Fleiri
Eins og Ingjaldsfíflið 4.12.2005 10:45 Sjá næstu 50 fréttir
Borun Kárahnjúkaganga tveimur mánuðum á eftir áætlun Borun Kárahnjúkaganga er orðin tveimur mánuðum á eftir áætlun og stefnir í að ítalski verktakinn Impregilo muni krefja Landsvirkjun um milljarða króna vegna óvæntra aðstæðna við borunina. 5.12.2005 12:00
Enn á gjörgæslu eftir harðan árekstur Farþegi í fólksbíl, sem slasaðist alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í gærkvöldi, er enn á gjörgæsludeild og verður líklega í allan dag, að sögn vakthafandi læknis á deildinni. Ástand hans er stöðugt og hann er ekki talinn í lífshættu. 5.12.2005 11:45
Töluvert tjón í eldi í Ofnasmiðjunni Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í húsnæði Ofnasmiðjunnar í Keflavík í morgun, en þó var það lán í óláni að eldurinn náði ekki að teygja sig í mikinn eldsmat sem er í húsinu. Slökkvilið var kallað á vettvang og gekk vel að slökkva eldinn en töluvert tjón varð af reyk og sóti og ekki síst af miklum hita, sem myndaðist í húsnæðinu. 5.12.2005 11:36
Réttað yfir hryðjuverkahópi í Hollandi Réttarhöld hófust í dag yfir fjórtán mönnum í Hollandi sem sakaðir eru um að tilheyra róttæku íslömsku hryðjuverkaneti, svokölluðum Hofstad-hópi sem hefur aðsetur í Haag. Meðal hinna ákærðu er Mohammed Bouyeri sem þegar afplánar lífstíðardóm fyrir morðið á hollenska kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh. 5.12.2005 11:30
Samið við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg í gærkvöldi í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Fram kemur á heimasíðu BSRB að nú verði hafist handa við að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og undirbúa skriflega allsherjaratkvæðagreiðslu. 5.12.2005 11:00
Fjölmenn mótmæli í Hong Kong 250.000 mótmælendur streymdu um götur Hong Kong í gær og kröfðust aukinna lýðræðislegra réttinda. Fjöldahreyfing, sem krefst aukinna lýðræðislegra réttinda, getur skapað mikil vandræði fyrir kínversk yfirvöld, sem hafa sagt það ólöglegt að jafnvel spyrjast fyrir um hvenær lýðræðislegar kosningar munu eiga sér stað. 5.12.2005 10:45
Dómar hertir í Grænlandi Maður var dæmdur í 10 ára fangelsi af grænlenska undirréttinum í Upernavik fyrir að drepa 26 ára gamla konu og 6 ára dóttur hennar. Dómurinn þykir til marks um aukna hörku af hálfu dómsvaldsins. 5.12.2005 10:30
Gistinóttum á hótelum fjölgar í október Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tvö komma fimm prósent í október miðað við sama mánuð í fyrr. Alls voru gistinæturnar 86.100 í þarsíðasta mánuði en en voru 84 þúsund í október í fyrra. 5.12.2005 10:16
Aðstoða fólk sem kemur til að huga að leiðum ástvina Starfsmenn kirkjugarðanna munu eins og undanfarin ár aðstoða fólk sem hyggst huga að leiðum ástvina sinna. Á Þorláksmessu og aðfangadag verða starfsmenn á vettvangi í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði og Hólavallagarði og aðstoða fólk eftir bestu getu. 5.12.2005 10:15
Sjálfsmorðsárás í verðslunarmiðstöð í Ísrael Að minnsta kosti fjórir létust í sjálfsmorðsárás inni í verslunarmiðstöð í borginni Netanya í Ísrael í morgun. Fjöldi fólks slasaðist í árásinni enda voru margir samankomnir inni í verslunarmiðstöðinni. 5.12.2005 10:06
Ríkisstjórnin hefði mátt hugsa sinn gang betur Það er auðvelt að færa sæmileg rök fyrir því að ríkisstjórnin hefði mátt hugsa sinn gang betur áður en ráðist var í breytingar á húsnæðisstefnunni í byrjun uppsveiflunnar árið 2003, sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs um hagstjórnarvandann í morgun. 5.12.2005 09:49
Létust þegar þak hrundi á sundhöll í Úralfjöllum Að minnsta kosti 14 manns, þar af nokkur börn, létust í gær þegar þak á sundhöll í Úralfjöllum í Rússlandi hrundi. 5.12.2005 09:45
Réðust gegn lögreglu eftir öluvunarakstur Ölvaður ökumaður, sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt í átaki sínu gegn ölvunarakstri nú á aðventunni, brást hinn versti við og sýndi lögreglumönnum mótþróa. Þeir náðu að yfirbuga hann en þá réðst sambýliskona hans á lögreglumennina, til að reyna að frelsa bóndann, sem lauk með því að hún var líka handtekin og gista þau fangageymslur. 5.12.2005 09:30
Verjendur Saddams gengu út Verjendur Saddams Hússein gengu fyrir stundu út úr réttarsalnum í mótmælaskyni. Réttarhöldin voru rétt að hefjast þegar lögfræðingarnir gengu út. 5.12.2005 09:15
Hyggjast herða innflytjendalöggjöf í Danmörku enn frekar Dönsk stjórnvöld hyggjast gera innflytjendalöggjöf sína enn strangari til þess að draga frekar úr straumi innflytjenda til landsins. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir atvinnumálaráðherra landsins sem hefur lagt til að innflytjendum frá löndum eins og Sómalíu, Írak og Palestínu verði fækkað þar sem þeim gengur illa að fá vinnu í Danmörku og verða því byrði á samfélaginu. 5.12.2005 09:15
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna fíkniefna Héraðsdómur úrskurðaði í gærkvöldi mann á þrítugsaldri í gæsluvarðhald eftir að lögregla handtók hann í fyrrinótt þegar eitt kíló af marijúana og talsvert af reiðufé fundust á heimili hans. Þar með eru þrír menn í gæsluvarðhaldi á Akureyri, allir grunaðir um sölu á fíkniefnum og hefur lögregla lagt hald á hálft annað kíló af ýmsum fíkniefnum á aðeins þremur dögum. 5.12.2005 09:00
Íranar aðeins örfáum mánuðum frá því að búa til kjarnavopn Aðeins örfáir mánuðir eru í að Íranar komi sér upp kjarnavopnum. Þetta segir Mohammad ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Ef Íranar haldi áfram að auðga úran í nokkrum kjarnorkuverum taki það þá aðeins nokkra mánuði til viðbótar að koma sér upp kjarnavopnum. 5.12.2005 09:00
Dregur úr fasteignasölu 167 íbúðir gengu kaupum og sölum í Reykjavík í síðustu viku, tuttugu færri en að meðaltali síðustu tólf vikurnar og var kaupverðið að meðaltali tveimur milljónum króna undir meðallagi, 24 milljónir en er alla jafna 26 milljónir. 5.12.2005 08:45
Komu í veg fyrir árás á dómhús Saddams Minnstu munaði að írakskir uppreisnarmenn hefðu skotið úr sprengjuvörpum á dómhúsið þar sem réttað var yfir Saddam Hussein í síðustu viku. Írökskum öryggissveitum tókst að koma í veg fyrir árásina á síðustu stundu. 5.12.2005 08:45
Slasaðist alvarlega í árekstri nærri Akranesi Farþegi í fólksbíl, sem lenti í hörðum árekstri við jeppa á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í gærkvöldi, slasaðist alvarlega og lilggur nú í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans, en er þó ekki talinn í lífshættu. Ökumaður bílsins meiddist líka en ekki eins alvarlega, en ökumaður jeppans slapp ómeiddur. 5.12.2005 08:30
Gerðu aðsúg að Allawi í mosku í gær Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks átti fótum sínum fjör að launa þegar um sextíu menn gerðu aðsúg að honum og fylgdarliði hans við Mosku í borginni Najaf í gær. Á myndum sem náðust af atburðunum sjást Allawi og fleiri hlaupa undan árásarmönnunum fyrir utan Imam Ali moskuna, þar sem þeir sóttu bænastund sjíta. 5.12.2005 08:15
Hálka eða hálkublettir í öllum landshlutum Hálka eða hálkublettir eru í öllum landshlutum samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Þoka er á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði. Flughált er á Tjörnesi, Melrakkasléttu og frá Egilsstöðum upp Jökuldal. Töluverð þoka er við ströndina á Norðausturlandi. 5.12.2005 08:08
Talið að Impregilo fari fram á milljarða til viðbótar Talið er að viðbótargreiðslur, sem ítalska verktakafyrirtækið Impregilo ætlar að fara fram á vegna óvæntra aðstæðna við jarðgangagerð við Kárahnjúka, geti numið milljörðum króna. Sigurður Arnarlds hjá Landsvirkjun segir í viðtali við Fréttablaðið að viðræður um málið séu á byrjunarstigi. 5.12.2005 08:00
Farþegar í vél sem nauðlenti héldu heim í nótt Hátt í 300 farþegar Air Bus vélarinnar, sem lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær, eftir að annar hreyfill hennar bilaði, héldu áfram för sinni til Kanada klukkan eitt í nótt. Þá kom önnur vél frá Air Canada og sótti þá, en fólkið var að koma frá Frankfurt. Væntanlega verður gert við vélina hér á landi en ekki liggur fyrir hvort skipta þar um hreyfilinn sem bilaði. 5.12.2005 07:39
Flugvélar CIA lentu 437 sinnum í Þýskalandi Flugvélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA lentu 437 sinnum á þýskum flugvöllum á árunum 2002 og 2003. Þetta kemur fram í tímaritinu Der Spiegel, sem hefur undir höndum gögn sem þýsk flugmálayfirvöld hafa afhent að beiðni vinstri flokksins á þýska þinginu. 5.12.2005 07:34
Hugðust sprengja réttarsalinn Íröksk yfirvöld skýrðu frá því í gær að þau hefðu flett ofan af samsæri uppreisnarmanna um að skjóta eldflaugum að dómssalnum þar sem réttað verður yfir Saddam Hussein í dag. 5.12.2005 07:00
Rangt handrit fór í prentun "Ég vísa þessum samsæriskenningum til föðurhúsanna sem hafðar hafa verið uppi um ástæðu þess að við förguðum þessum eintökum," segir Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu. 5.12.2005 06:45
Málamiðlanir nauðsynlegar Guðmundur Magnússon höfundur bókarinnar um Thorsættina fæst ekki til að svara því játandi eða neitandi hvort ástæða þess að fyrstu útgáfu bókar hans var fargað hafi verið kafli um fyrrverandi hjónaband Þóru Hallgrímsson. Framkvæmdastjóri Hagþenkis segir félagið ekkert muni gera í málinu þar sem höfundur hafi ekki leitað til þess. 4.12.2005 20:15
Ferðakostnaður hækkar Risnukostnaður forsætisráðuneytisins jókst um rúm áttatíu prósent í fyrra, mest allra ráðuneyta. Ferðakostnaður allra ráðuneytanna jókst samanlagt um tuttugu og níu milljónir króna á síðasta ári. Heimastjórnarafmæli og ráðherrafundur Norðurlandanna er ástæðan að sögn upplýsingafulltrúa. 4.12.2005 20:00
Guðmundur segist ekki vilja svara Framkvæmdastjóri Hagþenkis, félags höfunda fræðirita, segir félagið ekki skoða málefni Guðmundar Magnússonar og bókar hans um Thorsættina nemi höfundurinn sjálfur óski þess. Fyrsta prentun bókarinnar var fargað og nýtt handrit prentað og sett í búðir. Ástæðan mun samkvæmt heimildum NFS vera sú að í bókinni var fjallað um hjónaband Þóru Hallgrímsson og fyrrum manns hennar. Höfundur og útgefandi neita að svara því hvort það hafi verið ástæðan. 4.12.2005 19:00
Dagur til liðs við Samfylkingu Dagur B Eggertsson ætlar að ganga í Samfylkinguna fari hann í framboð til borgarstjórnar í Reykjavík næsta vor. Hann segir slaginn í borginni munu verða milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Dagur hyggst tilkynna fyrir jól hvort hann bjóði sig fram. 4.12.2005 18:30
Þróunin í heimsviðskiptum of frjálsleg Leiðtogar Frakklands og 53 Afríkuríkja segja þróunina í heimsviðskiptum vera of frjálslega. Þetta sagði hann á fundi sem haldinn var um málið um helgina. Forseti Malí sagði að viðskiptatengsl sem byggðust á jöfnuði og réttlæti væru grundvallaratriði og að gífurlegir vaxtarmöguleikar væru í landbúnaði og á fjölgun starfa í allmörgum Afríkuríkjum. Hann sagði þó að Afríkuríki nytu lítils af hagnaðinum, vegna þess að heimsmarkaður fyrir landbúnaðarvörur væri skekktur með niðurgreiðslum. 4.12.2005 16:37
Flugvél Air Canada lent á Keflavíkurvelli Flugvél flugfélagsins Air Canada lenti á Keflavíkurvelli um fjögurleytið í dag með bilaðan hreyfil, heilu og höldnu. Um borð voru tæplega 300 manns, farþegar og áhöfn. Þotan er af gerðinni Airbus 330, og var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Toronto í Kanada þegar bilunar varð vart. Ekki er vitað hvenær flugvélin heldur för sinni yfir hafið áfram. 4.12.2005 15:44
Forseta Kazakstans spáð sigri Nursultan Nazarbaíjev, sem verið hefur forseti Kazakstans í sextán ár, mun að öllum líkindum ná endurkjöri til næstu sjö ára í kosningum sem fram fara í landinu í dag. Forsetinn nýtur mikils fylgis vegna vaxandi velmegunar í Kazakstan en erlend fyrirtæki hafa fjárfest í landinu fyrir hundruð milljarða króna, aðallega í olíulindum en sérfræðingar spá því að næsta áratug verði landið meðal tíu stærstu olíuframleiðsluríkja heims. Andstæðingar forsetans hafa sakað hann um svindl í kosningunum, spillingu og einræðistilburði. 4.12.2005 15:11
Forsetinn afhendir styrki Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í gær 26 einstaklingum og fulltrúum félagasamtaka styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði Kaupfélags Eyfirðinga. Afhendingin fór fram í Listasafninu á Akureyri og samtals nam úthlutunin úr sjóðnum að þessu sinni rúmum 4,2 milljónum króna. Alls bárust 128 umsóknir um styrki en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári. Allt frá árinu 1935 hefur KEA úthlutað styrkjum til menningar-, íþrótta-, mennta- og velferðarmála í Eyjafirði og báðum Þingeyjarsýslum. Í ár hefur Menningar- og viðurkenningarsjóðurinn varið um 18 milljónum króna til verkefna á félagssvæði KEA og eru þá ótaldir styrkir við önnur tilfallandi verkefni sem nema samtals um 12 milljónum króna. 4.12.2005 14:39
Fórnarlambi enn haldið sofandi Fórnarlambi líkamsárásar á Laugarvegi í gærmorgun, er enn haldið sofandi í öndunarvél. Annar mannanna sem voru handteknir í kjölfarið, var úrskurðaður í gæsluvarðhald en hinnum var sleppt. 4.12.2005 14:37
Óttast olíuleka Óttast er að olía úr tönkum flutningaskips sem sökk úti fyrir norðvesturströnd Ítalíu í óveðri, leki í hafið en alls er um 14 þúsund lítra að ræða. Skipið lá við akkeri úti fyrir höfninni í La Spezia en mjög grunnt er þar sem skipið sökk. Skip með mengunarvarnabúnað eru komin á vettvang og haft er eftir umhverfisráðherra Ítalíu, Altero Matteoli, að ekki sé útlit fyrir að mengunarslys verði. 4.12.2005 14:20
Abbas býður páfa í heimsókn Mahmud Abbas, forseti Palestínumanna, hefur boðið Benedikt páfa sextánda, að heimsækja landið helga. Abbas sagði í lok einkaáheyrnar páfa í Páfagarði að hann væri velkominn til Jerúsalem og annarra helgistaða. Ísraelsmenn hertóku arabíska hlutann í austur Jerúsalem árið 1967 og innlimuðu hann sem hluta af höfuðborg Ísraelsríkis. Í Austur Jerúsalem er grátmúrinn, einn mesti helgistaður Gyðinga, múslima og kristinna manna. 4.12.2005 14:10
Kveikt á trénu við Austurvöll Ljósin á Óslóartrénu, sem stendur á Austurvelli í Reykjavík, verða kveikt klukkan fjögur í dag. Tréð er hefðbundin gjöf Norðmanna til Íslendinga, en rúm hálf öld er síðan Norðmenn færðu Íslendingum fyrst grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Tréð stóð við Sanderstua í Maridalen í Ósló og er rúmlega 12 metra hátt. 4.12.2005 14:09
Sex falla vegna jarðsprengju á Sri Lanka Að minnsta kosti sex hermenn féllu og þrír særðust þegar dráttarvagni sem þeir voru á var ekið á öfluga jarðsprengju í norðurhluta Sri Lanka í dag að því er varnarmálaráðuneytið greindi frá. Þetta er mesta mannfall af völdum einnar jarðsprengju sem orðið hefur síðan stjórnvöld og uppreisnarmenn úr röðum tamílatígra skrifuðu undir vopnahlé í febrúar 2002. 4.12.2005 12:35
Alþjóðlegur dagur gegn gróðurhúsaáhrifum Í dag er alþjóðlegur dagur aðgerða gegn gróðurhúsaáhrifum. Hefur því verið efnt til mótmælaaðgerða í yfir 30 löndum. Nú stendur yfir ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um loftlagsbreytingar í Montréal í Kanada og er búist við þúsundum þátttakenda þar sem og í Washington, London, Sydney og Jóhannesarborg. Fimm samtök, þar á meðal Greenpeace og Climate Crisis Coalition, hyggjast afhenda mótmælaskjal í bandaríska sendiráðinu í Montréal og er skjalið undirritað af 600 þúsund Bandaríkjamönnum sem hvetja ríkisstjórn George Bush og bandaríska þingið að leggja sitt að mörkum til að stöðvar hækkun hitastigs í andrúmslofti jarðar. 4.12.2005 12:33
Fleiri tilfelli fuglaflensu í Rúmeníu Ný tilfelli fuglaflensunnar hafa greinst í Rúmeníu. Fjórir kjúklingar í austurhluta landsins hafa greinst og er flensan af H5 stofni. Sýni úr fuglunum verða rannsökuð í Englandi til að kanna hvort um sé að ræða H5N1 afbrigði veirunnar, sem getur borist í menn. Þetta er í fjórða skiptið sem fuglaflensuveira greinist á þessu svæði frá því á fimmtudag. 4.12.2005 11:36
Ferðakostnaður forsætisráðuneytisins eykst Ferðakostnaður forsætisráðuneytisins jókst um tæp fjörutíu prósent á síðasta ári. Risnukostnaður einn og sér jókst um rúm áttatíu prósent. Ferðakostnaður allra ráðuneytanna jókst að jafnaði um 29 milljónir króna á síðasta ári. Kostnaður lækkaði hins vegar mest hjá Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns. Jóhanna spurði fjármálaráðherra ennfremur að því hvort hann teldi ástæðu til að bregðast sérstaklega við með þvi að herða sparnaðarkröfuna á ráðuneytin. Ráðherra sagði að þótt útgjöld hefðu aukist í fyrra, hefði náðst fram þrjúhundruð og tuttugu milljóna sparnaður frá því árið 2002. Því þætti honum ekki ástæða til þess. 4.12.2005 11:34
Fjölmenn mótmæli í Hong Kong Yfir eitt hundrað þúsund manns tóku þátt í fjöldagöngu í Hong Kong í dag og kröfðust fulls lýðræðis líkt og lofað hafi verið þegar Bretar fólu Kínverjum borgina í hendur fyrir átta árum. Mótmælendurnir eru ósáttir við tillögur yfirvalda um lýðræðisumbætur en samkvæmt þeim myndi nefndin sem kýs borgarstjóra, er nú er skipuð 800 mönnum sem hallir eru undir stjórnvöld í Peking, verða stækkuð um helming. Mótmælendur segja að verði þessar tillögur að veruleika þýði það í rauninni skref aftur á bak miðað við ákvæði stjórnarskrár Hong Kong, sem kveði á um fullt lýðræði. 4.12.2005 11:11