Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fylgjast með ferðum til Íslands Sérstaklega er leitað í skipum og flugvélum á leið til Íslands, að sögn upplýsingafulltrúa hjá tollinum í Bremerhaven, en tveir Íslendingar sitja í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi eftir að sjö kíló af fíkniefnum fundust um borð í Hauki ÍS. 12.1.2005 00:01
Ræðst af sjávarhita eða tunglstöðu "Ef raunin er sú að hrygningarfiskur sé fyrr á ferðinni hefði mér nú fundist nærtækast að tengja það skilyrðum í hafinu, svo sem sjávarhita," segir Björn Ævarr Steinarsson, fiskifræðingur og sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar í þorski og botnfiskum. 12.1.2005 00:01
Jarðgöng óháð Símasölu Ráðstöfun peninga sem fást fyrir sölu Símans hefur ekki áhrif á vegbætur sem ákveðið hefur verið að ráðast í, svo sem Héðinsfjarðargöng eða jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, að sögn Bergþórs Ólafssonar, aðstoðarmanns samgönguráðherra. 12.1.2005 00:01
Sex milljarðar í auknum kvóta Hafrannsóknastofnunin leggur til að loðnukvóti íslenskra skipa verði 780 þúsund tonn í stað 224 þúsund tonna. Útflutningsverðmæti aukningarinnar nemur að minnsta kosti 6 milljörðum króna. 12.1.2005 00:01
Hætta leit að gereyðingarvopnum Bandaríkjamenn hafa hætt leitinni að gereyðingarvopnum í Írak og bar hún engan árangur. Starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar, sem stjórnaði leit að vopnunum, er nú kominn aftur til síns heima. Eftir er að fara yfir skjöl sem fundust í Írak en ekki er búist við að þau breyti miklu um niðurstöðuna. 12.1.2005 00:01
Kostnaðarauki þar sem síst skyldi Húshitunarkostnaður eykst til muna á svæðum þar sem kynt hefur verið með rafmagni eftir gildistöku nýrra raforkulaga um áramót. Þá óttast fiskeldisfyrirtæki að kostnaður stóraukist. Sveitarfélög þar sem ekki nýtur jarðhita sjá fram á stóraukinn kostnað. 12.1.2005 00:01
Ókeypis Opera í háskólana Norska vafrafyrirtækið Opera Software tilkynnti í gær að æðri menntastofnanir gætu fengið ókeypis hugbúnaðarleyfi fyrir netvafra fyrirtækisins. Þetta er sagt gert til að mæta kröfum nemenda og háskóla um öruggt netvafur. 12.1.2005 00:01
Telur sáttinni ógnað Alþýðusamband Íslands telur sátt milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins ógnað með alvarlegum hætti vegna deilna í tengslum við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo. Þetta kemur fram í greinargerð sem ASÍ hefur birt vegna málefna Impregilo, en sambandið afhenti félagsmálaráðherra greinargerðina á fundi á mánudag. 12.1.2005 00:01
Hættir leit að gjöreyðingarvopnum Bandaríkjamenn eru hættir leit sinni að gjöreyðingarvopnum í Írak. Þetta hafa bandarískir embættismenn staðfest við fréttamenn CNN og BBC sjónvarpsstöðvanna. Áfram verður þó farið í gegnum skjöl sem meðlimir þeirrar sveitar sem leitað hafa að gjöreyðingarvopnum hafa undir höndum. 12.1.2005 00:01
Fyrra mat gildir ekki fyrir Alcoa Álver Alcoa í Reyðarfirði verður að fara í nýtt umhverfismat. Héraðsdómur Reykjavíkur ómerkti í dag úrskurð umhverfisráðherra um ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrra mat á álveri, sem Norsk Hydro hugðist reisa, gilti einnig fyrir Alcoa. Hjörleifur Guttormsson, sem stefndi ríkinu og Alcoa, fagnar niðurstöðunni. 12.1.2005 00:01
Ráðuneyti og Alcoa áfrýja bæði Umhverfisráðuneytið og Alcoa á Íslandi hafa ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms vegna álversins í Reyðarfirði til Hæstaréttar. Ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis telur dóminn rangan. 12.1.2005 00:01
Breiðþota Atlanta flytur birgðir Hundruð tonna af hjálpargögnum berast daglega til flóðasvæðanna í Asíu. Breiðþota frá flugfélaginu Atlanta tekur þátt í flutningunum en hún flýgur með birgðir til Srí Lanka. 12.1.2005 00:01
Vigdís verndari Neyðarhjálparinnar Það er jafnan forseti Íslands sem fenginn er til að vera verndari þegar stórum landssöfnunum er hleypt af stokkunum. Í gær gerðist það hins vegar að fyrrverandi forseta, Vigdísi Finnbogadóttur, var fengið hlutverkið en ekki Ólafi Ragnari Grímssyni. 12.1.2005 00:01
Evrópuþing samþykkir stjórnarskrá Evrópuþingið í Strassborg samþykkti í dag fyrstu stjórnarskrá Evrópusambandsins. Andstaða við stjórnarskrána er hins vegar mikil í mörgum aðildarríkjunum og alls óvíst að þau samþykki hana. 12.1.2005 00:01
Mikið tap vegna drollaraskapar Ný innisundlaug var opnuð í Salaskóla í Kópavogi í dag, einu og hálfu ári á eftir áætlun. Aðalverktaki verksins var lýstur gjaldþrota í síðasta mánuði og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir bæjarfélagið hafa tapað að minnsta kosti eitt hundrað milljónum króna á þessum drollaraskap. 12.1.2005 00:01
Búist við að ísjakar skelli saman Útlit er fyrir að tveir risastórir borgarísjakar rekist hvor á annan við suðurskautið á næstu dögum. Enginn veit með vissu hvað þá gerist. Annar borgarísjakinn, sem gengur undir nafninu B-15A, er stærsti ísjaki sem nokkru sinni hefur verið mældur. Hann er um 160 kílókmetrar að lengd, 35 kílómetrar á breidd og vegur líklega nokkrar milljónir tonna. 12.1.2005 00:01
Reyðarál í umhverfismat Umhverfisráðuneytið hefur þegar ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær, um að álver Reyðaráls þurfi að sæta umhverfismati. Með dómnum var úrskurði umhverfisráðherra um að álver Reyðaráls, fyrir allt að 322 þúsund tonna ársframleiðslu þyrfti ekki að sæta umhverfismati dæmdur ómerkur, að kröfu Hjörleifs Guttormssonar. 12.1.2005 00:01
Án starfsleyfis Hjörleifur Guttormsson segir að meta þurfi framkvæmd Reyðaráls upp á nýtt með dómi héraðsdóms Reykjavíkur um að Reyðarál þurfi að sæta umhverfismati. Með því þurfi að vinna þær leyfisveitingar sem byggja á mati á umhverfisáhrifum upp á nýtt og Reyðarál sé því í raun án starfsleyfis. 12.1.2005 00:01
Sundlaug undir kostnaðaráætlunum Kostnaður við Sundmiðstöðina í Laugardal var sjö prósentum undir frumáætlun. 12.1.2005 00:01
Bíll fastur í snjóflóði Ökumaður keyrði inn í snjóflóð rétt norðan við Sauðanes í Ólafsfjarðarmúla um hádegi í gær. 12.1.2005 00:01
Hansína vill ekki klórgasið Hansína Björgvinsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, telur að Mjöll Frigg í Vesturvör í Kópavogi fái ekki starfsleyfi til klórframleiðslu. Enginn vilji sé til að veita þeim leyfi til að vinna með klórgas á svæðinu. 12.1.2005 00:01
Hús rýmd vegna snjóflóðs Íbúar úr þremur húsum í Reynishverfi í Mýrdal yfirgáfu heimili sín í gærkvöldi að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. Í gærkvöldi féll snjóflóð í grennd við bæinn Garða í Reynishverfi og var þá ákveðið að rýma Garða og tvö hús í viðbót. Ekki hefur frést af frekari snjóflóðum á svæðinu í nótt. 11.1.2005 00:01
Gríðarmikil aurskriða í Kaliforníu Gríðarmikil aurskriða féll yfir nokkur hús í suðurhluta Kaliforníufylkis í gær með þeim afleiðingum að tveir létust og að minnsta kosti tólf slösuðust. Skriðan reif með sér tré og runna og skemmdi á annan tug húsa og fjölda bíla. Björgunarsveitir kemba nú svæðið í leit að fólki sem kann að hafa grafist undir í leðjunni. 11.1.2005 00:01
Náði naumlega inn til lendingar Flugmaður á eins hreyfils bandarískri vél, sem var að koma hingað til lands frá Grænlandi í gærkvöldi, náði naumlega inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa sent út neyðarkall þegar hann var rúmar hundrað sjómílur vestur af Keflavík. Þá var vélin að missa hæð vegna gangtruflana. 11.1.2005 00:01
Júsjenkó lýstur sigurvegari Viktor Júsjenkó hefur formlega verið lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Úkraínu sem fram fóru á annan dag jóla. Yfirkjörstjórn í Úkraínu hefur staðfest að Júsjenkó hafi hlotið rétt tæp 52% atkvæða en keppinautur hans, Viktor Janúkovítsj, hafi hlotið rúmlega 44%. 11.1.2005 00:01
Bjargaði ófrískri úr ljónskjafti Fyrir 25 árum náði ljón í Sædýrasafninu í Hafnarfirði taki á ungri, óléttri konu sem þar var gestur. Munaði engu að ljónið næði að rífa hana í sig þegar ungur starfsmaður safnsins greip til sinna ráða og bjargaði konunni. Maðurinn hét Hákon Eydal og var þá tvítugur. 11.1.2005 00:01
Snjóflóð lokaði veginum Snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð í gærkvöldi og lokaði þjóðveginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Vegna frekari flóðahættu var ekki ráðist í að ryðja veginn í gærkvöldi en nú er orðið logn og blíða á svæðinu og vegagerðarmenn eru búnir að opna veginn. 11.1.2005 00:01
Sex lögreglumenn fórust Sex írakskir lögreglumenn fórust og margir særðust, þar af sumir lífshættulega, þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Skæruliðar gera nú harða hríð að írökskum lögreglumönnum í tilraun sinni til að hafa truflandi áhrif á þingkosningar í landinu um mánaðamótin. 11.1.2005 00:01
Abbas réttir sáttarhönd Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínu, hefur þegar lýst því yfir að hann vilji rétta Ísraelsmönnum sáttarhönd og hefja friðarviðræður á nýjan leik. Bush Bandaríkjaforseti hefur boðið Abbas að koma í Hvíta húsið til viðræðna, nokkuð sem Jassir sáluga Arafat var aldrei boðið. 11.1.2005 00:01
Halldór og Davíð fá sér BMW Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Davíð Oddsson utanríkisráðherra hafa báðir fengið sér nýja ráðherrabíla. Deila þeir smekk í þetta sinn því þeir fengu sér eins bíla; BMW 730 Li. Sú tegund af þýska eðalvagninum er flokkuð sem viðhafnarútgáfa og er lengri en venjulegri bílar af þessari gerð. 11.1.2005 00:01
Löglegar aðgerðir í Abu Ghraib Lögmaður eins hermannanna bandarísku, sem ákærðir eru fyrir að misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak, segir ekkert ólöglegt við aðgerðir hermannanna. Skjólstæðingur hans, Charles Graner, er meðal annars sakaður um að hafa skipað föngum að leggjast allsberir hver ofan á annan og að hafa haft þá í hundaól. 11.1.2005 00:01
Skert læknisþjónusta í Eyjum Vegna fjárhagsþrenginga Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hefur framkvæmdastjóri ákveðið að skerða læknisþjónustu stofnunarinnar við bæjarbúa að ýmsu leyti á þessu ári. Þetta kemur fram í umsögn frá læknaráði heilbrigðisstofnunarinnar og Eyjar.net greinir frá. 11.1.2005 00:01
Ótryggt ástand í Aceh-héraði Stjórnvöld í Indónesíu hafa bannað hjálparstarfsmönnum að fara án sérstaks leyfis inn á nokkur svæði í Aceh-héraði sem hafa orðið illa úti í hamförunum á annan dag jóla. Herinn segist ekki geta tryggt öryggi fólksins en í Aceh-héraði hefur undanfarna áratugi staðið yfir blóðug barátta stjórnarhersins og sjálfstæðissinna í héraðinu. 11.1.2005 00:01
Enginn póstur mánuðum saman Íbúar Ascenion-eyja í Suður-Atlantshafi hafa nánast engan póst fengið síðan í október. Eyjan heyrir undir Bretland en póstþjónustan þar í landi hefur sent póstinn af misgáningi til Suður-Ameríku, m.a. til höfuðborgar Paragvæ sem heitir Assuncion. 11.1.2005 00:01
Teknir með 10 kíló af hvítu efni Tveir íslenskir sjómenn af togaranum Hauki ÍS hafa verið úrskurðaðir í allt að sex mánaða gæsluvarðhald eftir að u.þ.b. tíu kíló af hvítu fíkiniefni fannst í fórum þeirra í Þýskalandi á fimmtudag. 11.1.2005 00:01
Vilja 400 milljarða í hjálparstarf Sameinuðu þjóðirnar vilja að þjóðir heims leggi fram sem svarar 400 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Asíu. Þegar hafa safnast rúmlega 250 milljarðar. Rætt verður í dag hvernig fénu er best varið og hvernig hægt verði að tryggja að það renni raunverulega til hjálparstarfs. 11.1.2005 00:01
Neyðarhjálp úr norðri hefst í dag Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri“ fyrir þá sem lifðu af hamfarirnar í Asíu hófst í dag. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er verndari söfnunarinnar. Auk almennings leggja þrjár sjónvarpsstöðvar, þrjár verslunarmiðstöðvar, níu útvarpsstöðvar, þrjú dagblöð, listamenn og fyrirtæki sitt af mörkum til að styðja neyðarstarfið. 11.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta liðin hjá Íbúar í tveimur íbúðarhúsum af þremur á bæjum í Reynishverfi í Mýrdal, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi, fengu að snúa aftur heim fyrir stundu. Fólkið rýmdi hús sín að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. 11.1.2005 00:01
Með kíló af kókaíni innvortis Tæplega þrítugur Ungverji hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að röntgenmyndataka leiddi í ljós að áttatíu fíkniefnahylki voru í meltingarvegi hans við komuna til landsins frá París þann 30. desember síðastliðinn. Eftir að hylkin voru gengin niður af honum kom í ljós að þau innihéldu tæpt kíló af mjög hreinu kókaíni. 11.1.2005 00:01
Niðurstaða um mánaðamótin Stefnt er að því að niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna verðsamráðs olíufélaganna liggi fyrir um mánaðamótin. Formaður nefndarinnar segir ekkert óvænt hafa komið fram í málinu á tólf tíma löngum fundi með lögmönnum olíufélaganna í gær. 11.1.2005 00:01
Aðallega þörf á peningum Enginn skortur er á hjálpargögnum eða hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðunum á Indónesíu. Fyrst og fremst er þörf á peningum til framtíðaruppbyggingar á hamfarasvæðunum segir Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða krossins. 11.1.2005 00:01
Íslenskur sjávarútvegur viðmiðið Breski Íhaldsflokkurinn hefur tekið upp nýja sjávarútvegsstefnu sem meðal annars byggist á reynslu Íslendinga í sjávarútvegi. 11.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar Hálka og vetrafærð er á landinu. Búið er að moka Klettsháls og Ísafjarðardjúp. Þæfingur er á Þverárfjalli, éljagangur á Öxnadalsheiði, á Ausfjörðum er Öxi ófær og snjóþekja og éljagangur er á Suðurlandi. 11.1.2005 00:01
Inflúensa herjar á landsmenn Inflúensa sem fyrst varð vart um miðjan desember er komin á flug hér á landi og er mikið um veikindi meðal landsmanna. Inflúensan er af svokölluðum A-stofni. Helstu einkenni hennar eru að menn veikjast snögglega og henni fylgja meðal annars beinverkir, hálsverkir og hósti og talsvert hefur verið um kviðóþægindi hjá börnum. 11.1.2005 00:01
Sharon ræddi við Abbas Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hringdi fyrr í dag í Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseta Palestínu, til að óska honum til hamingju með sigurinn í kosningunum á sunnudag. Að sögn palestínsks ráðamanns ræddu þeir saman í um tíu mínútur en hann vildi ekki láta uppi hvert umræðuefnið var. 11.1.2005 00:01