Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lofar vist í himnaríki ef fólk les Rukhnama þrisvar Forseti Túrkmenistans, hefur lofað unga fólkinu í landinu að það komist til himna, lesi það bók hans „Rukhnama“ þrisvar sinnum. Þetta sagði forsetinn sem gengur undir nafninu Túrkmenbashi, eða faðir allra Túrkmena, á tónleikum sem haldnir voru í tilefni af árlegri vorhátíð þjóðarinnar 20.3.2006 16:55
Hóteluppbygging geti skapað á annað hundrað störf Sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum eru einhuga um að taka á þeim málum sem upp koma í framhaldi af því varnarliðið dregur mikið úr starfsemi sinni á næstu mánuðum með tilheyrandi uppsögnum. Bæjarstjórinn í Grindavík bendir á að hægt sé að ráðast í byggingu hótels við Bláa lóðin sem skapað geti á annað hundrað störf. 20.3.2006 16:21
Dauðadómur vegna kristni Afganskur maður gæti átt yfir höfði sér dauðadóm í heimalandi sínu verði hann fundinn sekur um að hafa hafnað múhameðstrú með því að snúast til kristni. Siðaskipti sem slík teljast glæpur samkvæmt sharia-lögum. 20.3.2006 15:48
Tók á móti undirskriftalistum vegna hágæsluherbergis Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra tók í dag á móti undirskriftalista þar sem hún var hvött til að tryggja rekstur svokallaðs hágæsluherbergis á Barnaspítala Hringsins. 20.3.2006 15:30
Heimasíða héraðsdóma opnuð Dómstólaráð hefur opnað heimasíðu þar sem framvegis verður hægt að nálgast á einum stað dagskrár allra héraðsdómstóla í landinu og flesta dóma og úrskurði sem kveðnir eru upp hjá dómstólunum. 20.3.2006 15:05
Fundur stendur yfir Fundur Jaap de Hoop Scheaffer, framkvæmdastjóra Atlandshafsbandalagsins, með Bush Bandaríkjaforseta stendur nú yfir í Hvíta húsinu í Washington. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er meðal annars á dagskrá á fundinum. 20.3.2006 15:01
Ræðu ráðherra breytt eftir á? Andri Snær Magnason rithöfundur segir að ræðu sem iðnaðarráðherra hafi flutt á Iðnþingi á síðasta ári hafi verið breytt eftir á á heimasíðu ráðuneytisins. Aðstoðarmaður ráðherra vísar þessu á bug. 20.3.2006 14:35
Átök í Gasa-borg Vopnaðir liðsmenn Fatah-samtaka Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, tóku um tíma yfir orkuver og lögðu undir sig fjölfarinn veg á Gasa-ströndinni í dag. Aðgerðirnar valda enn meiri gludroða á landsvæði Palestínumanna nú þegar Hamas-liðar búa sig undir að taka við völdum í heimastjórn Palestínumanna. 20.3.2006 14:30
FL Group styrkir Sinfóníuna FL Group ætlar að styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 10 milljónir króna á ári, næstu fjögur árin. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi FL Group og Sinfóníunnar í hádeginu. 20.3.2006 14:15
Ekki frjálsar kosningar Framkvæmd forsetakosninganna í Hvíta-Rússlandi í gær fullnægir ekki viðurkenndar kröfur alþjóðasamfélagsins og voru kosningarnar ekki frjálsar og óvilhallar. Þetta er niðurstaða kosningaeftirlistmanna Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. 20.3.2006 13:57
Refsiaðgerðir mögulegar gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið segir afar líklegt að gripið verði til einhverra refsiaðgerða gegn Hvíta-Rússlandi í ljósi úrslita forsetakosninga þar í landi í gær. Alexander Lúkasjenko, sitjandi forseti, var endurkjörinn með yfirburðum. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosninga. 20.3.2006 13:15
Íraksstríðið ástæða brotthvarfs varnarliðsins Bandarískur sérfræðingur um alþjóðasamskipti segir að stríðið í Írak sé ástæða þess að Bandaríkjastjórn leggi svo mikla áherslu á að kalla sveitir og búnað heim frá Íslandi. 20.3.2006 13:00
Aðgerðum í Samarra framhaldið Umfangsmiklar aðgerðir bandarískra og írakskra hersveita nálægt borginni Samarra í Írak halda áfram en þær hófust í síðustu viku. Leiðtogar súnnímúslíma í landinu eru afar reiðir vegna þessa og segja aðgerðirnar varla geta komið á verri tíma þegar verið er að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn í landinu. 20.3.2006 12:45
Boðar til fundar stuttu fyrir fund forsætisráðherra Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ boðar til almenns fundar um atvinnumál í dag, þremur klukkustundum á undan forsætisráðherra. 20.3.2006 12:04
Atkvæðagreiðsla um sameiningu Hafin er atkvæðagreiðsla um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna, sem yrði aðili að Alþýðusambandi Íslands, en ekki Samiðn. 20.3.2006 12:03
Fagna hugmynd forsætisráðherra Sameiginlegur fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Atvinnuráðs sambandsins fagnar þeirri hugmynd forsætisráðherra að skipuð verði samráðsnefnd ríkis og sveitarstjórnar á Suðurnesjum sem vinni að viðbrögðum við brotthvarfi flugsveita varnarliðsins frá Keflavíkurflugvelli. 20.3.2006 11:30
Ásókn innflytjenda til Kanaríeyja Starfsmenn mannréttindasamtaka á Kanaríeyjum á Spáni takast nú á við fordæmislausa ásókn afrískra innflytjenda til eyjanna. Mörg þúsund blásnauðir íbúar Máritaníu hafa sótt þangað á síðustu vikum. 20.3.2006 11:15
Flutningaleið opnuð á ný Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að opna fyrir flutning hjálpargagna frá Ísrael til svæða Palestínumanna á Gasa-ströndinni eftir að fregnir bárust að yfirvofandi hættuástandi þar. 20.3.2006 11:00
Hægt á íslensku víkingaskipunum Verulega hefur hægt á íslensku víkingaskipunum en þau virðast þó ekki hafa orðið fyrir varanlegu tjóni, segir meðal annars í ítarlegri grein breska blaðsins Sunday Telegraph um íslenskt efnahagslíf, og birt var í gær. 20.3.2006 10:45
Sjúkraflugum fjölgar Rúmlega ellefu hundruð manns voru fluttir með sjúkraflugi til og frá Reykjavíkruflugvelli í fyrra, sem er fjölgun um fjögur hundruð frá árinu áður. Þetta kom fram í svari samgönguráðhera við fyrirspurn á Alþingi. Þar kemur einnig fram að miklar sveiflur eru í þessum flutningum milli ára og var óvenju mikið um sjúkraflug í fyrra. Lang flestir sjúklingar, sem fluttir eru til Reykjavíkur, eru lagðir inn á Landsspítalann. 20.3.2006 10:43
Búddah endurholdgaður? Fylgismenn unglings sem sagður er Búddha endurholdgaður hafa sent frá sér myndband sem sagt er sýna þegar hann birtist lærisveinum sínum í skóglendi Nepal í gær. 20.3.2006 10:30
Geimhylki flutt til Bandarískri og rússneskir áhöfn alþjóðlegu geimstöðvarinnar tókst í morgun að flytja geimhylki milli hafna á stöðinni. Með því er verið að rýma fyrir hylki sem flytur næsta hóp geimfara í stöðina í næstu viku. 20.3.2006 10:15
Eitrað áfengi Tíu þorpsbúar á Suður-Indlandi létu lífið og sextán eru þungt haldnir eftir að hafa skálað fyrir látnu félaga sínu í heimalögðu áfengi sem var eitarð. Maðurinn sem var verið að kveðja hafði látist eftir að hafa drukkið heimalagað áfengi sem hann smyglaði frá nálægu héraði. 20.3.2006 10:00
Intrum innheimtir fyrir Borgarbókasafnið Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur samið við innheimtufyrirtækið Intrum um að hafa uppi á þeim sem láta undir höfuð leggjast að skila bókasafnsbókum. Bókasafnsbækur má hafa að láni í mánuð en tíu króna dagsektir bætast ofan á ef farið er fram yfir þann tíma. 20.3.2006 09:45
Áfengi í vörslu lögreglu Allt áfengi af barnum á veitingahúsinu Kaffi Láru á Seyðisfirði, hefur verið í vörslu lögreglu síðan á föstudagskvöld og vistað í læstum fangaklefa, að fyrirmælum sýslumanns. 20.3.2006 09:30
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki Samherja í Grimsby Nýtt fiskvinnslufyrirtæki í eigu Samherja, mun taka til starfa í Grimsby í Bretlandi á næstunni og á það að heita Ice Fresh Seafood. Aukast þá enn umsvif íslendinga á Humbersvæðinu í Bretlandi, en talið er að þar búi nú um 200 íslendingar sem hafi fjölda Breta í vinnu. 20.3.2006 09:15
Ökumaður ölvaður Vitni telja það mildi að ekki hlaust stór slys af, þegar ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Kringlumýrarbraut á níunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn lenti utan í vegriði á milli akbrautanna og braut það niður á að minnstakosti tuttugu metra kafla uns hann nam staðar, stór skemmdur. Ökumaður tók þá til fótanna, en lögreglumenn hlupu hann uppi. Kalla þurfti á slökkvilið til að hreinsa olíu og bensín úr bílnum, á vettvangi. 20.3.2006 09:13
Pálmi Haraldsson kaupir Hekla Travel Pálmi Haraldsson, sem á sínum tíma keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi FL Group, hefur keypt dönsku ferðaskrifstofuna Hekla Travel. 20.3.2006 09:00
Íraksstríði mótmælt Þrjú ár voru í gær liðin frá því herlið undir forystu Bandaríkjamanna réðst inn í Írak. Mótmæli mörkuðu það afmæli víða um heim en andstæðingar stríðsins söfnuðust saman til að mótmæla stríðinu og krefjast þess að látið verði af hernaðaraðgerðum í Írak tafarlaust. 20.3.2006 08:45
Hagvöxtur 5,5% á síðasta ári Hagvöxtur hér á landi var 5,5% á síðasta ári. Frá þessu er greint í vefriti fjármálaráðuneytisins í morgun en tekið er fram að talan geti breyst þegar Hagstofan fær frekari gögn til að vinna úr. 20.3.2006 08:30
Lúkasjenko sigraði með yfirburðum Alexander Lúkasjenko, forseti Hvíta-Rússlands, var endurkjörinn í embætti með yfirburðum í kosningum sem fram fóru í landinu í gær. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosningar. 20.3.2006 08:26
Fuglaflensutilfelli staðfest í Ísrael Staðfest hefur verið að fuglarnir sem drápust á þremur fuglabúum í suðurhluta Ísraels fyrir helgi voru sýktir af hinum mannskæða H5NI-stofni fuglaflensunnar. Þúsundum kjúklinga og kalkúna var slátrað eftir að fuglarnir drápust því strax lék grunur á að um fuglaflensu væri að ræða. 20.3.2006 07:53
Meiddist á hrygg eftir vélsleðaslys Kona meiddist á hrygg þegar hún datt af vélsleða uppi á Langjökli síðdegis í gær. Samferðafólk hennar kallaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og tókst áhöfn hennar að lenda á jöklinum, þrátt fyrir vont skyggni. Flogið var með konuna á slysadeild Landsspítalans og reyndist hún minna meidd en óttast var. Eftir rannsóknir og aðhlynningu fékk hún að fara heim. 20.3.2006 07:38
Sjö létust í sprengjuárás Sjö létust og fjórir særðust þegar þrjár sprengjur sprungu í norðvesturhluta Pakistan í gær. Tveimur af sprengjunum var komið fyrir nálægt lögreglustöð en talið er að herskáir íslamar hafi staðið fyrir árásinni en enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á árásinni. Þrír lögreglumenn létust í árásinni en lögreglustöðin er mikið skemmd eftir sprenginguna. 20.3.2006 07:35
Fellibylurinn Larry veldur usla í Ástralíu Að minnsta kosti þrír slösuðust þegar fellibylurinn Larry gekk yfir norðausturhluta Ástralíu í nótt. Bærinn Innisfail í Queensland-héraði varð verst úti í fellibylnum og er óttast að mun fleiri hafi slasast þar en vitað er um á þessari stundu, þó flestir bæjarbúar hafi náð að yfirgefa heimili sín áður en ósköpin dundu yfir. 20.3.2006 07:28
Flugmálastjórn í stríð við flugumferðarstjóra Yfirmenn Flugmálastjórnar eru komnir í stríð við starfsmenn sína, segir formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Þeir eru mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem var tekið upp, þrátt fyrir að svipuðu vaktakerfi hafi verið hafnað í kjarasamningum. 19.3.2006 19:00
Tillögur um tækifæri eftir brottför hersins Ný tækifæri felast í brottför hersins sagði forsætisráðherra, áður en hann og utanríkisráðherra funduðu með bæjarstjóra Reykjanesbæjar um tillögur um aðgerðir til að efla atvinnustarfsemi í ljósi breyttrar stöðu. Málið skekur nú byggðina pólitískt. Forsætisráðherra vonar að staða varnarsamningsins skýrist á morgun eftir fund framkvæmdastjóra NATO og Bandaríkjaforseta. Fundinum lauk rétt fyrir fréttir Ákveðið var að skipa starfshóp, að tillögu forsætisráðherra, sem í verða fjórir frá ríkinu og þrír frá sveitarfélögunum. 19.3.2006 18:52
Slasaðist alvarlega í bílveltu Karlmaður um tvítugt slasaðist alvarlega í bílveltu í Fossvogi nú síðdegis. Maðurinn, sem var ökumaður bifreiðarinnar, gekkst undir aðgerð vegna brjóstholsáverka. Hann fer í aðgerð vegna tveggja brotinna hryggjarliða í kvöld eða á morgun en er ekki í lífshættu. 19.3.2006 18:30
Slasaðist í bílveltu Umferðarslys varð á Kringlumýrarbrautinni, við göngubrúnna í Fossvogi nú síðdegis. Að því er næst verður komist var bifreið ekið á ljósastaur eða brúarstólpa svo hún valt. 19.3.2006 16:37
Stöðvaður á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan á Húsavík stöðvaði ungan ökumann á mikilli hraðferð í nótt. Mest mældist bíll piltsins á eitt hundrað áttatíu og eins kílómetra hraða, rétt norðan við Húsavík. 19.3.2006 14:56
Kokkar berjast Kokkar frá fjórum heimsálfum reyna að slá hverjum öðrum við í matargerðarlist og búist er við harðri keppni í uppvaski á sýningunni Matur 2006 sem haldin verður undir lok mánaðarins. 19.3.2006 14:40
Læsti sig inni með barnabarninu Mikill viðbúnaður var í Brussel höfuðborg Belgíu í nótt eftir að maður á sextugsaldri læsti sig inni á hótelherbergi á sautjándu hæð með átta ára gömlu barnabarni sínu. 19.3.2006 13:30
Varnarmálin rædd á morgun Jaap de Hoop Schaeffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins mun á morgun hitta George Bush Bandaríkjaforseta þar sem varnir Íslands verða til umræðu. 19.3.2006 12:45
Sér ekkert athugavert við ritstjórnina Oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík sér ekkert athugavert við framferði ritstjóra Framsóknarvefsíðunnar Hriflu, sem neitaði að birta pistil borgarfulltrúa flokksins um lýðræði á vefsíðunni. 19.3.2006 12:17
Líkamsárás á Laugaveginum í morgun Tveir menn um tvítugt réðust á mann frá Marokkó á Laugaveginum í morgun. Tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir. 19.3.2006 11:56