Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðarmorð í Darfur Þjóðarmorð hafa átt sér stað í Darfur héraði í Súdan, sagði utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Colin Powell í dag á fundi með utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Hann sakaði stjórnvöld í landinu og Janjaweed uppreisnarhópinn um að bera ábyrgð á ódæðunum. 9.9.2004 00:01
Heimurinn vill Kerry Könnun sem gerð var í 35 löndum um heim allan sýnir að flestir utan Bandaríkjanna vilji sjá demókratann John Kerry sem næsta forseta Bandaríkjanna, frekar en núverandi forseta, George Bush. 9.9.2004 00:01
Reykbann á breskum krám Um þriðjungur bara og kráa í Bretlandi verða reyklaus fyrir árslok. Þar með feta Bretar að sumu leiti í fótspor Norðmanna og Íra þar sem gildir allsherjarbann á Reykingum á veitingahúsum og börum. 9.9.2004 00:01
Óhugur vegna endurhæfingastöðva Ráðgert er að byggja fjórar til fimm endurhæfingastöðvar fyrir um eitthundrað kynferðisafbrotamenn í Bretlandi, en áformin hafa slegið óhug á íbúa á svæðum þar sem þær eiga að rísa. 9.9.2004 00:01
Fellibylurinn Ivan veldur óskunda Fimmtán hafa látist á karabísku eyjunum eftir að fellibylurinn Ivan geystist yfir eyjarnar á 200 km hraða á klukkustund. Hús hafa jafnast við jörðu og rafmagnsleysi víða. Flest dauðsföllin urðu í Grenada og hefur forsætisráðherra landsins lýst yfir þjóðarhörmung. Fellibylurinn mun ganga yfir Jamaíka á morgun og yfir Kúbu um helgina. 9.9.2004 00:01
Mótmæla frestun mislægra gatnamóta Höfuðborgarsamtökin eru síður en svo ánægð með að endurbótum við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar hafi verið frestað. Þau sendu í dag frá sér ályktun þar sem þau mótmæla þessu harðlega. 9.9.2004 00:01
Hótar að reka Arafat úr landi Ísraelsk stjórnvöld eru nær því nú en nokkru sinni áður að reka Jasser Arafat, forseta Palestínu, frá heimastjórnarsvæðum Palestínumanna, sagði Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, þegar hann ávarpaði fund í Likudbandalaginu. Óvíst er hvort alvara búi að baki orðum hans eða hvort Shalom hafi aðeins verið að styrkja stöðu sína innan flokksins. 9.9.2004 00:01
Neita að bera vitni Vitni sem áttu að hjálpa málstað Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta, eru farin að neita að bera vitni að sögn lögmanna hans. Að þeirra sögn er fólkið ósátt við að forsetinn fyrrverandi fái ekki að verja sig sjálfur og bregðast því við með því að neita að mæta í réttarsal. 9.9.2004 00:01
Getum alltaf átt von á árásum Átta létust og á annað hundrað særðust í sprengjuárás í Djakarta. Ómar Valdimarsson, sem býr í nágrenni staðarins þar sem árásin var gerð, segir hryðjuverk eins og þetta hættu sem fólk býr við dag hvern. </font /></font /></b /></b /> 9.9.2004 00:01
Nær 200 hafa farist í flóðum Flóðin miklu í suðvesturhluta Kína hafa kostað 177 manns lífið og bitnað á alls ellefu milljón einstaklingum. Nokkur hundruð þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín og í Sichuan-héraði einu, sem hefur orðið einna verst úti, hafa 10.000 einstaklingar veikst eða slasast í hamförunum. 9.9.2004 00:01
Grafa undan baráttunni Ríki sem veita foringjum og stuðningsmönnum uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu hæli eru með því að grafa undan herferðinni gegn hryðjuverkum. Þetta sagði Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í viðtali við rússneska blaðið Vremya Novostei. 9.9.2004 00:01
Bush heldur forskotinu George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sjö til átta prósentustiga forskot á demókratann John Kerry samkvæmt nýrri skoðanakönnun CBS sjónvarpsstöðvarinnar. 9.9.2004 00:01
Þjóðarmorð framin í Darfur "Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð hafi verið framið í Darfur og að súdanska ríkisstjórnin og Janjaweed beri á því ábyrgð. Það getur verið að þjóðarmorð eigi sér enn stað," sagði Colin Powell, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna. Janjaweed eru arabískar vígasveitir sem starfa með stjórnarhernum. 9.9.2004 00:01
Íhuga að ráða málaliða Ef ríki heims útvega ekki nógu marga hermenn til að sinna friðargæslu í Kongó geti það orðið til þess að Sameinuðu þjóðirnar verði að leita til einkaaðila til að sinna friðargæslu, sagði Aldo Ajello, sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Mið-Afríku. 9.9.2004 00:01
Rússneskir ráðamenn ævareiðir Ráðamenn Rússlands eru ævareiðir og segja Vesturlönd sýna tvískinnung í afstöðunni til hryðjuverkamanna. Þeir vilja að umheimurinn bregðist eins við hryðjuverkum í Rússlandi og Bandaríkjunum. 9.9.2004 00:01
Krafist 5 mánaða fangelsis Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi vegna fjársvikamáls, segist hafa verið farinn að undirbúa heimför þegar hann var framseldur. Ákæruvaldið krefst þess að Ragnar verði dæmdur í fimm mánaða fangelsi. 9.9.2004 00:01
Kóralfiskur í útrýmingarhættu Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin, World Wide Fund, hafa bætt tveimur dýrum á listann yfir þau tíu dýr sem eru í hvað mestri útrýmingarhættu í heiminum. Annað þessara dýra er kóralfiskur með varir sem þykja lostæti og er hann því orðinn afar eftirsóttur. 9.9.2004 00:01
Greinargerð ráðherra tilbúin Félagsmálaráðherra sendi nú rétt fyrir fréttir Helgu Jónsdóttur borgarritara greinargerð vegna ráðningar í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Í greinargerðinni er ekki fjallað um hvers vegna Helga fékk ekki starfið, heldur hvers vegna Ragnhildur Arnljótsdóttir var ráðin. 9.9.2004 00:01
Hitti naglann á höfuðið Framkvæmdastjóri stærsta fiskvinnslufyrirtækis Bretlands segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hafa hitt naglann á höfuðið í beinskeyttri gagnrýni sinni á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Hann segist vona að gagnrýni Halldórs eigi eftir að berast víða um Evrópusambandið. 9.9.2004 00:01
Heimsókn konungshjónanna lokið Opinberri heimsókn sænsku konungshjónanna og krónprinsessunnar lauk í dag, en seint verður sagt að veðrið hafi leikið við þau. Sólin braust fram úr skýjunum í dag þegar þau fóru norður í land og fengu konunglegar móttökur hjá stórum sem smáum. Hinir tignu gestir verða hér á landi í einkaheimsókn á morgun og halda svo af landi brott á laugardag. 9.9.2004 00:01
Fyrsta fjalldrottningin komin Fyrsta fjalldrottningin, sem stjórnað hefur leitum á hálendi Íslands, kom til byggða í dag eftir níu daga smalamennsku á fjöllum. Smalamenn Gnúpverja héldu upp á fjöll fyrir 9 dögum og fóru lengst upp í Arnarfell upp undir Hofsjökli ofan við Þjórsárver. Í dag komu þeir niður í Þjórsárdal með safnið, alls um 2.500 fjár. </font /> 9.9.2004 00:01
Heklugos í vændum? Breytinga hefur orðið vart á lækjum og vötnum í grennd við Heklu í sumar. Þannig hefur lækur við bæinn Selsund þornað upp. Það gerðist einnig í aðdraganda síðustu Heklugosa. Mælar jarðvísindamanna sýna að kvikuþrýstingur undir Heklu er kominn upp undir það sem var fyrir síðasta gos fyrir fjórum árum. 9.9.2004 00:01
Drengurinn slapp lifandi Rússneski drengurinn sem sést mjög greinilega á myndbandi hryðjuverkamannanna í Beslan slapp lifandi úr skólanum. Mæðgur sem sátu við hliðina á honum létu lífið. 9.9.2004 00:01
Lásasmiður hjálpar til við innbrot Í kjölfar frétta af innbrotsþjófum sem fengu lásasmiði til að opna heimili um mitt sumar hefur DV sannreynt hvort slíkt sé mögulegt. Blaðið hringdi í lásasmið af handahófi og bað hann að opna yfirgefið heimili undir fölskum forsendum.<b><font face="Helv" color="#008080"></font></b> 9.9.2004 00:01
Biblían góð viðskipti Biskup Íslands er sannfærður um að ný þýðing Biblíunnar verði „bestseller“ Hún verður gefin út eftir tvö ár og leysir hundrað ára gamla þýðingu af hólmi. 9.9.2004 00:01
Framkoma formannsins ógeðfelld Varaformaður fjárlaganefndar segir framkomu formanns Öryrkjabandalagsins ógeðfellda og að ríkisstjórnin hafi efnt að fullu samkomulag sitt við það. Formaður Öryrkjabandalagsins segir svo ekki vera og ætlar að stefna ríkisstjórninni fyrir dómstóla verði ekki staðið við samkomulagið í haust. 9.9.2004 00:01
Rökke á uppleið Kjell Inge Rökke, einn auðugasti maður Noregs, segir gæfhjólið hafa snúist sér í hag á síðustu mánuðum. Fyrir ári héngu fyrirtæki hans á bláþræði, en í gær var fyrirtækjasamstæða hans skráð í norsku kauphöllinni. Lífsstíll Kjell Inge Rökke hefur löngum vakið mikla athygli, enda hefur hann lifað í vellystingum um langt árabil og ekki farið dult með það. Hann kom til Akureyrar í gær á einkaþotu sinni til að halda erindi á sjávarútvegsráðstefnu Íslandsbanka.</font /> 9.9.2004 00:01
Vilja flýta landsfundi Áhugi er fyrir því innan Samfylkingarinnar að flýta landsfundi flokksins sem á að fara fram næsta haust. </font /> 9.9.2004 00:01
Óljósar kröfur útvegsmanna Sjómenn segja erfitt að semja um kjör þegar útvegsmenn viti ekki hvað kröfur þeirra kosti. Útvegsmenn segja tölurnar reiknaðar út frá forsendum um framtíðarþróun sjávarútvegs.</b /> 9.9.2004 00:01
Breytinga fyrst vart á Íslandi Áhrif mannsins á loftslagsbreytingar eru augljósar og þeirra breytinga verður einna fyrst vart á Íslandi, samkvæmt fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði. 9.9.2004 00:01
Hundrað milljónir á dag í útgjöld Útgjöld ríkisins vegna almannatrygginga eru nú 100 milljónir á dag og hafa tvöfaldast á síðustu sjö árum. Útgjöld vegna örorkubóta hafa hækkað mest en öryrkjum hefur fjölgað um helming á tímabilinu. Vikulega bætast 10 nýir öryrkjar í hóp bótaþega. </font /></b /> 9.9.2004 00:01
Sprautuð með ólífuolíu Læknanemi á sjúkrahúsi í Austurríki sprautaði aldraðan sjúkling með ólífuolíu sem hann tók í misgripum fyrir sýklalyf. Læknaneminn greip vitlaust ílát þegar hann fyllti sprautuna, í stað þess að ná í meðalaglas tók hann smáflösku með ólífuolíu sem sjúkraþjálfari hafði sem var að fara að nudda sjúklinginn hafði útbúið. 9.9.2004 00:01
Fjórtán misst félagslegar íbúðir Fjórtán leigjendum félagslegra íbúða Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp leigusamningi á árinu og gert að flytja vegna brota á reglum Félagsbústaða. Fjórir þeirra hafa verið bornir út með lögregluvaldi samkvæmt Sigurði Friðrikssyni framkvæmdastjóra Félagsbústaða.</< /> > 9.9.2004 00:01
Telur gas valda riðusjúkdómum Nýjar kenningar um orsakir riðuveiki eru komnar fram í kjölfar sauðfjárriðu sem upp kom á bænum Árgerði í Skagafirði í sumar. Guðbrandur Jónsson, sem vinnur að rannsóknum tengdum hagnýtingu lífræns úrgangs við metangasframleiðslu, telur riðu orsakast af gasmengun frá dýraúrgangi. 8.9.2004 00:01
Niðurskurður fjár kannski óþarfur Landlæknir hafnar tilgátum um að eiturgas valdi riðusjúkdómum og ætlar ekki að rannsaka málið. 500 fjár verður fargað á næstunni vegna riðu í Árgerði í Skagafirði. Á bænum kom áður upp riða árið 1985, en það ár og næstu þar á eftir, stakk hún sér líka niður á sumum nærliggjandi bæja. 8.9.2004 00:01
Nýjar reglur tilbúnar í haust Nýjar reglur um sölu á korni sem ræktað er innanlands eiga að vera tilbúnar í haust. Landbúnaðarráðuneytið vinnur að gerð reglnanna, en hingað til hefur kornrækt bænda nær einvörðungu verið til eigin nota, en hefur aukist svo að huga þarf að söluumhverfi í geiranum. 8.9.2004 00:01
Ævintýraleg ferð í Þórsmörk Þrír öflugir Unimok-jeppar Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu ferjuðu sextíu skólakrakka yfir Steinholtsá í Þórsmörk í gærkvöldi. Rútur sem flytja áttu nemendurna heim á leið eftir sólarhringsferð komust ekki yfir ána vegna vatnavaxta. 8.9.2004 00:01
Þjófur sérhæfir sig í Nissan Sunny Ívar Erlendsson, nemi á tónlistarbraut í Fjölbrautaskóli Vesturlands, varð heldur hissa þegar hann hugðist fara í skólann í gærmorgun. Nissan Sunny bifreið hans var horfin. Aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík segir algengt að Nissan Sunny bílum sé stolið. Fjögurra sé enn saknað frá 19. ágúst. 8.9.2004 00:01
Sjómenn sér á báti Sjómenn eru nær eina starfsstétt landsins á almennum vinnumarkaði sem fer í verkföll. Hjá þeim hafa aðstæður um sumt verið líkari því sem gerist hjá hinu opinbera, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 8.9.2004 00:01
Sinnaskipti utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að með ræðu sinni í gær á Akureyri hafi Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, bakkað algjörlega frá fyrri viðhorfum sínum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. </font /> 8.9.2004 00:01
Fátt gott við fiskveiðistefnu ESB Utanríkisráðherra hafði fátt gott um sjávarútvegsstefnu ESB að segja á ráðstefnu á Akureyri í gær. Fundarmenn, sem margir stjórna stórum sjávarútvegsfyrirtækjum í Evrópusambandinu, virtust flestir á sama máli. </font /></b /> 8.9.2004 00:01
Evrópa er vaxtarsvæði Samherja Eftir fjárfestingar í vikunni á Samherji fjögur útgerðarfélög innan Evrópusambandsins með 20.000 tonna þorskígildiskvóta í sameiginlegum kvóta ESB og þriggja milljarða króna ársveltu. 8.9.2004 00:01
Konungur furðar sig á uppganginum Karl Gústaf Svíakonungur segir mikinn mun á fyrstu heimsókn sinni hingað til lands og þessari. Uppgangurinn í efnahagslífinu og breytingar sem orðið hafa á höfuðborginni séu með ólíkindum. </font /></b /> 8.9.2004 00:01
Hiti yfir meðallagi í 29 mánuði Meðalhiti í Reykjavík í ágústmánuði var 12,6 stig, eða 2,3 stigum ofan við meðallag, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Mánaðarhiti hefur nú verið yfir meðallagi í Reykjavík í 29 mánuði samfellt. 2.9.2004 15:00