Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja að stuðlað verði að farsælum starfslokum Framkvæmdarstjórn Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að stjórnvöld hefjist strax handa við stefnumörkun um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Í ályktun sem framkvæmdarstjórnin sendi frá sér segir að gera verði þá kröfu til íslenskra stjórnvalda og Bandaríkjahers sem atvinnurekanda að stuðlað verði að farsælum starfslokum allra starfsmanna og leita til leiða til að draga úr afleiðingum uppsagnanna með félagslegri aðstoð. 21.3.2006 16:17
Diskó og pönk á Árbæjarsafninu Pönktónleikar á Árbæjarsafninu hljómar kannski fáránlega, en gæti þó orðið staðreynd innan fárra vikna. Í júní verður opnuð sýning á safninu þar sem fjallað verður um menningu ungs fólks í Reykjavík á árunum 1975-85, og diskóið og pönkið verður haft í forgrunni. 21.3.2006 15:57
Sök skipt til helminga Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Hagkaup að greiða karlmanni um þrítugt rúma milljón króna í bætur vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir síðla árs 2002. Honum er þó gert að bera nokkra ábyrgð sjálfur og var því sök skipt til helminga. 21.3.2006 15:49
Kynskiptiaðgerð ekki viðurkennd Hæstiréttur í Kúvæt hefur staðfest dóm undirréttar þar í landi sem viðurkennir ekki breytt kyn manns sem gekkst undir kynskiptiaðgerð fyrir tæpum sex árum. Maðurinn lét þá breyta sér í konu. 21.3.2006 15:30
Flugvöllur nefndur eftir George Best Flugvellinum í Belfast á Norður Írlandi verður gefið nafnið George Best, eftir norður-írska knattspyrnukappanum sem lést í nóvember síðastliðnum. 21.3.2006 15:15
10 handteknir eftir bílaeltingaleik Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu menn sem grunur lék á að væru að skipuleggja sjálfsvígsárás. 5 kíló af sprengiefni fundust í bíl þeirra og belti sem notuð eru við sjálfsvígssprengjuárásir. 21.3.2006 15:00
Fuglar bólusettir í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi hafa byrjað að bólusetja fjölda fugla við fuglaflensu. Vonast er til að aðgerðirnar komi í veg fyrir að flensan breist frekar út í Rússlandi. Sjúkdómurinn hefur nú greinst í átta héruðum Rússlands. 21.3.2006 14:45
Enn þungt haldinn Maður sem slasaðist alvarlega í mótmælaaðgerðum vegna nýrrar vinnulöggjafar í Frakklandi um helgina liggur en meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í París. Hann er sagður þungt haldinn. 21.3.2006 14:38
Ólík afstaða Halldórs og Geirs varðandi uppsögn varnarsamningsins Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir athyglisvert að formenn stjórnarflokkanna hafi ólíka afstöðu til möguleikanna á uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin. Þá segir hann utanríkisráðherra hafa sýnt ótrúlegt fyrirhyggjuleysi um öryggismál á hafi. 21.3.2006 13:30
Bæjarstjóri fundaði með starfsmönnum Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fundaði í gær með íslenskum starfsmönnum varnarliðsins í Keflavík. Mikil ólga var meðal starfsmanna sem margir óttast atvinnuleysi í haust. 21.3.2006 13:14
Fjölmargir mótmæla í Minsk Fjölmargir mótmælendur hafa ákveðið að tjalda í nokkrar nætur í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, svo halda megi út sólarhringsmótmælum gegn niðurstöðu forsetakosninganna þar í landi á sunnudag. Eitthvað virðist þó vera að draga úr eldmóð andstæðinga forsetans. Þrír háttsettir stjórnarandstæðingar voru handteknir í gærkvöldi. 21.3.2006 13:00
Grunaðir um stríðsglæpi Tólf bandarískir landgönguliðar í Írak sæta nú rannsókn en þeir eru grunaðir um stríðsglæpi. Þeir eru sakaðir um að hafa myrt fimmtán óbreytta borgara, þar á meðal þriggja ára stúlku, í bænum Haditha í Vestur-Írak í nóvember í fyrra. 21.3.2006 12:45
Urgur í starfsmönnum varnarliðsins Urgur er í starfsmönnum varnarliðsins en tollgæslan hefur eflt eftirlit sitt á umferð um aðalhlið varnarstöðvarinnar og leitar nú ítarlega í mun fleiri bílum en áður. 21.3.2006 12:45
Gagnrýna stjórnarformann OR Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík telur fráleitt að Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, vilji að Orkuveitan hafi forgöngu um frekari skuldbindingar um orkusölu til álvers í Helguvík, án samráðs við stjórn Orkuveitunnar og borgarstjórn. 21.3.2006 12:30
Kemur til greina að NATO taki við vörnum Íslands Jaap de Hoop Schaffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins telur að til greina komi að Atlandshafsbandalagið taki yfir varnarhlutverkið sem Bandaríkjamenn hafa sinnt til þessa. Hann ræddi málefni Íslands við George Bush forseta og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra í gær. 21.3.2006 12:15
UVG segja óþarfa að verja Ísland með hervaldi Félag ungra vinstri grænna á Akureyri fagnar löngu tímabærri ákvörðun Bandaríkja Norður-Ameríku að hverfa af landi brott með herafla sinn. Í tilkynningu frá félagionu segir að ungir visntri grænir séu sammála því að óþarfi sé að verja Ísland með hervaldi og telja landið mun öruggara eftir brotthvarf Bandaríkjahers. Augljóst sé að varnarsamningur við Bandaríkin sé einnig óþarfur og ber að segja honum upp tafarlaust. 21.3.2006 11:15
Ekkert eftirlit með kaupum á vinnuvélaolíu Ekkert eftirlit er með því hverjir kaupa vinnuvélaolíu og í hvaða tilgangi en slík olía er rúmlega 43% ódýrari en dieseolían. Yfir 18 sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu selja slíka olíu í sjálfsölum sínum. 21.3.2006 11:00
Öflugar loftvarnir mikilvægar Björn Bjarnason segir enn gríðarlega mikilvægt að á Íslandi séu öflugar loftvarnir og að ekki sé búið að útiloka að hér verði herþotur í framtíðinni. Þetta kom fram á málþingi félags stjórnmálafræðinga í Háskóla Íslands í gær. 21.3.2006 10:45
Tekinn af lífi fyrir að hafna islam Afganskur karlmaður verður líklega tekinn af lífi fyrir að hafa hafnað islam og snúið til kristninnar. Maðurinn var handtekinn í Afganistan í síðasta mánuði eftir að fjölskylda hans sagði til hans. 21.3.2006 10:30
Draumalandið kynnt Húsfyllir var í Borgarleikhúsinu í gærkvöld þar Andri Snær Magnason rithöfundur kynnti nýja bók sína, Draumalandið. Bókin, sem hefur undirtitilinn Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, hefur þegar vakið töluvert umtal þrátt fyrir að hún hafi fyrst komið út í gær. 21.3.2006 10:15
Vinnsla hefst aftur í vikunni Vinnsla hefst á ný á morgun eða á fimmtudag í frystihúsi Fossvíkur á Breiðdalsvík en það skemmdist töluvert í eldi fyrir rúmri viku. 21.3.2006 10:00
Enn mótmælt í Minsk Mörg hundruð mótmælendur komu saman í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, í nótt til að mótmæla niðurstöðu forsetakosninga þar í landi á sunnudag. Alexander Lúkasjenko var þá endurkjörinn forseti með rúmum 80% atkvæða. 21.3.2006 09:30
Ekki hægt að lesa úr fjárlagafrumvarpi að framlögum yrði hætt Íslensku sendinefndinni í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn var sagt að ekki væri hægt að lesa úr fjárlagafrumvarpi Bandaríkjastjórnar að hætta ætti fjárframlögum til varnaliðsins á Miðnesheiði. 21.3.2006 09:30
Kemur til greina að segja upp varnarsamningnum Forsætisráðherra segir vel geta komið til greina að segja varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna upp en að minnsta kosti þurfi að endurskoða hann. Þetta sagði hann á fundi í Stapanum í gærkvöldi. Forsætisráðherra sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvædastjóra Atlandshafsbandalagsins, telja nauðsynlegt að hafa viðbúnað á Íslandi. 21.3.2006 09:15
Utanríkisráðherra Svía segir af sér Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur sagt af sér. Freivalds er sökuð um ritskoðun og mistök í starfi. 21.3.2006 09:15
Fellibylur kostaði engin mannslíf Svo virðist sem enginn hafi látið lífið þegar fellibylurinn Larry fór yfir strandsvæði í norðaustur Ástralíu í fyrrinótt. Miklar skemmdir urðu í veðurofsanum en aðeins um þrjátíu manns slösuðust. 21.3.2006 09:00
Fjögurra bíla árekstur í Svínahrauni Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir fjögurra bíla árekstur í Svínahrauni í gærkvöldi. Tengivagn á bíl bilaði með þeim afleiðingum að fólksbíll sem kom á eftir fór út af þegar ökumaðurinn reyndi að stöðva bíl sinn og valt. 21.3.2006 08:45
Landgönguliðar sakaðir um morð Tólf bandarískir landgönguliðar í Írak sæta nú rannsókn en þeir eru grunaðir um að hafa framið stríðsglæpi. Þeir eru sakaðir um að hafa myrt fimmtán óbreytta borgara, þar á meðal þriggja ára stúlku, í bænum Haditha í Vestur-Írak í nóvember í fyrra. 21.3.2006 08:15
Tuttugu skæruliðar drepnir í Nepal Nepalskir hermenn drápu að minnsta kosti tuttugu skæruliða maóista í Nepal í morgun. Yfirmaður hersins segir mennina hafa fallið í aðgerðum hersins í vesturhluta landsins, um 80 kílómetra vestur af höfuðborginni, Katmandu. 21.3.2006 08:00
Föst í brunni daglangt Kona þurfti að dúsa daglangt í tæplega tuttugu metra djúpum brunni í bænum Xintai í Kína í gær eftir að hún féll ofan í hann. Á meðan björgunaraðgerðum stóð var súrefni dælt niður til konunnar. 21.3.2006 07:30
Ekki bara eymd í Afríku Homo, félag mannfræðinema, stendur nú fyrir fyrirlestraröð til að kynna heimsálfuna Afríku í allri sinni litadýrð og margbreytileika. Erna María Jensdóttir, formaður félags mannfræðinema segir fyrirlestraröðina tilkomna vegna ranghugmynda margra Íslendinga um Afríku. 20.3.2006 23:00
Ríkisstörfum hefur fækkað í sumum skattumdæmum Störfum á vegum ríkisins hefur fækkað töluvert í sumum skattumdæmum á síðustu átta árum sem er þvert á áætlanir ríkisstjórnarinnar. Á þetta benti þingmaður Frjálslynda flokksins í umræðum á Alþingi í dag og vildi draga Valgerði Sverrisdóttur ráðherra byggðamála til ábyrgðar. Hún sagði hins vegar málið ekki á sinni könnu. 20.3.2006 23:00
Vinnsla hefst á ný í Breiðdalsvík Vinnsla hefst á ný á miðvikudag eða fimmtudag í frystihúsi Fossvíkur á Breiðdalsvík en það skemmdist töluvert í eldi fyrir rétt rúmri viku. Að sögn Ríkharðs Jónssonar, framkvæmdastjóra Fossvíkur, verða störf jafnmörg í frystihúsinu eftir sem áður. 20.3.2006 22:45
Húsfyllir í Borgarleikhúsi á kyninngu Draumalandinu Húsfyllir var í Borgarleikhúsinu í kvöld þar Andri Snær Magnason rithöfundur kynnti nýja bók sína, Draumalandið. Bókin, sem hefur undirtitilinn Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, hefur þegar vakið töluvert umtal þrátt fyrir að hún hafi fyrst komið út í dag. 20.3.2006 22:24
Ekki útilokað að hér verði herþotur Björn Bjarnason segir enn gríðarlega mikilvægt að á Íslandi séu öflugar loftvarnir og að ekki sé búið að útiloka að hér verði herþotur í framtíðinni. Þetta kom fram á málþingi félags stjórnmálafræðinga í Háskóla Íslands í dag. 20.3.2006 22:15
Landhelgisgæslan í lykilhlutverki Atburðir síðustu daga hafa dregið úr trausti milli Íslendinga og Bandaríkjamanna að sögn Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra. Hann sagði að Atlantshafsbandalagið þyrfti að vinna að því með Íslendingum að endurskapa það traust og að það væri grundvallaratriði að Bandaríkjamenn gæfi ákveðin svör við því hvaða skref þeir sjá fyrir sér að tekin verði næst. Halldór sagði ennfremur að nú þegar Ísland yfirtekur starfsemina á Keflavíkurflugvelli og þyrlubjörgunarsveitina þá myndi Landhelgisgæslan gegna þar lykilhlutverki og hugsanlega myndi starfsemi hennar færast alfarið yfir til Keflavíkur. 20.3.2006 21:09
Ekkert eftirlit með vélaolíukaupum Ekkert eftirlit er með því hverjir kaupa vinnuvélaolíu og í hvaða tilgangi en slík olía er rúmlega 43% ódýrari en dieselolían. Yfir 18 sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu selja slíka olíu í sjálfsölum sínum. Eftir að þungaskatturinn var færður af bifreiðum og yfir á dieselolíuverð hafa verið einvher brögð að því að menn kaupi vinnuvélaolíu í stað diesel. 20.3.2006 21:00
Festist undir brú Vörubíll, sem var á leið austur eftir Kársnesbraut festist undir landbrúnni við Hafnarfjarðarveg og þurfti að loka veginum á meðan lögregla losaði bílinn. Engin slys urðu á fólki en bíllinn eyðilagðist talsvert. 20.3.2006 20:40
Ljóst í febrúar að vellinum yrði lokað Bandaríkjastjórn ætlar ekki að verja neinu fé til herstöðvarinnar í Keflavík frá 1. október á þessu ári. Samkvæmt heimildum NFS var þetta vitað strax í byrjun febrúar - og var ástæðan fyrir fundi samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna í þeim mánuði. 20.3.2006 18:57
Fá ekki linsur til að víkka sjónsvið barna án augasteina Hálft stöðugildi og þrjár milljónir króna í stofnkostnað er allt sem þarf til að bæta verulega lífsgæði um þrjátíu augasteinslausra einstaklinga hér á landi. Íslenska ríkið hefur ekki treyst sér til þess að veita þeim sambærilega þjónustu við þá, sem er annarsstaðar á Norðurlöndunum, en þar býðst þeim að fá linsur í stað þykkra gleraugna, sem takmarka sjónsvið þeirra. 20.3.2006 18:57
Samstarf sem hljómar vel FL Group og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að FL Group mun styrkja hljómsveitina um 40 milljónir íslenskra króna. Verða þær reiddar af hendi á næstu fjórum árum. 20.3.2006 18:54
Heimili öldruðum sæmandi Kópavogsbær og Hrafnistuheimilin hafa samið um byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða sem byggja á þeirri hugmyndafræði að fólk haldi mannlegri reisn, þrátt fyrir háan aldur eða bága heilsu. Heimilisfólkið heldur tekjum sínum og greiðir sjálft hefðbundin útgjöld en hið opinbera fyrir hjúkrun og aðhlynningu. 20.3.2006 18:52
Orkuveita Reykjavíkur tilbúin að útvega orku í Helguvík Álversframkvæmdir gætu hafist í Helguvík þegar á næsta ári. Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur tilkynnt forsætisráðherra að Orkuveitan geti komið að orkusölu til stóriðju á Suðurnesjum mun fyrr en áður var talið. 20.3.2006 18:41
Alcoa segist ekki framleiða hergögn Alcoa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Andra Snæs Magnasonar í fréttum NFS í gærkvöld. Þar hafna forsvarsmenn fyrirtækisins því að það sé í hergagnaframleiðslu en viðurkenna að þeir framleiði einstaka hluti úr áli sem notaðir séu við smíði Tomahawk-flugskeyta. 20.3.2006 18:16
Faldi fíkniefni undir mælaborði bíls Þrjú kíló af hassi og tæplega 47 grömm af kókaíni fundust við tollaeftirlit við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þan sjöunda þessa mánaðar. Fíkniefnin voru falin í rörbúti inn undir mælaborði bíls og í tveimur slökkvitækjum. Ökumaðurinn, sem er pólskur, kom í ferjuna í Danmörku og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. mars næstkomandi. 20.3.2006 17:45