Umhverfisráðherra átti fund með umhverfisstjóra Evrópusambandsins 4. mars 2008 15:16 Þórunn Sveinbjarnardóttir og Stavros Dimas.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti fund með Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins, í Brussel í dag. Umræðuefni fundarins var stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum, væntanlegar samningaviðræður um nýjan alþjóðasaming um loftslagsmál og löggjöf á sviði umhverfismála. Umhverfisráðherra gerði Stavros Dimas grein fyrir áherslum Íslands í loftslagsmálum um samdrátt í losun gróðurhúsaloftteguna um 50 - 75% fyrir 2050 og að unnið væri að nánari útfærslu á því hvernig þeim markmiðum yrði náð. Umhverfisráðherra fagnaði frumkvæði og forystu Evrópusambandsins í loftslagsmálum, ekki síst þar sem það hvetti aðrar þjóðir og alþjóðastofnanir til hliðstæðra verka. Tillögur Evrópusambandsins væru til athugunar á Íslandi, m.a. út frá því hvernig þær féllu að EES samningnum og vegna þeirra áhrifa sem þær hugsanlega hefðu á atvinnustarfsemi á Íslandi. Umhverfisráðherra ræddi sérstaklega þá ákvörðun að fella flugstarfsemi undir tilskipunina um verslun með gróðurhúsalofttegundir og þau áhrif sem hún gæti haft á Íslandi. Aðstæður Íslendinga væru einstakar þar sem öðrum ferðamáta til og frá landinu væri ekki til að dreifa. Enn fremur var rætt um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá alþjóða siglingum og voru Þórunn Sveinbjarnardóttir og Stavros Dimas sammála um mikilvægi þess að Alþjóðasiglingamálastofnunin setti reglur um losun gróðurhúsalofttegunda frá siglingum. Umhverfisráðherra lagði áherslu á að í komandi viðræðum um loftslagsmál væri nauðsynlegt að ná víðtæku samkomulagi iðnríkjanna og þeirra þróunarríkja sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum. Íslensk stjórnvöld hefðu þegar mótað stefnu sína í viðræðunum og hún miðaði að því að halda hlýnun andrúmsloftsins innan 2° C. Ráðherra óskaði jafnframt eftir góðri samvinnu við ESB í samningaviðræðunum sem fara í hönd. Auk loftslagsmála ræddu umhverfisráðherra og Stavros Dimas um nýja löggjöf Evrópusambandsins um efni og efnavörur sem verður bráðlega tekin inn í íslenskan rétt og um vinnu við lögleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins á Íslandi. Áætlun Evrópusambandsins um verndun hafsins kom einnig til tals og lýstu þau Þórunn og Stavros Dimas bæði áhuga sínum á því að Íslendingar létu meira að sér kveða á þeim vettvangi, m.a. með því að leggja fram sérfræðiþekkingu á því sviði. Umhverfisráðherra lýsti einnig yfir ánægju með samstarfið við Evrópusambandið í tengslum við framkvæmd EES samningsins og mikilvægi hans á sviði umhverfismála en megin hluti löggjafar sambandsins á því sviði hefur verið leiddur í lög á Íslandi. Í ferð sinni til Brussel átti Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra einnig fund með Diana Wallis, þingmanni Evrópuþingsins og varaforseta þess, auk þess sem hún sat morgunverðarfund norrænna umhverfisráðherra um Evrópusambandsmálefni. Þá kynnti umhverfisráðherra sér starfsemi íslenska sendiráðsins í Brussel, starfsemi EFTA og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Með ráðherra í för var Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu. Auk þeirra tóku þátt í fundunum þau Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir og Ingimar Sigurðsson frá sendiráðinu í Brussel.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira