Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldurinn slökktur í Austurbrún Búið er að slökkva eld sem kom upp í fjölbýlishúsi við Austurbrún 6 í Reykjavík á tólfta tímanum. Eldurinn var í íbúð á þriðju hæð hússins og lagði reyk um allt húsið. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta húsið. 31.8.2004 00:01
2 ár frá fyrstu húsleit hjá Baugi Rétt um tvö ár eru liðin frá því að húsleit var fyrst gerð í höfuðstöðvum Baugs, 28. ágúst 2002, vegna meintra fjársvika Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar gagnvart Baugi. Síðan þá virðist sem rannsóknin hafi vafið upp á sig. 31.8.2004 00:01
Eldur í Bílskúr á Patreksfirði Eldur kviknaði í bílskúr við Strandgötu á Patreksfirði á sunnudagskvöld. Húsráðendur urðu eldsins varir, en bílskúrinn og íbúðarhúsið sem stendur aðeins um metra frá skúrnum, eru úr timbri. Talið er að eldurinn hafi kviknað vegna þess að börn hafi verið að fikta með eldspýtur. 31.8.2004 00:01
Erlendir ökumenn valda hækkunum Þegar erlendir ferðamenn á bílaleigubílum lenda í slysum er tjónið á ábyrgð bílaleigunnar vegna slysatrygginga. Bílaleigur vilja að kerfinu verði breytt í samræmi við það sem er algengast erlendis. Framkvæmdastjóri FÍB segir núverandi fyrirkomulag skila sér í hækkun iðgjalda. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
Strokufangi af Litla Hrauni 28 ára gamall fangi á Litla Hrauni slapp þaðan í gær um kvöldmatarleyti. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er maðurinn um það bil 160 sentímetrar á hæð, grannur og krúnurakaður. 31.8.2004 00:01
Annar mannanna lést Kanadískur maður um fimmtugt lést en tæplega tvítugur bróðursonur hans lifði af þegar skúta þeirra sökk í Faxaflóa í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann mennina klukkan kortér yfir sex í gærkvöldi eftir tæplega klukkustundar leit. 31.8.2004 00:01
Eldur í blokk Eldur kom upp á 3. hæð í 12 hæða blokk að Austurbrún 6 í Reykjavík í gærkvöldi. Slökkviliðið var kallað á staðinn um klukkan 23 eftir að nágrannar íbúðarinnar sáu eld út um gluggann. 31.8.2004 00:01
Grátbað forseta Frakklands Franskur blaðamaður sem haldið er í gíslingu í Írak grátbað, í myndbandi sem sýnt var í nótt, Jaques Chirac Frakklandsforseta að láta undan kröfum mannræningjanna, og fella úr gildi bann við því að skólastúlkur hylji hár sitt. 31.8.2004 00:01
Ímyndunarveikur í átta ár Bandarískur karlmaður í Kaliforníu hefur fengið skilaboð frá lækni sínum um að hann sé ekki alnæmissmitaður eins og honum var greint frá fyrir átta árum. Maðurinn, sem heitir Jim Malone, hefur síðan honum var tilkynnt að hann væri smitaður af Hiv-veirunni sem veldur alnæmi, sótt stuðningsfundi alnæmissmitaðra, barist við þunglyndi og óttast dauðann. 31.8.2004 00:01
Góðar fréttir fyrir reykingamenn Rannsóknir á nýju hjálparmeðali fyrir reykingamenn á amtssjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn sýna að 40 prósentum þeirra sem nota lyfið tekst að losna við sígaretturnar í eitt skipti fyrir öll. Nýja lyfið er pilla sem heitir Variniklæn. 31.8.2004 00:01
Mótmæla til stuðnings föngum Grímuklæddir stuðningsmenn Hamas hreyfingarinnar gengu um götur Gasa borgar í gær ásamt hundruðum Palestínumanna til að styðja kröfur palestínskra fanga sem sitja í fangelsum í Ísrael. 31.8.2004 00:01
Áfram mótmæli í New York Mótmæli halda áfram á götum New York borgar. Mótmælin í gær voru þó ekki eins fjölmenn og mótmælin á sunnudag en nokkur þúsund manns tóku þó þátt. Andrúmsloftið virtist einnig vera léttara en mótmælendur lögðu áherslu á málefni heimilislausra, alnæmissjúkra og önnur velferðamál. Í kringum tíu þúsund lögregluþjónar eru við störf á svæðinu. 31.8.2004 00:01
Engin tengsl milli rána Nú er komið í ljós að bankaræningjarnir á Akerbryggju í Osló eiga ekkert sameiginlegt með ræningjunum í Stavanger og Jessheim annað en atvinnunna. Þeir eru einfaldlega ræningjar. Hitt er annað mál að ránið á Akerbryggju var skipulagt af þremenningunum meðan þeir sátu saman í fangelsi í Ósló. Tveir þeirra voru í helgarleyfi og sá þriðji í fæðingarorlofi hjá fjölskyldu sinni. 31.8.2004 00:01
Vill tryggja frelsi gíslanna Forseti Frakklands, Jacques Chirac, ítrekaði í dag að allt yrði gert til að frelsa tvo franska blaðamenn sem eru í haldi mannræningja í Írak. Chirac er í Rússlandi sem stendur og mun funda með Putin Rússlandsforseta og Gerhard Schröder kanslara Þýskalands, en þeir voru á sínum tíma allir andsnúnir Íraksstríðinu. 31.8.2004 00:01
Réttarhöld yfir Milosevic hafin Ásakanir sem Slobodan Milosevic er borinn eru helberar lygar og málflutningur saksóknara við stríðsglæpadómstólinn í Haag er byggður á útúrsnúningi á mannkynssögunni. Þessu hélt Milosevic fram í morgun, þegar hann hóf málsvörn sína. 31.8.2004 00:01
Hóta Shaath lífláti Hópur palestínskra öfgamanna hótaði í morgun að ráða utanríkisráðherra Palestínu, Nabil Shaath, af dögum. Þeir segja þátttöku hans í ráðstefnu á Ítalíu með starfsbróður sínum frá Ísrael dauðasök. Snúi Shaath aftur til Gasa-strandarinnar verði hann tekinn af lífi. Til stendur að Shaath komi til Gasa í dag. 31.8.2004 00:01
Drápu tólf gísla Írakskur hópur uppreisnarmanna, Alsa al-Sunna, segist hafa drepið tólf gísla frá Nepal og sýndu þeir myndir af drápunum á íslamskri vefsíðu í dag. Í yfirlýsingu segjst þeir hafa framkvæmt dóm guðs yfir Nepölunum sem hefðu komið til landsins til að berjast við múslima og þjóna gyðingum og kristnum mönnum. 31.8.2004 00:01
Var ekki lífgjöfinni feginn Það var heldur vanþakklát lífgjöf sem sjúkralið á sjúkrahúsi Ísafjarðar veittu manni aðfaranótt laugardags. Klukkan fjögur um nóttina var tilkynnt um líkamsárás fyrir framan veitingahúsið Sjallan. Áður en lögreglan komst úr húsi voru slagsmálahundarnir tveir mættir á stöðina, annar þeirra greinilega í andnauð. 31.8.2004 00:01
Ljósanótt um helgina Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð í Reykjanesbæ verður haldin í fimmta sinn fyrstu helgina í september. Fjöldi viðburða verður alla helgina og hefjast þeir strax á morgun með setningu hátíðarinnar og hagyrðingakvöldi. 31.8.2004 00:01
Brotið fyrir sex nýjum gluggum Gamla Mjólkursamlagshúsið verður fært nær upphaflegu formi þegar brotið verður fyrir sex nýjum glukkum á framhlið hússins sem snýr út að Snorrabraut í dag. Húsið sem hýsir nú Söngskóla Reykjavíkur var byggt árið 1930, teiknað af Einari Erlendssyni. 31.8.2004 00:01
Hamas ábyrg fyrir sjálfmorðsárásum Fimmtán fórust þegar öflugar sprengjur sprungu skammt frá eða um borð í tveimur strætisvögnum í suðurhluta Ísraels skömmu fyrir hádegi. Fimmtíu hið minnsta særðust. 31.8.2004 00:01
Eins og leit að nál í heystakki Kanadískur maður um fimmtugt lést en 17 ára bróðursonur hans lifði af þegar skútan þeirra sökk á Faxaflóa í gærkvöld. Sigmaður Landhelgisgæslunnar segir aðstæður til leitar hafa verið afar erfiðar og mennina hafa fundist fyrir tilviljun. 31.8.2004 00:01
Strokufangi gaf sig fram Fangi sem strauk af Litla Hrauni í gærkvöld hringdi í morgun í Fangelsismálastofnun og skilaði sér skömmu síðar í Hegningarhúsið. Deildarstjóri Fangelsismálastofnunar segir of snemmt að segja til um hvort öryggisreglur fangelsins verði hertar, en bendir á að afar fátítt sé að fangar strjúki úr fangelsum á Íslandi. 31.8.2004 00:01
Bush og Kerry hnífjafnir Bush Bandaríkjaforseti hefur étið upp forskotið sem John Kerry var með í skoðanakönnunum. Fylgi frambjóðendanna tveggja er nú hnífjafnt. Fram eftir sumri naut John Kerry forskots á Bush í könnunum, bæði hvað almennar vinsældir snerti og svo í nokkrum lykilmálaflokkum. 31.8.2004 00:01
Ræða hringamyndun í atvinnulífi Viðskiptaráðherra mun boða fréttamenn á fund síðar í dag til að ræða skýrslu nefndar um hringamyndum í atvinnulífinu. Skýrslan sem er 150 blaðsíður að lengd var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun 31.8.2004 00:01
Leiðin inn í Þórsmörk lokuð Leiðin inn í Þórsmörk er lokuð með öllu vegna gífurlegra vatnavaxta. Lögreglan á Hvolsvelli ráðleggur fólki að leggja alls ekki leið sína inn í mörkina. Starfsmenn sem vinna í Þórsmörk fóru inneftir í morgun á stórum trukk en hann flaut upp strax í fyrstu ánni. 31.8.2004 00:01
Lífkenni í íslensk vegabréf Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp til að gera tillögur að innleiðingu lífkenna í íslensk vegabréf í samræmi við alþjóðlegar kröfur. Jafnframt er starfshópnum falið að semja tillögur um útgáfu kennivottorða fyrir íslenska ríkisborgara, sem jafnframt gætu nýst sem ferðaskilríki áSchengen svæðinu. 31.8.2004 00:01
Bænastund fyrir Pétur Bænastund verður haldin í kvöld, til að biðja fyrir Pétri Kristjánssyni söngvara sem háir baráttu upp á líf og dauða á sjúkrahúsi eftir hjartaáfall í síðustu viku. Bænastundin hefst klukkan 20:00 í Grafarvogskirkju. 31.8.2004 00:01
Bílsprenging í Moskvu Átta fórust og margir eru sárir eftir að öflug bílsprengja sprakk við neðanjarðarlestarstöð í Moskvu síðdegis. 31.8.2004 00:01
Bush lofsamaður á flokksþingi George Bush er sterk hetja sem sýndi hryðjuverkamönnum í tvo heimana. Þetta voru skilaboðin sem ræðumenn á flokksþingi repúblíkana sendu í gærkvöldi. Aðalræðumenn kvöldsins voru þingmaðurinn John McCain og fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, Rudy Guiliani. 31.8.2004 00:01
Dorrit í Straumsvík "Ég er til í að gera hvað sem er til að aðstoða íslensk fyrirtæki sem eftir því óska", segir Dorrit Moussaief. Hún heimsótti í dag álverið í Straumsvík og sagði þar mikið um góðan kvenkost. 31.8.2004 00:01
Þjóðminjasafnið opnar á morgun Þjóðminjasafnið verður opnað á morgun, en þá verða sex ár liðin frá því að endurbætur á húsnæði safnsins hófust. Ljóst er að gera þarf ögn meira en að skúra, áður en menntamálaráðherra opnar safnið á nýjan leik á morgun því enn átti eftir að ganga frá ýmsum lausum endum þegar fréttastofu bar að garði í dag. 31.8.2004 00:01
Leita langt yfir skammt Skondnast af öllu er að nefnd um viðskiptalífið hafi sótt spillingardæmi tengd markaðsvæðingu út fyrir landsteinana, af þeim eru ærin dæmi hér," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri-grænna. 31.8.2004 00:01
Jákvætt að mörgu leyti "Mér finnst þetta að mörgu leyti jákvætt. Ég tel að það sé áhugavert að vinna að málinu á þeim nótum sem þarna er lagt upp með," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, um skýrslu nefndar sem viðskiptaráðherra um viðskiptaumhverfið. Guðjón tók þó fram að hann hefði ekki haft tök á að kynna sér skýrsluna til hlítar. 31.8.2004 00:01
Svíakonungur til Íslands Svíar vænta þess að opinber heimsókn sænsku konungshjónanna og krónprinsessunnar til Íslands í næstu viku efli bæði menningarleg og viðskiptaleg tengsl landanna. Svíakonungur, sem er mikill náttúrudýrkandi, segist vona að farið sé varlega í hvalveiðar og drottningin vill að frændþjóðirnar sameinist gegn kynferðisbrotum gegn börnum. 31.8.2004 00:01
Tólf gíslar myrtir Mikil reiði ríkir í Nepal eftir að tólf þarlendir gíslar voru myrtir af vígamönnum í Írak. Reiðin beinist hvort tveggja að morðingjunum en ekki síður að stjórnvöldum í Nepal sem þykja ekki hafa gert nóg til að tryggja lausn gíslanna. 31.8.2004 00:01
Ekkert að kosningunum "Enginn getur beitt valdi til að neyða fólk til að kjósa," sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti þegar hann varði forsetakosningarnar í Tsjetsjeníu. Gagnrýnt hefur verið að kosningarnar hafi ekki verið nægilega lýðræðislegar og að viðamikið kosningasvindl hafi átt sér stað. 31.8.2004 00:01
Reyna enn að mynda stjórn Harðlínumenn á sitt hvorum væng norður-írskra stjórnvalda hefja í dag enn eina tilraunina til að mynda starfhæfa ríkisstjórn, nokkuð sem hefur reynst þeim um megn. Viðræðurnar hefjast á sama tíma og þess er minnst að áratugur er síðan Írski lýðveldisherinn tilkynnti um vopnahlé, sem hefur reyndar ekki alltaf haldið. 31.8.2004 00:01
Demókrati í röðum repúblikana Öldungadeildarþingmaðurinn Zell Miller er ansi frábrugðinn öðrum ræðumönnum á flokksþingi repúblikana sem hafa það verkefni að sannfæra Bandaríkjamenn um að kjósa George W. Bush forseta í haust. Ástæðan er einföld. Miller er demókrati og hefur setið á þingi fyrir þá frá árinu 2000 en var um sextán ára skeið vararíkisstjóri í Georgíu. 31.8.2004 00:01
Víst má vinna baráttuna Degi eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali að líklega væri ekki hægt að vinna sigur í baráttunni gegn hryðjuverkum virtist hann kominn á öndverða skoðun. "Við hittumst á stríðstímum, þegar land okkar á í stríði sem það hóf ekki en mun fagna sigri í," sagði Bush á fundi með fyrrverandi hermönnum í Nashville. 31.8.2004 00:01
Skaði samkeppnisstöðu Nefnd ráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi leggur til að Samkeppnisstofnun fái heimild til að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir að tillögurnar muni styrkja íslenskt efnahagslíf verði þær að lögum. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
Óþarfa hávaði í stjórninni "Langmerkasta niðurstaða skýrslunnar er að það er óþarft að setja sérstök lög um hringamyndun. Það hlýtur að teljast merkilegt í ljósi þess hávaða sem hefur verið innan ríkisstjórnarflokkanna um að vondir auðhringir séu að leggja undir sig ekki aðeins fjölmiðla heldur land og miðin," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar. 31.8.2004 00:01
Uppstokkunarheimild heftir Einn nefndarmanna auk fulltrúa atvinnulífsins og Kauphallarinnar segja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja skerðast verði sett lög sem heimili Samkeppnisstofnun að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir þessar áhyggjur byggðar á misskilningi. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
Borgin úr fjarskiptarekstri Með sölu á Línu.neti lýkur umdeildum rekstri borgarfyrirtækja á fyrirtækjum í fjarskiptarekstri. Gagnaveitur verða áfram á hendi Reykjavíkurborgar. Að minnsta kosti tveir milljarðar hafa tapast í fjarskiptarekstri borgarinnar á síðustu fimm árum. 31.8.2004 00:01
Rækjuveiði lítil og kvóti verðlaus Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf., segir ekki borga sig að veiða rækjuna þegar olíulítrarnir sem þarf í veiðarnar eru fleiri en kílóin sem koma í land. Tveir þriðju rækjunnar í vinnslu fyrirtækisins eru keyptir erlendis frá. </font /></b /> 31.8.2004 00:01