Kostnaðarauki þar sem síst skyldi 12. janúar 2005 00:01
Kostnaður vegna húshitunar með rafmagni gæti aukist um 30 þúsund krónur á ári í þéttbýli og upp undir 40 þúsund krónur í dreifbýli eftir gildistöku nýrra raforkulaga, að mati Tryggva Þórs Haraldssonar, forstjóra RARIK. Þá telja fiskeldisstöðvar að aukinn rafmagnskostnaður gæti numið tugum prósenta. Elvar Árni Lund, sveitarstjóri í Öxarfjarðarhreppi, segist hafa þungar áhyggjur af því hvaða áhrif breytt rekstrarskilyrði Silfurstjörnunnar gætu haft á sveitarfélagið. "Þetta er stór vinnustaður og snertir okkur mikið," sagði hann. Þá telur Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Raufarhöfn, að ný raforkulög kunni að setja verulegt strik í rekstur sveitarfélaga þar sem ekki nýtur hitaveitu. "Mér sýnist hægt að búast við um 25 prósenta hækkun á rafmagnskostnaði þar sem engrar niðurgreiðslu nýtur," sagði hún en áréttaði að enn væri verið að skoða málið og útreikningar ekki endanlegir. "Þessir rekstarörðugleikar virðast hins vegar engan endi ætla að taka," segir hún. Elvar Árni segir áhrif nýju raforkulaganna hafa verið rædd á fundi með þingmönnum kjördæmisins í haust, en þá hafi hækkunin verið fyrirséð, sem og áhrif á afkomu fiskeldisins. "En það hefur ekkert svar borist frá þeim ennþá," sagði hann og taldi kostnaðarauka vegna nýrra raforkulaga koma niður þar sem síst skyldi, á svæðum sem ekki hefðu notið þess að vera með hitaveitu. "En svo felast vonandi í þessu tækifæri líka," bætti hann við og sagði vonir standa til að virkja mætti lághitasvæði í sveitinni með sömu tækni og beitt hafi verið hjá Orkuveitu Húsavíkur. "Þannig gætum við selt rafmagn inn á Landsnetið." Forstjóri RARIK segir aukningu húshitunarkostnaðar ráðast af því að ekki megi lengur færa á milli kostnað eftir notkun rafmagnsins og gefa þannig afslátt til húshitunar. "Ríkið hefur hins vegar greitt niður rafhitun og eru til þess um 900 milljónir á fjárlögum," segir Tryggvi, en Orkustofnun hefur umsjón með greiðslunum. "Hækkunin er nokkuð mikil, en á móti kemur lækkun hjá almennum notendum og atvinnulífinu," sagði hann og benti á að stjórnvöld gætu einnig ákveðið auknar niðurgreiðslur og jafnað þannig kostnað. "En það er nokkuð sem við ráðum ekki við."
Fréttir Innlent Mest lesið Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Fleiri fréttir Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Sjá meira