennar og Barak Obama er hvergi nærri lokið. 5.3.2008 06:14
Þriggja ára áætlun samþykkt í borgarstjórn Frumvarp að þriggja ára áætlun borgarinnar var samþykkt rétt í þessu á borgarstjórnarfundi sem staðið hefur frá því klukkan tvö í dag. 4.3.2008 22:40
Vopnaðir sérsveitarmenn í Dómsmálaráðuneytinu Vegfarendur á Lindargötu ráku upp stór augu í kvöld þegar þeir sáu stóran hóp lögreglu og sérsveitarmanna fyrir utan Dóms og Kirkjumálaráðuneytið við Skuggasund. 4.3.2008 22:32
Dæmdur fyrir að sýna dónamyndir Ítalskur karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa sett klámfengnar myndir af fyrrverandi kærustu sinni á netið og sent um 15 þúsund tölvupósta með myndunum. 4.3.2008 21:18
Allar umsóknir afgreiddar Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi sendi í kvöld frá sér fréttatilkynningu vegna fréttaumfjöllunar í fjölmiðum undanfarna daga um að svæðisskrifstofan hefði synjað fjölskyldum fatlaðra barna um aðstoð frá stuðningsfjöldskyldum. 4.3.2008 20:49
Vill draga Chavez fyrir dómstóla fyrir þjóðarmorð Spennan milli stjórnvalda í Kólumbíu og Venesúela virðist hafa magnast enn frekar því Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, segist munu óska eftir því að Alþjóðaglæpadómstólinn ákæri Hugo Chavez, forseta Venesúela, fyrir þjóðarmorð. 4.3.2008 21:46
Bæjarráð Ísafjarðar vill samning um vatnssölu Bæjarráð Ísafjarðar leggur til að bæjarstjórn samþykki samning við aðila sem hafa hug á að kaupa vatn af bænum til útflutnings. 4.3.2008 21:21
Serbneskur stríðsglæpamaður afplánar í Danmörku Bosníu-Serbi sem dæmdur var í 30 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt brottflutning á Króötum og múslimum frá Norð-Vestur Bosníu árið 1992 mun afplána dóm sinn í Danmörku. Alþjóðadómstóllinn í Haag tilkynnti þetta í dag. 4.3.2008 19:56
Hringskyrfi hugsanlega á fjórum bæjum á Norðurlandi Smitsjúkdómurinn hringskyrfi sem smitast getur úr dýrum í menn, virðist hafa stungið sér niður á fjórum bæjum á Norðurlandi. Héraðsdýralæknir lýsir áhyggjum og hvetur til aðgæslu. 4.3.2008 18:45
Persónuvernd skoðar skilmála Kaupþings Persónuvernd skoðar nýlegar breytingar á kortaskilmálum Kaupþings sem gera bankanum kleift að safna saman persónuupplýingum um viðskiptavini sína og selja þær áfram til annarra fyrirtækja. Mögulegt er að skilmálarnir feli í sér nauðungarsamninga. 4.3.2008 18:30
Utanríkisráðherra á samráðfundi norrænna og afrískra ráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tók þátt í árvissum samráðsfundi afrískra og norrænna ráðherra sem lauk í Gaborone í Botsvana í dag. 4.3.2008 17:52
Ólafur F: Flugvallarstarfsemin í sjálfheldu Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að núverandi staða í málefnum Reykjavíkurflugvallar sé erfið fyrir alla aðila, jafnt þá sem vilja sjá flugvöllinn áfram í Vatnsmýri og þá sem vilja að hann fari. Hann segir flugvallarstarfsemina vera í sjálfheldu vegna þeirrar óvissu sem málið er í. 4.3.2008 17:15
Póstverslun með lyf verði heimiluð Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lyfjalögum sem miða að því að auka samkeppni á lyfjamarkaði og þjónustu við neytendur eins og segir í greinargerð. 4.3.2008 16:35
Hæstiréttur staðfestir farbann yfir sundlaugarperra Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um farbann yfir manninum sem handtekinn var í sundmiðstöð Keflavíkur þann 24.febrúar. Maðurinn var dæmdur í farbann til 9.apríl. Hann reyndi að komast úr landi. 4.3.2008 16:29
Svandís: Keisarinn er ekki í neinum fötum Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í borgarstjórn segir að fyrirhugaðar þjónustugreiðslur til handa þeim foreldrum sem eru með börn á biðlistum á leikskólum borgarinnar sé kvennagildra. Hún segir meirihlutann rúinn trausti og að hann lifi í sýndarveruleika. 4.3.2008 16:14
Gert ráð fyrir miklum framkvæmdum á Akureyri Byggingu Hofs menningarhúss, fyrri áfanga Naustaskóla og fimleikahúss verður lokið á árinu 2009. Unnið verður áfram að uppbyggingu íþróttasvæða í tengslum við væntanlegt landsmót UMFÍ. Þetta kemur fram í þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar, sem lögð er fram í bæjarstjórn í dag. 4.3.2008 16:13
Vill kanna til hlítar rafræn ökklabönd Dómsmálaráðherra telur að hægt sé að hafa betra eftirlit með kynferðisafbrotamönnum á reynslulausn með rafrænum ökklaböndum. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 4.3.2008 16:12
Ríkislögreglustjóri varar við Netfjársvikurum Ríkislögreglustjóri varar við netsíðum sem gefa í skyn að sá sem þær skoðar hafi unnið stóran lottóvinning. Eru slíkar síður nú í sumum tilvikum á íslensku. Er fólk hvatt til að gefa ekki upplýsingar um sig á netsíðum af þessu tagi. 4.3.2008 15:40
Stærstur hluti skulda þjóðarbúsins hjá fjármálastofnunum Stærstur hluti skulda þjóðarbúsins eru skuldir fjármálastofnana sem fengið hafa frelsi til þess að athafna sig, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í utandagskrárumræðu um stöðu efnahags-, atvinnu- og kjaramála á Alþingi í dag. 4.3.2008 15:31
Umhverfisráðherra átti fund með umhverfisstjóra Evrópusambandsins Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti fund með Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins, í Brussel í dag. Umræðuefni fundarins var stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum, væntanlegar samningaviðræður um nýjan alþjóðasaming um loftslagsmál og löggjöf á sviði umhverfismála. 4.3.2008 15:16
Dagur: Borgarstjóri rökræðir við sjálfan sig Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að í ræðu sinni í borgarstjórn í dag hafi Ólafur F. Magnússon borgarstjóri staðið í rökræðum við sjálfan sig. 4.3.2008 15:11
Varað við stórhríð á Holtavörðuheiði Vegagerðin varar við stórhríð á Holtavörðuheiði og óveðri á milli Borgarness og Hvanneyrar. 4.3.2008 14:55
Flugdólgurinn kvartaði yfir fiskilykt Íslenski flugdólgurinn sem handtekinn var í Skotlandi kvartaði sárann yfir fiskilykt sem var í vélinni. Farþegi sem var um borð segir hann einnig hafa sagst vilja sprengja vélina í loft upp. Dólgurinn var færður út í handjárnum. 4.3.2008 14:40
Einar K: Óþolandi rangfærslur umhverfissamtaka Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, sagði í ræðu í Lilleström í dag að rangfærslur þekktra umhverfissamtaka um stöðu hvítfisksstofna væru óþolandi. Ráðherrann er staddur í Noregi á sjávarútvegsráðstefnu og þar lét hann þessi orð falla um samtökin og sagði þau láta einskis ófreistað til að koma málstað sínum á framfæri. 4.3.2008 14:38
Tæpur helmingur á nagladekkjum Hlutfall negldra hjólbarða reyndist vera 44% á móti 56% ónegldra þegar talning fór fram í gær. Á sama tíma í fyrra voru 47% ökutækja á negldum hjólbörðum. 4.3.2008 14:30
Sérstakar greiðslur til foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi 1,6 milljarða króna viðbótarframlagi verður veitt til heimaþjónustu, húsaleigubóta, sérskóla og sérdeidla samkvæmt breytingatillögum sem meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur gerir við þriggja ára áætlun borgarinnar. 4.3.2008 13:55
Stjórnarfrumvörp hafa forgang á nýtt eftirlaunafrumvarp Sú vinnuregla að láta stjórnarfrumvörp og frumvörp frá forsætisnefnd hafa forgang í allsherjarnefnd kemur í veg fyrir að frumvarp um breytingar á eftirlaunum æðstu embættismanna fái framgang. Þetta kom fram í máli Birgis Ármannssonar, formanns allsherjarnefndar, á Alþingi í dag. 4.3.2008 13:47
Íslenskur flugdólgur handtekinn í Skotlandi Karlmaður um þrítugt var handtekinn í Skotlandi í gærkvöldi. Maðurinn var á leið til Íslands frá Barcelona. Ekki var talið öruggt að hafa hann um borð. 4.3.2008 13:38
Hafnfirðingar orðnir 25 þúsund Hafnfirðingar náðu þeim áfanga í lok síðustu viku að verða 25 þúsund talsins og var tuttugu og fimm þúsundasti Hafnfirðingurinn heiðraður að því tilefni. 4.3.2008 13:26
Sigurður Emil Þorsteinsson ók ekki á ljósastaur og brunahana Karlmaður úr Reykjavík hefur verið dæmdur til að greiða tæplega 300 þúsund króna sekt, eða sæta 20 daga fangelsi, fyrir umferðarlagabrot. 4.3.2008 13:20
Sortuæxli tífalt algengari en fyrir áratug Tíðni sortuæxla hér á landi hefur tvöfaldast á síðastliðnum tíu árum og er þau nú algengasta tegund krabbameins hjá ungum konum. Landlæknir segir að aukninguna megi rekja að stórum hluta til notkunar ljósabekkja. 4.3.2008 12:55
Krefjast þess að lögbann á torrent.is verði staðfest Mál fjögurra höfundarréttarsamtaka gegn Svavari Lútherssyni og fyrirtæki hans, Isotorrent, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 4.3.2008 12:51
Fá allt að milljón á sólarhring á loðnuskipunum Dæmi eru um að skipstjórar á góðum loðnuskipum séu að fá um og yfir eina milljón á sólarhring og að hásetahluturinn hlaupi á hundruðum þúsunda. 4.3.2008 12:45
Tollar á fóðurblöndum hindra samkeppni Samkeppniseftirlitið beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að afnema tolla á fóðurblöndum. 4.3.2008 12:38
Stóriðja notar 70 prósent af raforkunni Raforkunotkun á landinu á síðasta ári nam um 11.600 gígavattstundum samkvæmt samantekt Orkustofnunar 4.3.2008 12:20
Ekki búist við fleiri hópuppsögnum í byggingariðnaði Ekki er vitað til þess að byggingaverktakar ætli sér að fara í fjöldauppsagnir á næstunni, að sögn Finnbjörns A. Hermannssonar, formanns Samiðnar. 4.3.2008 12:14
Stækkun Kringlunnar tefst vegna sviptinga í borgarstjórn Áform um stækkun Kringlunnar hafa tafist vegna sviptinga í borgarstjórn, segir framkvæmdastjóri Landic Property á Íslandi sem á stærstan hluta verslunarkjarnans. Hann vonast til að nýi meirihlutinn í borginni taki málið föstum tökum. 4.3.2008 12:09
Skriða verðhækkana gengur yfir Skriða verðhækkana gengur nú yfir í matvöruverslunum og dæmi eru um hækkanir upp á 5 til 10 prósent að sögn formanns Neytendasamtakanna. Hann óttast frekari hækkanir á næstunni. 4.3.2008 12:03
Varað við óveðri milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar Vegagerðin varar við óveðri milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og biður fólk einnig að vera vakandi fyrir aukinni hálku þar sem er að hlána. 4.3.2008 11:54
Mótmæltu Múhameðsteikningum og kvikmynd um Kóraninn Um þrjú hundruð þingmenn á afganska þinginu tóku þátt í mótmælum í Kabúl í dag þar sem dönskum skopmyndum af Múhameð spámanni og hollenskri kvikmynd um Kóraninn var andmælt. 4.3.2008 11:41