Fleiri fréttir

Risaborar nýtast vart lengur

Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur.

Risaborar nýtast vart lengur

Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur.

Vísir fjölsóttasti vefurinn

Vísir mælist nú fjölsóttasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Í liðinni viku heimsóttu 203.738 notendur Vísi en það eru rúmlega 20% fleiri notendur en í vikunni þar á undan. Þetta er í fyrsta sinn sem fjöldi notenda Vísis fer yfir 200.000 í einni viku.

Fjölmiðlamál rædd á þingi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnti í dag skýrslu fjölmiðlanefndarinnar á Alþingi og fara nú fram umræður um hana á þinginu. Ráðherra sagði mikilvægt að fram færi víðtæk og málefnaleg umræða um þær tillögur sem lagðar væru fram af fjölmiðlanefndinni og hvatti hún fjölmiðla til þess að axla ábyrgð með svipuðum hætti og stjórnmálamenn gerðu með því að ná þvertpólitískri sátt um málið.

Risaborar nýtast vart lengur

Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur.

Fischer boðið að tefla í Sofíu

Búlgarska skáksambandið hefur boðið Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, á skákmót sem haldið verður í Sofíu í maí. Þetta kemur fram á vefmiðli <em>Morgunblaðsins, mbl.is</em>. Forsvarsmenn búlgarska skáksambandsins vonast til þess að Fischer sjái sér fært að mæta en fulltrúi skáksambandsins kemur líklega fyrst til Íslands til þes að ræða möguleikann við Fischer, en hann hefur ítrekað sagt að hann hafi engan áhuga á að tefla framar.

Ný stjórn mynduð í Líbanon

Samið hefur verið um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Líbanon. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir háttsettum embættismanni þar í landi. Samkomulagið náðist á fundi Emiles Lahouds, forseta landsins, Omars Karamis forsætisráðherra og Nabihs Berris, forseta þingsins, í dag og er búist við tilkynningu þessa efnis síðar í dag.

Rekstur Valhallar boðinn út

"Það eina sem ég sé fyrir mér í þessu er að þetta verði opinber bygging sem er eingöngu fyrir gesti ríkisstjórnar og Alþingis," segir Elías V. Einarsson veitingamaður sem hefur annast rekstur Hótel Valhallar í á þriðja ár.

Friðargæslumenn enn í vandræðum

Tveir nepalskir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem starfa í Austur-Kongó, voru handteknir í gær í bæ í norðurhluta Úganda eftir að hafa reitt heimamenn til reiði með því hafa mök við unga vændiskonu. Þeir munu hafa sést fara inn á hótel með 19 ára stúlku og við það reiddust heimamenn og héldu þeim þar til lögregla kom á staðinn og færði þá í varðhald. Þeim var síðar sleppt eftir að yfirmaður þeirra hafði hlutast til um málið.

Hafa fjóra mánuði til stefnu

Ekkert olíufélaganna þriggja, Olís, Esso og Skeljungs, sem dæmd voru til greiðslu sekta vegna ólöglegs samráðs þeirra samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofunar hafa enn greitt sekt sína. Skutu öll félögin málinu fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála sem úrskurðaði einnig um sekt en lækkaði sektargreiðslur.

Ekki þvinguð til uppsagnar

Íslenska ríkið var í gær sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af bótakröfum Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, en hún fór fram á rúmar þrettán milljónir króna fyrir töpuð laun og miskabætur vegna missis þeirrar stöðu sinnar.

Segir ummæli ósmekkleg og ótímabær

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að ummæli Össurar Skarphéðinssonar formanns um að fátt nýtt komi frá framtíðarhópi flokksins séu ósmekkleg og ótímabær. Össur lét ummælin falla í Silfri Egils á Stöð 2 í gær þegar hann gagnrýndi vinnubrögð framtíðarhópsins, en Ingibjörg Sólrún fer fyrir hópnum.

Hámarksbústærðir skoðaðar

Hámarksbústærðir voru til umræðu á aðalfundi Landssambands Kúabænda síðustu helgi. Var stjórn LK falið að vinna að því að móta stefnu í þeim málu. Þórólfur Sveinsson formaður LK segir þetta einungis vera vangaveltur um það hvort heppilegt sé að hafa óhefta samþjöppunarmöguleika og hvort ástæða sé til að setja einhver mörk á það.

Ummæli borgarstjóra fráleit

"Ummæli borgarstjóra varðandi þetta mál gagnvart okkur sjálfstæðismönnum eru fráleit og eiga sér enga stoð í raunveruleikanum," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

Ítarleg rannsókn á þorskum

Hjá Hafrannsóknarstofnun er hafin rannsókn á því hvort erfðafræðilegir þættir eða umhverfisþættir hér við land eigi sök á því að sífellt minni þorskur komi í net sjómanna.

Sendu eftirlitsflugvél til Ísraels

Hisbollah-skæruliðar í Líbanon lýstu því yfir í dag að ómönnuð eftirlitsflugvél á þeirra vegum hefði flogið yfir nokkrar landnemabyggðir í norðurhluta Ísraels og komist heilu og höldnu til baka. Segjast þeir hafa gert þetta til að svara fyrir það að ísraelskar herþotur hafi ítrekað rofið lofthelgi Líbanons.

Vilja ekki HR í Vatnsmýrina

Stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,sendi frá sér ályktun í gær þar sem hún furðar sig á þeirri ákvörðun R-listans að bjóða Háskóla Reykjavíkur eitt dýrmætasta útivistarsvæði Reykjavíkurborgar, Vatnsmýrina, undir byggingu nýs húsnæðis HR.

Netsjónvarp að byrja

Útsendingar á sjónvarpsefni í gegnum Netið hefjast á vegum fjarskiptafyrirtækisins Hive fyrir sumarbyrjun en tæknilegar prófanir eru þegar hafnar. Framboð á efni mun taka stórstígum framförum þegar líður á árið. Ekki verður um framleiðslu á innlendu sjónvarpsefni að ræða. </font /></b />

Dregið úr umsóknum á morgun

Stefnt er að því að draga úr umsóknum um lóðirnar 30 í Lambaseli á morgun, fimmtudag. Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, mun þá mæta með fulltrúum sínum á skrifstofu umhverfis- og tæknisviðs Reykjavíkur og draga úr umsóknunum í viðurvist votta.

Best að borga ekki

Nokkur fyrirtæki hafa lent í vandræðum vegna sænsks fyrirtækis sem rukkar þau fyrir skráningu í gagnagrunn sinn þrátt fyrir að ekki hafi verið beðið um skráninguna.

Felldu tólf talibana í átökum

Tólf uppreisnarmenn úr röðum talibana létust í átökum við bandarískar og afganskar hersveitir í Suðaustur-Afganistan í dag. Uppreisnarmennirnir voru drepnir þegar þeir reyndu að ráða Kheyal Baaz Khan Sherzai, fyrrverandi yfirmann afganska hersins í Khost-héraði, af dögum þar sem hann var á ferðalagi nærri bænum Gardez í Paktia-héraði. Bandarískar og afganskar sveitir svöruðu árásinni úr lofti og á landi.

Féll illa á sorptunnu

Alvarlegt vinnuslys varð við Hlíðarhjalla í Kópavogi rétt fyrir hádegi í dag. Karlmaður, sem starfar fyrir gámafyrirtækið Sorpu, var að draga sorpílát upp tröppur þegar hann missti jafnvægið og féll aftur fyrir sig og lenti á ílátinu. Að sögn lögreglunnar er talið að maðurinn hafi brákast á hrygg en meiðsli hans eru þó ekki ljós á þessari stundu.

Annasamt hjá lögreglu í Kópavogi

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni í Kópavogi í allan dag. Nú rétt fyrir klukkan fimm höfðu fjórir árekstrar orðið í bænum en engin slys urðu á fólki. Þá hefur vel á annan tug ökumanna verið stöðvaður vegna hraðaksturs að sögn lögreglunnar.

Ekki færri HIV-smit í 15 ár

Fimm manns greindust með HIV-smit hér á landi á síðasta ári og hafa ekki færri greinst með veiruna síðustu 15 árin, að því er fram kemur í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur verið tilkynnt um tvö tilfelli af HIV-smiti hér á landi.

Helber tilbúningur

"Þarna gengur inn maður og staðgreiðir auglýsingu í nafni skólans en meira er ekki vitað," segir Hjalti Þorkelsson, skólastjóri Landakotsskóla.

Íslensk kaupskip með afslætti

Starfshópur úr fjármála- og samgönguráðuneytinu telur íslensk kaupskip og áhafnir ekki verða skráð á landinu í framtíðinn nema að til aðgerða verði gripið. Sex íslenskar áhafnir eru eftir. Ekkert skip. Þau voru 39 árið 1987. Eitt í fyrra.</font /></b />

Ísraelar haldi sig við vegvísinn

George Bush Bandaríkjaforseti greindi Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, frá því í dag að hann hefði áhyggjur af fjölgun landnemabyggða á Vesturbakkanum á fundi þeirra á búgarði forsetans í Texas í dag. Þá hvatti hann Sharon til þess að halda sig við hinn svokallaða vegvísi til friðar og loka ólöglegum landnemabyggðum á Vesturbakkanum.

Styrkir stöðu Húsavíkur

<font face="Helv"> </font>"Þetta staðfestir einfaldlega það sem við teljum okkur vita um vilja íbúa hér á svæðinu til að fá hingað orkufrekan iðnað," segir Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík. Hann vísar þar til könnunar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins um viðhorf íbúa á Norðurlandi til stóriðju.

Gyðingum var vísað frá Íslandi

Íslendingar vísuðu að minnsta kosti 16 Gyðingum úr landi skömmu fyrir síðari heimsstyrjöldina og sýndu því Gyðingum síst meiri samúð en Danir. Forsætisráðherra telur að fara verði varlega í að biðjast afsökunar á löngu liðnum atburðum.

Bíða dóms í Þýskalandi

Íslendingarnir tveir sem handteknir voru með mikið magn fíkniefna um borð í Hauki ÍS við leit tollayfirvalda í Bremerhaven í byrjun janúar bíða nú dóms í málinu.

Engin niðurstaða með brottkast

Engin niðurstaða liggur fyrir um hversu miklum sjávarafla er hent fyrir borð á íslenska fiskiskipaflotanum þrátt fyrir þriggja ára starf sérstakrar nefndar sjávarútvegsráðuneytisins í því máli.

Nýtt blað í burðarliðnum

Nýtt vikublað eða hugsanlega dagblað er í burðarliðnum hér á landi. Meðal þeirra sem vinna að undirbúningi þess er Karl Garðarsson, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2.

Sædýrasafn í stað kvóta

"Kvótinn er allur horfinn og að mínu mati getur stórt sædýrasafn að einhverju leyti fyllt það skarð sem það hefur skilið eftir sig," segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar. Hann hefur stórar hugmyndir um uppbyggingu sædýrasafns á staðnum og hefur þegar leitað liðsinnis þingmanna suðurkjördæmis.

Misjafnar sættir í fjölmiðlamálum

Sigur fyrir lýðræðið í landinu og sigur fyrir þingræðið! Þessi orð féllu á Alþingi í dag þegar þingmenn allra flokka lýstu sögulegri sáttargjörð með fjölmiðlaskýrslunni. Sáttartónninn stóð hins vegar ekki lengi því átök blossuðu upp síðdegis þegar umræður hófust í kjölfarið um stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið.

Kirkjan sögð þvermóðskufull

Bandarískur erkibiskup sem sagði af sér í kjölfar barnaníðingahneyksla leiddi í dag minningarþjónustu um páfa í Vatíkaninu. Fórnarlömb níðinganna segja þetta til marks um þvermóðsku kaþólsku kirkjunnar.

Framtíðarhópi gert erfitt fyrir

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að ummæli Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, um að uppskera framtíðarhóps Samfylkingarinnar verði rýr séu ótímabær og ósmekkleg. Hún segir ummæli hans gera hópnum erfitt fyrir í aðdraganda landsfundar.

Óttast smit frá moltuvinnslu

Bændur í Þykkvabænum eru ákaflega ósáttir við fyrirhugaða moltuvinnslu í nágrenni við ræktunarlönd og óttast smit. Yfirdýralæknir hefur veitt leyfi til að vinna moltu úr sláturúrgangi í tilraunaskyni en það sérkennilega er að eigendur landsins þar sem vinnslan á að fara fram voru ekki hafðir með í ráðum.

Æst körfuboltamamma í háskaakstri

Móðir og afi körfuboltamanns Snæfells lentu í átökum við stuðningsmenn Keflavíkur eftir bikarúrslitaleik liðanna. Afinn kýldi 22 ára gamlan trommara Keflavíkurliðsins. Móðirin, Maggý Hrönn Hermannsdóttir, hrækti á stuðningsmenn og hindraði för rútu þeirra á leiðinni frá Stykkishólmi til Borgarness en var stöðvuð af lögreglu.

Lofar samvinnu innan SÞ

Óvægnasti gagnrýnandi Sameinuðu þjóðanna heitir því að vera samvinnuþýður umbótasinni staðfesti Bandaríkjaþing hann sem sendiherra hjá samtökunum. Demókratar óttast að hann verði eins og fíll í postulínsverslun.

Þétt dagskrá hjá forsetahjónunum

Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú komu í opinbera heimsókn til Akureyrar í morgun. Eftir móttökuathöfn á Akureyrarflugvelli tók við þétt dagskrá þar sem forsetahjónin kynntu sér meðal annars nokkrar af helstu menntastofnunum bæjarins.

Íhaldsmenn ríða á vaðið

Breski íhaldsflokkurinn kynnti í gær stefnumál sín fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða eftir rúmar þrjár vikur. Talsmenn hinna stóru flokkanna fundu þeim flest til foráttu.

Dagblað í deiglunni

Útgáfa nýs viku- eða dagblaðs er í undirbúningi en mikil leynd hvílir yfir útgefendum þess.

Bush skammar Sharon

George W. Bush Bandaríkjaforseti hvatti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, til að hætta við áform sín um að stækka landnemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum.

Ótti um hátækninjósnir

Mikill viðbúnaður er í Páfagarði vegna kardinálafundarins í næstu viku þar sem nýr páfi verður valinn. Hafa klerkarnir ekki síst áhyggjur af því að háþróaður tæknibúnaður verði notaður til að hlera það sem fram fer á fundi þeirra í Sixtínsku kapellunni.

Pílagrímar drukkna

Í það minnsta 58 hindúar drukknuðu um helgina á trúarhátíð nærri borginni Bhopal á Indlandi.

Sjá næstu 50 fréttir