Fleiri fréttir

Ríkið sýknað af 11 milljóna kröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun íslenska ríkið af rúmlega ellefu milljón króna skaðabótakröfu erfingja konu sem svipt var fjárræði. Konan lést árið 2000 en sýslumaður skipaði henni lögráðamann fyrir tólf árum sem hafði dregið sér hluta af fé hennar.

Bretunum sleppt frá Guantanamo

Bandaríska varnarmálaráðuneytið greindi fá því í dag að ákveðið hefði verið að sleppa fljótlega síðustu fjórum Bretunum, og einum Ástrala, sem verið hafa í haldi í hinu alræmda fangelsi í Guantanamo á Kúbu. Mennirnir hafa verið í haldi vegna gruns um aðild að hryðjuverkjum en það er loks nú, eftir margra mánaða samningaþóf, sem þeim verður sleppt.

Fjárhagsáætlunin í uppnámi

Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er í uppnámi eftir að Skipulagsstofnun vísaði aðalskipulagstillögu meirihluta Sjálfstæðismanna heim í hérað á ný. Í fjárhagsáætlun 2005, sem samþykkt var 24. nóvember síðastliðinn með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna, er ráðgert að selja land Hrólfskálamels og Suðurstrandar og er áætlað söluverð 350 milljónir króna.

Nýr heimavarnarráðherra BNA

George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi í dag Michael Chertoff í embætti heimavarnarráðherra í stað Toms Ridge. Chertoff hefur starfað sem dómari við bandarískan áfrýjunardómstól og meðal annars tekið þátt í að móta stefnu Bandaríkjastjórnar gagnvart hryðjuverkum í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York og Washington 11. september 2001.

Í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi

Tveir íslenskir sjómenn hafa verið úrskurðaðir í að minnsta kosti sex mánaða gæsluvarðhald eftir að lögreglan í Bremerhaven lagði hald á þrjú og hálft kíló af kókaíni og annað eins af hassi í fórum þeirra. Þeir hafa neitað allri samvinnu við lögreglu.

Litlu þorpin verða útundan

Mikil áhersla er lögð á að koma ferðamannastöðum á Taílandi í samt lag sem fyrst. Í litlu þorpunum í kring, þar sem engir ferðamenn koma, vinna íbúarnir hins vegar þrekvirki upp á eigin spýtur við að endurreisa þorp sín með lítilli hjálp þar sem hún beinist öll að vinsælu fjölförnu stöðunum.

Ráðuneytisstjórar ganga í málið

Ákveðið hefur verið að allir ráðuneytisstjórarnir í stjórnarráðinu fari yfir stöðu mála á Kárahnjúkum og gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar og komi með tillögur um það hvort og þá hvað mætti fara til betri vegar.

Alþjóðlegur stuðningur í glímunni

Fulltrúar ítölsku verkalýðsfélaganna og Alþjóða byggingasambandsins koma til Íslands í næstu viku til að styðja íslenska verkalýðshreyfingu. Reynt verður að ná alþjóðlegu samkomulagi við Impregilo. </font /></b />

Ígildi góðrar starfslokagreiðslu

Mikill munur er á greiðslu lífeyris til opinberra starfsmanna og launþega á almennum markaði. Munurinn getur verið ígildi 10-20 milljóna króna starfslokagreiðslu. </font /></b />

Skattskyldan er tvímælalaus

Enginn vafi leikur á því að portúgalskir leigustarfsmenn Impregilo eigi að borga skatta á Íslandi, að sögn Indriða H. Þorlákssonar ríkisskattstjóra.

Mikil loðnuveiði fyrir austan

Miklu magni af loðnu hefur verið landað á Austfjörðum undanfarna daga. Fyrstu loðnunni var landað 5. janúar í Neskaupstað. Gunnþór Ingvarsson, aðstoðarmaður forstjóra hjá Síldarvinnslunni, segir að veiðin líti vel út.

Tillögur um framkvæmdastjóra

Starfshópur á vegum borgarstjóra hefur lagt til að Óskar Dýrmundur Ólafsson, Ragnar S. Þorsteinsson, Hafdís Gísladóttir og Aðalbjörg Traustadóttir verði ráðin framkvæmdastjórar nýrra þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur rann út 28. nóvember og bárust 67 umsóknir.

Dýrara í Bláfjöll

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hækkaði um áramótin gjöld fyrir skíðaiðkun í Bláfjöllum. Daggjaldið verður 1.200 krónur á dag fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn þangað til að ný stólalyfta verður tekin í notkun í febrúar. Þá hækka daggjöld á virkum dögum í 1.300 krónur og í 1.500 krónur um helgar.

Tímasetning landsfundar enn óráðin

Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar mun ákveða það í kringum næstu mánaðamót hvort landsfundur flokksins fari fram í vor eða haust. Málið var rætt á fundi framkvæmdastjórnarinnar í fyrradag en ákvörðun var frestað til næsta fundar.

Farsímanotkun sögð hættuleg börnum

Börn yngri en átta ára eiga ekki að nota farsíma að mati William Stewart, formanns breskrar nefndar sem fjallar um geislavarnir. Að hans mati stafar börnum hætta af geislun frá símunum þrátt fyrir að það hafi ekki verið sannað.

Hrapaði næstum í sjóinn

Bandarískum flugmanni tókst að lenda heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir að flugvél hans missti afl. Hann sveif hátt í fjörutíu sjómílur áður en honum tókst að ræsa mótorinn aftur. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins.

Gætu fengið fimmtán ára fangelsi

Tveir skipverjar Hauks ÍS hafa verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald í Þýskalandi. Tuttugu til þrjátíu tollverðir og lögreglumenn með fíkniefnaleitarhunda gerðu innrás í skipið í Bremerhaven þar sem afla skipsins hafði verið landað. </font /></b />

Veit ekki um afdrif margra vina

Renuka Perera, starfsmaður Alþjóðahússins, er frá Sri Lanka en hún hefur enn ekki heyrt um afdrif margra ættingja sinna. Systir Renuku og nánasti ættingi á Sri Lanka er á lífi en heimili hennar eyðilagðist í flóðbylgjunni.

Íslendingar þekkja hamfarir

Neyðarhjálp úr norðri nefnist sameiginlegt átak í landssöfnun sem formlega hófst í gær vegna hamfaranna í Asíu. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, er verndari söfnunarinnar.

Nefnd skoðar ásakanir á Impregilo

Sérstakri nefnd ráðuneytisstjóra verður falið að rannsaka þær ásakanir sem hafa komið fram á verktakafyrirtækið Impreglio. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun en alls heyra umsvif fyrirtækisins hér á landi undir tíu ráðuneyti.

Metútgjöld til heilbrigðismála

Bandaríkjamenn hafa aldrei varið hærra hlutfalli af þjóðartekjum í heilbrigðismál en árið 2003. Alls vörðu þeir 1,7 billjónum dollara, andvirði um 108 billjóna (með tólf núllum) króna. Þetta nemur 15,3% af vergri þjóðarframleiðslu og er það í fyrsta skipti sem útgjöld til heilbrigðismála fara yfir fimmtán prósent af vergri þjóðarframleiðslu.

Forsetinn brást þjóð sinni

Levy Mwanawasa, forseti Afríkuríkisins Sambíu, sagðist í viðtali við BBC hafa brugðist þjóð sinni. Hann ætlar þó ekki að segja af sér. "Því miður gerðu Sambíumenn mistök með því að kjósa mig forseta, þeir sitja uppi með mig," sagði hann í viðtalinu.

Abbas og Sharon ætla að hittast

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti heimastjórnar Palestínu, ræddust í gær við í síma og samþykktu að funda saman innan skamms. Þó engin dagsetning hafi verið ákveðin er búist við því að fundur þeirra verði haldinn innan hálfs mánaðar.

Helftin sátt við Bush

Naumur meirihluti Bandaríkjamanna er sáttur við frammistöðu George W. Bush Bandaríkjaforseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir CNN og dagblaðið USA Today. 52 prósent eru ánægð með frammistöðu hans en 44 prósent óánægð.

Brown vinsælli en Blair

Fylgi breska Verkamannaflokksins myndi aukast verulega ef Gordon Brown fjármálaráðherra tæki við leiðtogahlutverkinu af Tony Blair forsætisráðherra. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir dagblaðið The Independent og birt var í gær.

1,3 milljarðasti Kínverjinn fæddur

Kínverjar eru orðnir 1,3 milljarðar talsins og upphófst mikið fjölmiðlafár þegar tímamótabarnið, Zhang Yichi, fæddist síðasta fimmtudag. Í kjölfarið buðu fyrirtæki foreldrum hans gull og græna skóga fyrir að láta hann koma fram í auglýsingum, svo sem fyrir bleyjur og þurrmjólk, að því er BBC greinir frá.

Varað við hamfarasvindlurum

FBI hefur varað fólk við því að svindlarar hafi sett upp síður til þess að hafa fé af fólki undir því yfirskyni að peningarnir eigi að renna til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna náttúruhamfaranna í Asíu, peningarnir nýtist hins vegar aldrei þeim sem á þurfa að halda heldur svindlurunum sem féfletta fólk með þessum hætti.

Bakkaði eftir mótmæli Impregilo

Drög að reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga sem var afhent Árna Magnússyni félagsmálaráðherra í júní hefur enn ekki verið birt. Þar var meðal annars tekið harðar á reglum um útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga. Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður Impregilo skilaði inn umsögn til félagsmálaráðuneytisins þar sem hann segir reglugerðina vera óraunhæfa.

Davíð í mánaðarfrí

Davíð Oddsson utanríkisráðherra er farinn í frí frá utanríkisráðuneytinu í tæpan mánuð. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 hyggst ráðherrann dvelja sér til hressingar í útlöndum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gegnir störfum ráðherrans á meðan.

Átta létu lífið í skógareldum

Að minnsta kosti átta létu lífið í skógareldum í Ástralíu í dag. Meðal látinna eru tvö börn. Sjö manna til viðbótar er saknað og fjöldi húsa hafa orðið eldinum að bráð. Þeir sem létust voru að reyna að flýja eldhafið í bílum sínum. Móðir og tvö börn fundust látin á veginum.

Dropinn að verða æ dýrari

Síðustu fimm mánuði hefur meðalverð á mjólkurlítra í kvótaviðskiptum bænda hækkað um rúm 17 prósent. Fyrsta janúar síðastliðinn var meðalverð á lítra 308 krónur, en var í byrjun september 263 krónur.

Berst fyrir frelsi hugbúnaðar

Richard M. Stallman, hugbúnaðarfrömuður og baráttumaður gegn einkaleyfisbundnum hugbúnaði hélt á mánudag og þriðjudag tvo fyrirlestra í Kennaraháskóla Íslands. Stallmann er stofnandi "Free Software Foundation" og stofnandi GNU verkefnisins.

Minnast þeirra sem fórust

Næsta sunnudag verða liðin tíu ár frá því að fjórtán manns biðu bana í Súðavík þegar snjóflóð féll á bæinn. Af þessu tilefni verður haldin minningarguðsþjónusta í íþróttahúsinu í Súðavík og hefst hún klukkan tvö á sunnudaginn.

Gatnamótin færast til norðurs

Gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar færast til um 1,5 kílómetra til norðurs þegar byggð verða ný mislæg gatnamót. Þá verður lagður nýr vegkafli í tengslum við breytinguna sem verður um þriggja kílómetra langur.

Órólegur snjór miðað við magn

Meira hefur verið um snjóflóð á Vestfjörðum undanfarið en snjódýptartölur segja til um, að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Fordæmalaus neyðaraðstoð

Þjóðir heims hafa heitið 320 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum. Aðstoð af þessari stærðargráðu á sér ekkert fordæmi og hefur komið í veg fyrir hungur og farsóttir á hamfarasvæðunum, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Stærsta áhyggjuefnið er að tryggja að öllu söfnunarfénu verði varið í þágu fórnarlambanna.

Óbreyttar veiðiheimildir

Botnfiskveiðar Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á þessu ári frá því sem verið hefur. Þetta var meðal niðurstaðna viðræðna landstjórnarmannsins Björns Kalsös, sem fer með sjávarútvegsmál í Færeyjum og Árna M. Mathiesens sjávarútvegsráðherra á mánudag, en þeir funduðu í Reykjavík til að ræða fiskveiðisamning Færeyja og Íslands.

Fjórir buðu í stálvírinn

Fimm tilboð bárust Landsvirkjun í stálvír fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4, en þau voru opnuð á mánudag. Hæsta boð kom frá Westfälische Drahtindustrie GmbH upp á 71,4 milljónir króna, en það var það eina sem var yfir kostnaðaráætlun.

Hampiðjan til Litháens

Hundrað störf hafa verið lögð af í Reykjavík við flutning verksmiðju Hampiðjunnar til Litháens. Þetta er tæpur fjórðungur áætlaðra starfa í álverinu á Reyðarfirði.

Ölgerðin kærir

Ölgerð Egils Skallagrímssonar hefur kært úrskurð Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur vegna banns við dreifingu á drykknum Kristal Plús.

Álagning lækkar

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær var ákveðið að halda aukafund á mánudag til að ræða frekar lækkun álagningar fasteignaskatts. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að allir hafi verið sammála um að lækka álagningu, en fram á mánudag verði farið yfir tölur um hversu mikið eigi að lækka.

Álagning hækkar ekki

Á morgun mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri leggja fyrir borgarráð tillögu um að álagningarprósenta fasteignaskatts muni ekki hækka, líkt og gert er ráð fyrir samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar sem samþykkt var í desember.

Segir fjármálin í uppnámi

Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við tillögu bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi að aðalskipulagi er boðað frekara samráðs við íbúa um skipulagsmál.

Sértekjurnar skipta sköpum

Samkvæmt rekstraruppgjöri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) fyrir tímabilið janúar til nóvember í fyrra er afkoman í heildina í samræmi við fjárlög.

Uppbyggingarstarfið gríðarlegt

Ágætlega gengur að koma hjálpargögnum til flestra hamfarasvæðanna í Asíu, en uppbyggingarstarfið sem blasir við er gríðarlegt. Á Srí Lanka þurfa um tvö hundruð þúsund fjölskyldur á aðstoð að halda og enn er verið að grafa látna. Fréttamaður Stöðvar 2, Ingólfur Bjarni Sigfússon, er staddur á eynni.

Sjá næstu 50 fréttir