Erlent

Kirkjan sögð þvermóðskufull

Bandarískur erkibiskup sem sagði af sér í kjölfar barnaníðingahneyksla leiddi í dag minningarþjónustu um páfa í Vatíkaninu. Fórnarlömb níðinganna segja þetta til marks um þvermóðsku kaþólsku kirkjunnar. Bernard Law var erkibiskup í Boston þar til í desembermánuði árið 2002 þegar hann sagði af sér. Ástæðan var sú að hann hafði í raun hylmt yfir með prestum sem sakaðir voru um níðingsskap gegn börnum og hafði hjálpað þeim að flytja sig á milli sókna í stað þess að reka þá. Law baðst afsökunnar á athæfinu og sagði af sér. Skömmu síðar var hann kallaður til Rómar og gerður að erkipresti í basilíku heilagrar Maríu auk þess sem honum voru þar fengin önnur trúnaðarstörf. Í dag féll það svo honum í skaut að stýra minningarathöfn um Jóhannes Pál páfa í Péturskirkjunni í Róm og það var meira en fórnarlömb níðinganna gátu sætt sig við. Scott Steinkerchner, pílagrímur frá Boston, segir að mikill sársauki sé innan kirkjunnar þar í borg. Með því að gera Law að erkpresti séu send skilaboð þess efnis að Vatíkanið skilji ekki þann sársauka og hve mikill sársauki varð eftir í Boston þegar Law yfirgaf borgina. Barbara Blaine, forseti samtaka fórnarlamba níðinganna, bendir á að Law hafi verið skipaður í virðingarstöðu í Vatíkaninu. Samtökin telji að með því sé verið að strá salti í sárin. Nú um stundir syrgi kaþólsk fólk um allan heim og á þessari stundu ætti ekki að draga athyglina að hneyksli tengdu kynferðislegri misnotkun. Innan Páfagarðs virðist lítill skilningur á þessum umkvörtunum og Law er þar meðal helstu áhrifamanna. Hann er meðal annars einn þeirra sem velja næsta páfa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×