Innlent

Tollar á fóðurblöndum hindra samkeppni

MYND/Páll Gunnar

Samkeppniseftirlitið beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að afnema tolla á fóðurblöndum. Þetta kemur fram í áliti sem eftirlitið hefur sent ráðherra og birt er á heimasíðu stofnunarinnar.

Þar segir einnig að mikil fákeppni ríki á markaði fyrir framleiðslu og sölu á fóðri fyrir jórturdýr, svín og alifugla á Íslandi. Um árabil hafi einungis verið tvö fyrirtæki á Íslandi sem framleiða og selja fóður. Með innflutningi á fóðurblöndum sé unnt að veita innlendum framleiðendum samkeppnislegt aðhald.

Samkeppniseftirlitið vísar til þess að lagður sé tollur á innfluttar fóðurblöndur, 3,90 krónur á hvert kíló. Þessi tollur vinni gegn innkomu nýrra keppinauta sem áhuga hefðu á að selja tilbúnar fóðurblöndur á innlendum fóðurmarkaði og fari þannig gegn markmiðum samkeppnislaga. Að mati Samkeppniseftirlitsins myndi afnám fóðurtollsins stuðla að aukinni samkeppni á fóðurmarkaði, bændum og neytendum til hagsbóta. Að sama skapi myndu framangreindar aðgerðir stuðla að lækkun framleiðslukostnaðar bænda og þar með að lægra verði á matvælum til neytenda.

„Að undanförnu hafa orðið miklar verðhækkanir á fóðri hér á landi og sökum m.a. þessa hafa verið boðaðar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum. Í ljósi þessa er athygli landbúnaðarráðherra vakin á því í álitinu að afar mikilvægt sé að afnema umræddan verndartoll hið fyrsta og skapa þannig skilyrði fyrir aukinni samkeppni á íslenskum fóðurmarkaði," segir Samkeppniseftirlitið.

Að sögn Samkeppniseftirlitsins hefur það unnið að því að auka virka samkeppni og lækka matvöruverð. Eitt af þeim atriðum sem Samkeppniseftirlitið taldi ástæðu til að gera athugasemdir við og athuga nánar var innflutningsvernd á búvörum og er þetta álit liður í þeirri athugun. Samkeppniseftirlitið hefur til athugunar aðrar innflutningshömlur á þessu sviði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×