Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fremur dræmt í Konukoti Aðsókn að Konukoti, athvarfi fyrir heimilislausar konur í Reykjavík var dræmari en við hafði verið búist yfir jólahátíðina, að sögn Brynhildar Bárðardóttur verkefnisstjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, sem rekur athvarfið. 29.12.2004 00:01
Heytugga bjargar hrossunum Það er þjóðráð að gefa hrossum á húsi heytuggu rétt áður en flugeldaskothríðin hefst um áramót, segir Björgvin Þórisson dýralæknir. 29.12.2004 00:01
Mörg snjóflóð hafa fallið í dag Mörg snjóflóð, allt að 25 metra breið og þriggja metra djúp, hjafa fallið á Súðavíkurveg og Óshlíðarveg eftir hádegi og eru báðir vegirnir enn lokaðir vegna hættu á frekari flóðum. Engin vegfarandi var hætt komin þegar flóðin féllu, en þau eru blaut og þung að sögn vegagerðarmanna. 29.12.2004 00:01
Landsframleiðsla vex Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um tæplega 7,5 prósent á síðasta ársfjórðungi ársins, samkvæmt tölum Hagstofunnar, sem er mun meiri hagvöxtur á einum ársfjórðungi en verið hefur undanfarin þrjú ár. Landsframleiðslan virðist hinsvegar að mstu leiti, eða sem nemur 5,8 prósentum, vera knúin upp af aukinni einkaneyslu. 29.12.2004 00:01
Flughálka í Árnessýslu Björgunarsveit frá Laugarvatni hefur verið kölluð út til að aðstoða fólk í bílum í uppsveitum Árnessýslu sem kemst hvorki lönd né strönd vegna flúgandi hálku og ísingar á öllum vegum. Margir bílar hafa runnið út í kanta og hálfvegis útaf, en hvergi hafa orðið slys né umtalsvert eignatjón. 29.12.2004 00:01
Biðlaunum mótmælt Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs telja biðlaunarétt í samningi bæjarins við Hansínu Björgvinsdóttur bæjarstjóra í engu samræmi við starfstíma og aðrar venjur í þessum efnum. Hansína á að fá einn mánuð í biðlaun þegar hún lætur af starfinu eftir aðeins sex mánuði og Gunnar Birgisson tekur við. 29.12.2004 00:01
Sjórinn fullur af börnum Hundruð norrænna foreldra leita að börnum í spýtnabraki og líkhrúgum. Skurðaðgerðir fara fram með skítugum hnífum. Svíar segja ástandið á hamfarasvæðunum líkast helvíti á jörð. Þeir krefjast þess að utanríkisráðherrann segi af sér. </font /></b /> 29.12.2004 00:01
Minna um kolmunna Tæplega 420 þúsund tonn veiddust á kolmunna á þessu ári, sem er umþaðbil 80 þúsund tonna minni afli en í fyrra, en veiðunum er lokið í ár. Aflaverðmætið er hlutfallslega enn minna, eða um tveir og hálfur milljarður á móti 3,4 milljörðum í fyrra, þar sem afurðaverðið hefur farið lækkandi. 29.12.2004 00:01
Erlendum ferðamönnum fjölgar Rúmlega sex hundruð erlendir ferðamenn dvöldu hér um jólin á sex hótelum og nokkrum gisitheimilum, sem er sjötíu prósenta aukning frá síðustu jólum. Þá er búist við að minnsta kosti 2,600 ferðamönnum um áramótin, sem er 40 prósenta fjölgun fá síðustu áramótum. Til viðbótar dvelja margir erlendir ferðamenn hér á milli jóla og nýárs. 29.12.2004 00:01
2 Danir fórust í járnbrautarslysi Tveir danir fórust og einn slasaðist alvarlega þega bíll varð fyrir járnbrautarlest nálægt bænum varde á Jótlandi. Fjórði maðurinn, sem var í bílnum slapp nær ómeiddur. Talið er að sól hafi blindað ökumann bílsins og að hann hafi ekki séð þegar slá seig niður til að loka fyrir bílaumferð yfir teinana. 29.12.2004 00:01
Dýr flúðu flóðbylgjuna Á meðan rúmlega 22 þúsund manns hafa týnt lífinu í Sri Lanka í hörmungunum í suðaustur-Asíu kemur það mönnum á óvart að engin dýrshræ hafa fundist að ráði í Yala-þjóðgarðinum . 29.12.2004 00:01
Rúmlega átta hundruð hermenn féllu Alls hafa 1.324 bandarískir hermenn fallið í Írak frá því að stríðið hófst í mars í fyrra og 9981 særst samkvæmt upplýsingum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Af hinum særðu sneru 4680 aftur til skyldustarfa innan viku frá því þeir særðust. 29.12.2004 00:01
Atkvæðagreiðslu lýkur á gamlársdag Atkvæðagreiðsla um kjarasamning sjómanna er í gangi og lýkur henni á gamlársdag. 29.12.2004 00:01
Herlið Úkraínu burt úr Írak Úkraína mun smám saman fækka í 1600 manna herliði sínu í Írak á næsta ári og draga það að lokum allt til baka í árslok 2005, að sögn Oleksandr Kuzmuk, varnarmálaráðherra landsins. 29.12.2004 00:01
Impregilo auglýsir Impregilo auglýsti eftir starfsmönnum í stað Kínverjanna 150 eftir að ASÍ benti á að þeim bæri að auglýsa. Impregilo hefur óskað eftir undanþágu fyrir 54 Kínverja. </font /></b /> 29.12.2004 00:01
Janúkovitsj meinað að stjórnarráði Um eitt þúsund mótmælendur skrýddir appelsínugulum lit slógu skjaldborg um stjórnarráð Úkraínu í gær og vörnuðu Viktor Janúkovitsj forsætisráðherra inngöngu og gat hann því ekki kallað saman ráðuneytisfund. 29.12.2004 00:01
Jón Þórisson rekinn Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka rak í morgun staðgengil sinn og aðstoðarforstjórann, Jón Þórisson. Ástæðan er sögð óbrúanlegur ágreininugr á milli þeirra, en sem kunnugt er lýsti Jón því fyrir nokkru að hann útilokaði ekki möguleikann á sameiningu Íslandsbanka og Landsbankans. 29.12.2004 00:01
75 prósent Súmötru í rúst Þrír fjórðu hlutar strandlengjunnar á eyjunni Súmötru í Indónesíu eru í rúst og nokkrir bæir jöfnuðust við jörðu í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni á sunnudag að sögn talsmanna indónesíska hersins 29.12.2004 00:01
Indverjar fá sér viðvörunarbúnað Indversk yfirvöld hafa tilkynnt að þau ætla að koma sér upp búnaði til að vara við hættulegum flóðbylgjum á borð við þá sem skall á landið á sunnudag. Taíland er eina ríkið af þeim ellefu sem urðu fyrir barðinu á flóðbylgjunni sem býr yfir slíkum búnaði. 29.12.2004 00:01
Líkin talin í kapp við tímann Tíminn vinnur ekki með hjálparsveitum í Asíu og talningarmenn keppast við að koma líkunum til greftrunar sem fyrst. Indlandi er gerð grein fyrir hverjum látnum en í Indónesíu eru líkin oft dysjuð áður en hægt er að bera kennsl á þau eða telja. </font /></b /> 29.12.2004 00:01
20 milljónir safnast á Íslandi Alþjóða Rauði krossinn sendi út stærstu hjálparbeiðni um áratugaskeið í gær en talin er þörf á um þremur milljörðum króna til hjálparstarfs samtakanna á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. 29.12.2004 00:01
Langþráð enduruppbygging Langþráð endurbygging Suðurstrandarvegar milli Grindavíkur og Þorlákshafnar er að hefjast. Vegagerðin hefur boðið út fyrsta kaflann en óvíst er um framhald verksins þar sem hluti fjárveitingar verður fluttur í mislæg gatnamót í Svínahrauni. 29.12.2004 00:01
Fundu dýrin hörmungarnar á sér? Dýrasérfræðingar á Sri Lanka segja engin ummerki um dauð dýr eftir hamfarirnar, sem verður að teljast ótrúlegt með tilliti til þess að yfir tuttugu þúsund manns hafa týnt lífi á Sri Lanka. Þrátt fyrir að ótrúlegur fjöldi villtra dýra finnist á Sri Lanka hefur ekki fundist þar einn einasti dauður fíll, héri eða kanína. 29.12.2004 00:01
Hækka um tugþúsundir Höfuðborgarbúar þurfa að greiða tugþúsunda hærri fasteignagjöld eftir áramót. Fasteignamat hækkar allstaðar á landinu um áramótin. Ef við lítum bara á höfuborgarsvæðið þar sem flestir búa hækkar matið á íbúð í fjölbýli um 13% og á sérbýli um 20%. Út frá fasteignamatinu eru reiknuð fasteignagjöldin sem eigendurnir greiða. 29.12.2004 00:01
Kínverjar í stað Portúgala? Af tvö hundruð og fimmtíu portúgölskum starfsmönnum Impregilo sem fóru til síns heima fyrir hátíðarnar koma aðeins hundrað til baka. Starfsmenn við Kárahnjúka segja ljóst að yfirmenn fyrirtækisins vilji frekar fá Kínverja til starfa. 29.12.2004 00:01
Takmarkið að nást Einungis herslumuninn vantar að nægir fjármunir til þess að borga fyrir auglýsingu Þjóðarhreyfingarinnar í bandaríska dagblaðinu New York Times hafi safnast að sögn Ólafs Hannibalssonar, eins forsvarsmanna hreyfingarinnar. 29.12.2004 00:01
Koma börnum til hjálpar Barnaheill - Save the Children hafa komið á fót neyðaraðstoð í þeim löndum sem verst urðu úti í flóðbylgjunni við Indlandshaf á öðrum degi jóla. 29.12.2004 00:01
Niðurlæging fyrir gamla fólkið "Það er mikil niðurlæging fyrir gamla fólkið að þurfa að fara með fötin sín í poka til ættingja sinna," segir Jón Fanndal Þórðarson, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. 29.12.2004 00:01
Símtalið kostar á annað hundrað Hvert símtal í þjónustunúmerið 118 kostar yfirleitt á bilinu sextíu til 120 krónur. Upphafsgjald fyrir hringingar í númerið eru fimmtíu krónur ef hringt er úr farsíma en er lítið eitt lægra ef hringt er úr heimilissíma. Auk þess kostar hver mínúta sem talað er rétt tæpar sextíu krónur ef hringt er úr farsíma en fimmtíu krónur ef hringt er úr heimasíma. 29.12.2004 00:01
Sjúkraflug vaxandi þáttur Þrjú hundruð sjúkraflug hafa verið farin frá Akureyri það sem af er þessu ári. Í fyrra voru þau 271 en 188 árið áður. 29.12.2004 00:01
Mannskæðustu flóðbylgjur sögunnar Hamfarirnar í Indlandshafi eru þær mannskæðustu sem orðið hafa af völdum flóðbylgna. Mörg dæmi eru þó um hrikaleg flóð sem hafa dregið tugþúsundir til dauða 29.12.2004 00:01
Jörðin gæti snúist hraðar Svo kann að vera að jarðskjálftinn sem átti upptök sín við Súmötru hafi varanleg áhrif á snúning jarðar. 29.12.2004 00:01
Vinur minn missti konu og bróður Á Íslandi eru margar fjölskyldur sem eiga ættingja á hamfarasvæðunum í Suð-austur Asíu. Pramod Nair er Indverji sem hefur búið hér á landi ásamt konunni sinni í þrjú ár. 29.12.2004 00:01
Rafmagnslaust víðsvegar um landið Margir urðu varir við rafmagnsleysi sem varð víðs vegar um land í fyrrinótt. Orsökina má að hluta til rekja til truflana í veitukerfi Landsvirkjunar. </font /> 29.12.2004 00:01
Ekkert varanlegt tjón Rafmagn fór af stóriðjunum tveimur á Grundartanga í um klukkustund vegna óveðursins í fyrrinótt. 29.12.2004 00:01
Tuttugu milljónir hafa safnast Um tuttugu milljónir króna hafa þegar safnast hér á landi til styrktar þeim sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna í Suðaustur-Asíu. Pokasjóður gefur fimm milljónir til hjálparstarfssins, Hjálparstofnun kirkjunnar hefur þegar sent hálfa aðra milljón til hamfarasvæðanna og milljónir hafa safnast í símasöfnun Rauða krossins. Þá ákvað ríkisstjórnin að gefa fimm milljónir. 29.12.2004 00:01
Síminn leggur sitt af mörkum Vegna hinna hræðilegu náttúrhamfara í Asíu um jólin sem kostað hafa tugþúsundir mannslífa hafa Síminn og starfsmenn fyrirtækisins ákveðið að leggja sitt af mörkum til að aðstoða þolendur í þessum fjarlæga heimshluta. Starfsfólk Símans er að hrinda af stað fjársöfnun innan fyrirtækisins. 29.12.2004 00:01
Látinn hætta vegna ágreinings Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, var rekinn úr starfi í dag og látinn hætta strax vegna óleysanlegs ágreinings milli hans og Bjarna Ármanssonar forstjóra. 29.12.2004 00:01
Tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu Hansína Ásta Björgvinsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Kópavogi, tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu um ráðningarsamning sinn í bæjarstjórn. Hún segir að vel megi vera að hún hafi átt að sitja hjá. 29.12.2004 00:01
Yfir 100 þúsund látnir? Talið er að yfir eitt hundrað þúsund manns hafi farist í hamförunum í kjölfar jarðskjálftans á Indlandshafi, þar af um þriðjungur börn. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður Stöðvar 2, er staddur á Phuket-eyju í Taílandi, sem varð sérstaklega illa úti. Hann segir ástandið óljóst, en vitað sé að um 1600 hafi farist á Taílandi. 29.12.2004 00:01
2700 saknað frá Norðurlöndunum Alls tvö þúsund og sjö hundruð Norðurlandabúa er saknað á hamfarasvæðunum í Asíu, þar af um fimmtán hundruð Svía og tæplega fimm hundruð Norðmanna. Ef fer sem horfir stefnir í eitt mesta mannfall sænskra og norskra ríkisborgara á friðartímum. 29.12.2004 00:01
Ekki vitað um afdrif 10 Íslendinga Nú eru liðnir tæplega þrír og hálfur sólarhringur frá jarðskjálftanum, og enn hefur ekkert heyrst frá tíu Íslendingum á svæðinu. Enn er leitað upplýsinga um fimm manna íslenska fjölskyldu sem var stödd á Balí þegar síðast var vitað, en þetta eru hjón með þrjú börn. Þá hefur ekkert spurst til fimm einstaklinga sem ætluðu að vera í Tælandi, það eru annarsvegar hjón með eitt barn, og hinsvegar par. 29.12.2004 00:01
Eyjar færðust tugi metra Risajarðskjálftinn olli því að eyjar færðust til um marga kílómetra á hnettinum. Möndulhreyfingar jarðarinnar breyttust einnig, svo dagurinn hefur lengst. Stöðugt berast nýjar jarðfræðilegar upplýsingar frá skjálftasvæðinu. Nú hefur komið í ljós að smáeyjar við upptök hans hafa færst til um ótrúlegar vegalengdir í vesturátt, og hafa verið nefndar tölur allt upp í tugi og jafnvel hundruði metra. 29.12.2004 00:01
Biskup hvetur til samhugs Biskup Íslands hvetur presta til að minnast fórnarlamba hamfaranna í Asíu í guðsþjónustum um áramótin. 29.12.2004 00:01
Hætta ekki með 100% lán KB-banki telur hækkanir á fasteignamarkaði óeðlilegar og óttast afleiðingarnar sem kunni að leiða til þess að fólk festist í skuldafjötrum. Bankinn telur þó ekki tímabært að hætta að bjóða hundrað prósenta íbúðalán, eins og Landsbankinn hefur ákveðið. 29.12.2004 00:01