Lofar samvinnu innan SÞ 11. apríl 2005 00:01
Óvægnasti gagnrýnandi Sameinuðu þjóðanna heitir því að vera samvinnuþýður umbótasinni staðfesti Bandaríkjaþing hann sem sendiherra hjá samtökunum. Demókratar óttast að hann verði eins og naut í postulínsverslun. John Bolton verður seint sagður sérstakur aðdáandi Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur gagnrýnt samtökin harðar en flestir aðrir og lýst þeirri skoðun sinni að Bandaríkin ættu að nota Sameinuðu þjóðirnar þegar og eins og þeim hentaði. Það kom því mörgum á óvart þegar Bush forseti tilnefndi Bolton sem sendiherra hjá samtökunum og þungavigtarmenn á Bandaríkjaþingi hafa heitið því að koma í veg fyrir að hann hljóti starfann. Þeir gerðu harða hríð að Bolton þegar hann bar vitni fyrir utanríkismálanefnd þingsins í dag en sjálfur var Bolton ekki jafn yfirlýsingaglaður og áður. Hann sagði að yrði hann skipaður sendiherra myndi hann starfa náið með utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings og báðum deildum þingsins. Bush forseti og Rice utanríkisráðherra væru staðráðin í að styrkja Sameinuðu þjóðirnar og gera þær virkari. Samtökin gæfu Bandaríkjamönnum færi á að koma stefnumálum sínum áleiðis í sameiningu. Bolton sagði enn fremur að sjaldan hefði hlutverk SÞ verið brýnna á sama tíma og samtökin leituðust við að uppfylla eigin væntingar þess efnis að forða komandi kynslóðum frá stíðsáþján og endurvekja trúna á grundvallarmannréttindi og stuðla að félagslegum framförum, betri lífskjörum og auknu frelsi. Joseph Biden, fulltrúi demókrata í utanríkismálanefnd, sagði við yfirheyrslunar að Bandaríkjamenn þyrftu sterka rödd í New York sem þekkti Sameinuðu þjóðirnar og framfylgdi stefnumálum landsins á sviði frelsis. Ekki væri þörf á rödd sem líklegt væri að fólk hlustaði ekki á. Bilden sagðist óttast, vegna þess að hann þekkti orðspor Boltons og það væri vel þekkt innan SÞ, að fólk hlustaði ekki á hann. Framar öllu þyrftu Bandaríkjamenn á góðum sendiherra að halda sem hefði hæfileika til að starfa innan veggja flókinnar alþjóðastofnunar. Bilden benti enn fremur á að, að senda Bolton til New York væri eins og að senda Nixon til Kína eða öllu heldur að senda naut inn í postulínsbúð.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fleiri fréttir Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent