Innlent

Hús rýmd vegna snjóflóðs

Íbúar úr þremur húsum í Reynishverfi í Mýrdal yfirgáfu heimili sín í gærkvöldi að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. Í gærkvöldi féll snjóflóð í grennd við bæinn Garða í Reynishverfi og var þá ákveðið að rýma Garða og tvö hús í viðbót. Ekki hefur frést af frekari snjóflóðum á svæðinu í nótt.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×