Erlent

Líkin talin í kapp við tímann

Í líkhúsi í indverska bænum Cuddalore stendur læknir og les upp tilkynningu til fólks sem bíður í anddyrinu að það þurfi að bera kennsl á lík fjögurra kvenna og fimm ára gamals drengs. Hjón bera kennsl á drenginn og bresta í grát. Þau eru beðin um að fara, næsta fólki er hleypt inn og merkimiði eru settur á handlegg drengsins. Staðfestum fórnarlömbum flóðbylgjunnar hefur fjölgað um eitt. Embættismenn í ríkjunum við Indlandshaf sem urðu fyrir barðinu á flóðbylgjunni á sunnudag hafa ekki undan við að telja líkin og bera kennsl á þau. Talningarmennirnir standa steingerðir á svip frammi fyrir foreldrum, börnum eða systkinum hinna látnu sem eru fengnir til að bera kennsl á hina látnu. Svipbrigði þeirra bera ekki með sér sorg eða uppnám; það er fyrir öllu að telja líkin og koma þeim til greftrunar sem fyrst. Tölur um fjöldi látinna í hamförunum fara stigvaxandi en verða þó aldrei meira en áætlað mat og endanlegar tölur um fjölda þeirra sem hafa látist munu ef til vill aldrei fást. Vinnubrögð við talningu á hinum látnu eru ólíkar á milli landa. Á Indlandi hefur verið sett saman öflugt lið starfsmanna úr heilbrigðisgeiranum, lögreglunni og skattaeftirlitsmönnum sem skrásetja nákvæmar upplýsingar um hina látnu í stílabækur. Þar kemur fram nafn fórnarlambsins og aldur, nöfn foreldra þess, heimilisfang og tvö auðkenni. Loks er tekin ljósmynd af líkinu. Í Indónesíu eru líkin oft dysjuð án þess að vera talin eða borin kennsl á þau. Stjórnsýslan er í óreiðu, líkin dreifð um þrettán þúsund eyjaklasa, margir hverjir einangraðir frá umheiminum. Meira en áratugur er síðan yfirvöld tóku manntal og gögn um fæðingar og andlát eru óáreiðanleg. Félagsmálaráðuneytið í Indónesíu segir 32 þúsund manns hafa látið lífið, heilbrigðisráðuneytið segir 27 þúsund. Opinberar tölur eru fyrst og fremst áætlað mat og ljóst er að nákvæm tala yfir fjölda látinna mun aldrei fást.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×