Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 2. október 2026 19:52 Víkingur Reykjavík spilar í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Valskonur líka og það í fyrsta sinn í sögunni. Þór/KA er hins vegar ekki á förum úr Bestu deildinni. Hulda/Vísir Þór/KA bjargaði sæti sínu í Bestu deild kvenna á ævintýralegan hátt með 2-0 sigri gegn Víkingi Reykjavík á útivelli í lokaumferðinni og sendi um leið Víking Reykjavík og Val niður í Lengjudeildina. Ljóst var að sigurliðið í Fossvogi í kvöld myndi halda sæti sínu í Bestu deildinni en jafntefli og sigur Vals gegn Fram myndi þýða að bæði Víkingur og Þór/KA féllu niður í Lengjudeildina. Valskonur unnu sigur gegn Fram og á sama tíma sáu mörk frá Maríu Dögg Jóhannesdóttur og Erin Flurey til þess að Þór/KA vann 2-0 sigur gegn Víkingi og sendi bæði Víking og Val niður. Í fyrsta sinn sem Valskonur falla úr efstu deild, söguleg tíðindi. Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl frá Víkingsvelli birtast hér á Vísi seinna í kvöld. Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Þór Akureyri KA