Erlent

Utanríkisráðherra Svía segir af sér

Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, og Laila Freivalds, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi fyrir  helgi.
Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, og Laila Freivalds, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi fyrir helgi. MYND/AP

Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur sagt af sér.

Freivalds hefur verið sökuð um að hafa brotið gegn stjórnarskrá með því að láta loka vefsíðu öfgahægrimanna vegna þess að þar voru birtar umdeildar skopmyndir af Múhameð spámanni.

Hún hefur einnig verið gagnrýnd fyrir meðhöndlun mála eftir flóðbylgjuna í Asíu sem varð um fimm hundruð Svíum að bana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×