Innlent

Mörg snjóflóð hafa fallið í dag

MYND/Vísir
Mörg snjóflóð, allt að 25 metra breið og þriggja metra djúp, hjafa fallið á Súðavíkurveg og Óshlíðarveg eftir hádegi og eru báðir vegirnir enn lokaðir vegna hættu á frekari flóðum. Engin vegfarandi var hætt komin þegar flóðin féllu, en þau eru blaut og þung að sögn vegagerðarmanna. Snjó kyngdi niður á svæðinu snemma í morgun og nú er dimmviðri þannig að erfitt er um vik að meta frekari hættu í hlíðunum og óvíst hvort vegirnir verða ruddir í dag. Veðurstofunnni er ekki kunnugt um að snjóflóð hafi fallið annarsstaðar á landinu þar á bæ verður fylgst með framvindu mála fram á kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×