Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hermönnum fækkað í Evrópu Sjötíu þúsund bandarískir hermenn verða kallaðir heim frá Evrópu á næstunni, til að taka við nýjum verkefnum í stríðinu gegn hryðjuverkum. Bush Bandaríkjaforseti mun að sögn fréttastofu Reuters greina frá þessu í dag. 16.8.2004 00:01
Björn ræddi fjölmiðla á Hólahátíð Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, gerði fjölmiðla að umtalsefni sínu á Hólahátíð í gær, þar sem hann hélt ræðu í fjarveru Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Björn sagði fjölmiðla draga stjórnmálamenn í dilka eftir því hvað þjónaði hagsmunum þeirra. 16.8.2004 00:01
16 létust í fellibyl á Flórída Í það minnsta sextán fórust þegar fellibylurinn Charley reið yfir Flórída-skaga um helgina. Fjöldi fólks hefst við úti við illan leik, enda hitinn vel yfir þrjátíu gráður og rakinn mikill. Talið er að kostnaður vegna skemmda nemi allt að ellefu milljörðum dollara, eða sem nemur 776 milljörðum króna. 16.8.2004 00:01
Fjölmiðlum skipað frá Najaf Fjölmiðlamönnum hefur verið fyrirskipað að fara frá hinni heilögu borg Najaf, þar sem bardagamenn undir stjórn Shíta klerksins Moktata al-Sadr hafa átt í bardögum við heri Bandaríkjamanna og Íraka undanfarið. 16.8.2004 00:01
Segja úrslitin fölsuð Stjórnarandstaðan í Venesúela segir úrslit forsetakosninga vera fölsuð, en greidd voru atkvæði um það, hvort reka ætti forseta landsins úr embætti. Mjög mikil þátttaka var í kosningunni og greina fréttaritarar frá allt að tveggja kílómetra löngum biðröðum við suma kjörstaði. 16.8.2004 00:01
Náttúrufræðibrautin vinsælli "Náttúrufræðibrautin er vinsælli í haust en hún hefur verið undanfarið," segir Stefán Andrésson, áfangastjóri í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Rúmlega tvö hundruð nýnemar hefja í haust nám við skólann. 16.8.2004 00:01
Geðrækt hlýtur viðurkenningu Verkefnið Geðrækt hlaut 11. ágúst síðastliðinn sérstaka útnefningu Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna (WFMH) sem fyrirmyndar-verkefni á sviði geðræktar. 16.8.2004 00:01
Fisher hyggst kvænast Bobby Fischer hefur ákveðið að kvænast japanskri vinkonu sinni. Ekki er ljóst hvort hann fær til þess leyfi, meðan hann situr í fangelsi. Bobby Ficher var handtekinn á Narita flugvelli í Tokyo, í síðasta mánuði, og hefur setið í fangelsi síðan 16.8.2004 00:01
Eftirlit með fæðingarorlofi Skattayfirvöld hafa eftirlit með því frá næstu áramótum að foreldrar vinni ekki í fæðingarorlofi sínu. Frá og með næstu áramótum mun skatturinn fylgjast vel með þeim sem eru í fæðingarorlofi. 16.8.2004 00:01
Ávinningur að skrá ekki sambúð Ávinningur fyrir par með þrjú börn af því að skrá sig ekki í sambúð gæti numið tæplega einni milljón króna á ári. Ásta Kristjánsdóttir, hjá Ríkisskattstjóra, skrifar um skattlagningu sambúðarfólks í Tíund, sem er fréttablað Skattstjórans. 16.8.2004 00:01
Frestur til andmæla rennur út Frestur landeigenda á Héraði til andmæla vegna fyrirhugaðs eignarnáms Landsvirkjunar á fimm jörðum rennur út í dag. Ágúst Sindri Óskarsson, lögfræðingur Sigurðar Arnarssonar, eins landeigendanna fimm segir að iðnaðarráðuneytinu verði send greinargerð í dag, þar sem það verður meðal annars gagnrýnt að ráðuneytið ákveði hvort eignarnámið standist, þrátt fyrir að iðnaðarráðherra sitji í stjórn Landsvirkjunar, sem fer fram á eignarnámið. 16.8.2004 00:01
Olíuverð hækkar enn Verð á olíu fór upp í 46 dollara og 91 sent fyrir fatið á olíumarkaðnum í Asíu, í nótt. Ástæðan er meðal annars ótti við stjórnmálaástandið í Venesúela, sem er fimmti stærsti olíuútflytjandi heimsins. Sérfræðingar segja þó að engin skynsamleg rök séu fyrir þessu ofurháa verði. Þeir benda á að það sé veruleg offramleiðsla á olíu, eða tæpar þrjár milljónir fata á dag. 16.8.2004 00:01
Hótanir Norðmanna hafa áhrif Íslensku skipin fimm sem voru að síldveiðum við Svalbarða héldu út af norska svæðinu í gærkvöldi. Páll Guðmundsson, útgerðarstjóri Hugins í Vestmannaeyjum, segir að hótanir Normannanna um að setja skipin á svartan lista hafi haft sitt að segja. 16.8.2004 00:01
Of stuttur fyrirvari á landsþingi Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði ætla ekki að mæta á landsþing Ungra jafnaðarmanna um næstu helgi, vegna stutts fyrirvara. Þingið verður haldið í Hveragerði um næstu helgi. Þar mun fara fram málefnustarf, lagabreytingar og kosið í stjórnir. Andrés Jónsson, núverandi formaður, er einn í framboði til formanns, og því sjálfkjörinn. 16.8.2004 00:01
Bati í rekstri Flugleiða Flugleiðasamstæðan hagnaðist um 12 milljónir króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra var rúmlega 900 milljóna tap. Þetta er í þriðja skipti frá stofnun félagsins sem hagnaður er af rekstrinum á fyrri hluta ársins, en miklar árstíðasveiflur eru jafnan í rekstrinum. Þrátt fyrir tap á fyrstu 6 mánuðum ársins í fyrra var hagnaðurinn 1,4 milljarðar. 16.8.2004 00:01
Aðeins einn umsækjandi Séra Bolli Pétur Bollason er eini umsækjandinn um embætti prests í Seljakirkju í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra sem auglýst var laust frá 1. september næstkomandi. Umsóknarfrestur rann út 11. ágúst síðastliðinn. 16.8.2004 00:01
Amazing Race á Svartsengi Nú er verið að taka upp sjöttu seríu hins heimsfræga raunveruleikaþáttar The Amazing Race á Íslandi. Serían verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 25. september næstkomandi. Það var ljósmyndari Víkurfrétta sem komst á snoðir um tökurnar við Svartsengi í gær, en í morgun þustu keppnisliðin í átt til Reykjavíkur, nema eitt lið sem villtist til Reykjanesbæjar. 16.8.2004 00:01
Tvöföldun Hallsvegar skipulagsslys Grafarvogsbúar eru margir ósáttir við tvöföldun Hallsvegar og tengingu nýs hverfis við Sundabraut um hann. Þetta þýðir 60 þúsund bíla umferð á sólarhring í gegnum skipulagt hverfi, og er skipulagsslys, segir einn íbúanna. 16.8.2004 00:01
Grilla til fyrir fanga í svelti Yfirstjórn fangelsis í Ísrael hefur ákveðið að reyna að lokka palestínska fanga úr mótmælasvelti, með því að grilla lambasteikur fyrir utan klefa þeirra. Fangarnir eru 1500 talsins, og neituðu að borða til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um betri aðbúnað. 16.8.2004 00:01
Hóta verkfalli á ferðahelgi Starfsmenn breska flugfélagsins British Airways hóta að leggja niður vinnu í sólarhring á einni mestu ferðahelgi ársins í Bretlandi í lok ágúst, og krefjast rúmlega tíu prósenta launahækkunar. Um er að ræða ríflega 3000 starfsmenn við innritun. Þeir hafa þegar hafnað einu tilboði, en búist er við að nýtt tilboð verði lagt fram fljótlega. 16.8.2004 00:01
Málverkastuldur og hundsbit Síðdegis á sunnudag var lögrelunni í Reykjavík tilkynnt um innbrot í hús á Kjalarnesi þar sem stolið var fjórum málverkum að verðmæti um 3 milljóna króna. Tvö hundsbit voru tilkynnt um helgina. Á föstudaginn var bréfberi bitinn af hundi í austurborginni og um miðjan laugardag var tilkynnt að hundur hefði bitið barn til blóðs í sama borgarhluta. 16.8.2004 00:01
Sprengingar í Nepal Nokkrar sprengingar urðu nálægt lúxúshóteli í miðborg Katmandú í Nepal í dag. Ekki er vitað um mannfall en lögreglumenn eru komnir á staðinn. Vitni telja að sprengingarnar hafi verið fjórar og urðu þær með nokkurra mínútna millibili. 16.8.2004 00:01
Tilkynnti brotthvarf hermanna George Bush, Bandaríkjaforseti, tilkynnti í dag að milli 60 og 70 þúsund bandarískir hermenn verði kallaðir heim frá Evrópu og Asíu á næstu 10 árum. Þetta er viðbót við fyrri áætlanir um brotthvarf hermanna frá Evrópu, sem meðal annars snerta Ísland. 16.8.2004 00:01
Sjö sóttu um stöðu ráðneytisstjóra Sjö sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra í Félagsmálaráðuneytinu, en umsóknarfrestur rann út þann 10. ágúst síðastliðinn. Hermann Sæmundsson var settur ráðuneytisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu þegar Berglind Ásgeirsdóttir fór í leyfi og hefur starfað sem slíkur í um tvö ár. 16.8.2004 00:01
Chavez áfram forseti Hugo Chavez, forseti Venesúela, vann afgerandi sigur í kosningum um helgina. Kosið var um vantrauststillögu á forsetann og virðist sem nálægt sextíu prósent þjóðarinnar hafi hafnað kröfu um afsögn. 16.8.2004 00:01
Mikill viðbúnaður á Menningarnótt ;Dagskráin sem haldin er undir heitinu Menningarnótt spannar allt að sólarhring, að minnsta kosti hjá lögreglunni," segir Karl Steinar Valsson hjá lögreglunni í Reykjavík. Gert er ráð fyrir miklum mannfjölda á Menningarnótt og verður umtalsverður viðbúnaður hjá lögreglunni. 16.8.2004 00:01
Ákærður fyrir manndráp af gáleysi Fjörtíu og fjögurra ára Þjóðverji hefur verið ákærður af sýslumanninum í Hafnarfirði fyrir manndráp af gáleysi og ölvun við akstur þegar hann velti bíl sem hann ók laugardaginn 24. júlí. Einn farþeganna í bílnum lést af völdum áverka sem hann hlaut í bílveltunni. 16.8.2004 00:01
Sjö vitni að barsmíðunum Sjö vitni eru að líkamsárás sem var í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst. Sá sem grunaður er um árásina er talinn hafa barið annan mann með hafnarboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega. 16.8.2004 00:01
Hafnaði uppboðskröfu "Sýslumaðurinn í Reykjavík stöðvaði uppboð jarðarinnar Brautarholts á Kjalarnesi þar sem jörðin lúti lögum um óðalsjarðir. 16.8.2004 00:01
Kapphlaupið mikla á Íslandi Keppendur raunveruleikasjónvarpsþáttarins Amazing Race komu til Íslands um helgina. Keppendurnir gistu á Svartsengi við Bláa lónið. Einn hópur var dæmdur úr leik í fyrrakvöld en hinir ellefu yfirgáfu landið með sömu flugvél laust eftir hádegi í gær. 16.8.2004 00:01
Þeir teygja sig yfir til okkar Bæjarstjórinn í Kópavogi segist aldrei hafa verið í vafa um að Vatnsendakrikar væru í landi Kópavogs og telur Gvendarbrunna á gráu svæði. Borgarlögmaður segir Kópavog nema vatn á landi sem Reykjavíkurborg hafi tekið eignarnámi fyrir 55 árum og greitt bætur fyrir. 16.8.2004 00:01
Ekki aftur til fortíðar Frekari fundahöld framsóknarkvenna um fyrirhuguð ráðherraskipti innan flokksins eru meðal þess sem rætt verður á fundi framkvæmdastjórnar Landssambands framsóknarkvenna (LFK) í dag. 16.8.2004 00:01
Má ekki gefa blóð í mánuð Til að forðast sýkingu vesturnílarveiru hefur Blóðbankinn ákveðið að fólk sem ferðast hefur til Norður-Ameríku á tímabilinu frá 1. júní til 30. nóvember ár hvert gefi ekki blóð fyrr en mánuði eftir heimkomu. 16.8.2004 00:01
Óttast stökkbreytingu á veirunni Hjá landlæknisembættinu liggur fyrir viðbúnaðaráætlun vegna fuglaflensu sem geisað hefur í Asíu. Þrír hafa látist í Víetnam á árinu eftir smit úr hænsnafuglum. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir viðbúnaðarstig sem í gildi er hér miða við að ný tegund veiru sé farin að smita menn en smitist ekki enn manna á milli. 16.8.2004 00:01
Ofurhugi í háloftunum Fyrrverandi orrustuflugmaður skelfdi gesti á loftbelgjahátíð í Bretlandi um helgina, með því að ganga á mjórri málmstöng, á milli tveggja loftbelgja, með bundið fyrir augun. Ofurhuginn heitir Mike Howard og er 38 ára gamall. Hann hefur gaman af því að vera hátt uppi, í orðsins fyllstu merkingu. 16.8.2004 00:01
Fornt stefni skips fundið Búið er að finna stefnið af breska herskipinu Mary Rose, sem sökk undan suðurströnd Englands, eftir sjóorrustu við frönsk herskip, fyrir tæpum 460 árum. Mary Rose var smíðuð á árunum 1509-1511 og þótti mikið stríðstól. 16.8.2004 00:01
Óttast ekki öryggi áhorfenda Formaður KSÍ segist engar áhyggjur hafa af öryggi gesta á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn, en þá á að slá aðsóknarmet. Íslendingar leika þá vináttulandsleik við Ítali og er búist við að allt að því 20 þúsund manns komi á völllinn. 16.8.2004 00:01
Chavez enn forseti Venesúela Hugo Chavez, virðist hafa staðið af sér atlögu þeirra sem vildu reka hann úr embætti forseta Venesúela, í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórnarandstaðan sakar hann um stórfellt kosningasvindl. Chaves er vinstri sinnaður fyrrverandi hermaður, og lítill vinur Bandaríkjanna, sem hann sendir ósjaldan tóninn. 16.8.2004 00:01
Kröfur kennara eðlilegar Laun grunnskólakennara hafa hækkað svipað og jafnvel meira en laun annarra starfshópa á síðustu árum. Þeir fara engu að síður fram á meiri hækkun en um samdist hjá félögum ASÍ í vor og er verkfall grunnskólakennara yfirvofandi í næsta mánuði takist ekki að semja. 16.8.2004 00:01
Ekki enn boðað til sumarfunda Þingflokkar stjórnarflokkanna hafa enn ekki verið boðaðir til árlegs sumarfundar, þar sem meginlínur fjárlagagerðar hafa jafnan verið kynntar. Það hefur verið fastur liður síðla sumars að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur kölluðu þingflokka sína til fundar til að undirbúa haustþing. 16.8.2004 00:01
Árásarmaður laus úr haldi Tuttugu og fimm ára maður sem er grunaður um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni með hafnaboltakylfu, í Öxnadal nýlega, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn, - þremur dögum áður en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir honum rann út. Börn mannsins sem ráðist var á, voru viðstödd þegar til átakanna kom. 16.8.2004 00:01
Milljónir horfa á Latabæ Milljónir Bandaríkjamanna horfðu á fyrsta þáttinn af Latabæ sem sendur var út í Bandaríkjunum í dag. Framleiðandi þáttanna segir þegar hafa verið rætt um framhald á þáttagerðinni. Hann segir öruggt að þættirnir verði sýndir víða um Evrópu þegar á næsta ári. 16.8.2004 00:01
80 hitamet slegin Rúmlega áttatíu hitamet voru slegin í síðustu viku á veðurathugunastöðvum Veðurstofunnar. Hitabylgjan núna var sú mesta frá því mælingar hófust og fór hitinn hæst í rúmlega 29 stig. Veðustofan fór yfir hitametin í dag, nú þegar hitabylgjan er talin vera afstaðin. 16.8.2004 00:01
500 metra frá mosku al-Sadr Bandarískir skriðdrekar eru nú aðeins 500 metra frá moskunni, þar sem múslímaklerkurinn Múktada al-Sadr, er í felum ásamt liðsmönnum sínum. Þúsundir óbreyttra borgara gætu tafið lokasóknina gegn honum. 16.8.2004 00:01
Mótmæla með auglýsingu Framsóknarkonur óttast að formaður flokksins ætli að setja Siv Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra, út úr ríkisstjórninni. Þær hafa keypt heilsíðuauglýsingu í dagblöðum á morgun þar sem skorað verður á þingflokk Framsóknar að virða lög flokksins um jafnrétti. 16.8.2004 00:01