KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2026 19:35 Arnór Ingvi í baráttunni við Valdimar Þór í leik kvöldsins Vísir/Hulda Margrét KR og ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur gerðu 1-1 jafntefli í mögnuðum leik í Bestu deildinni þar sem að dramatíkin var allsráðandi undir lokin. Ármann Ingi Finnbogason virtist hafa tryggt Víkingum dýrmætan sigur með marki úr efstu hillu í uppbótartíma en mark frá Arnóri Ingva Traustasyni á lokasekúndu leiksins tryggði KR eitt stig. Enn munar átta stigum á milli liðanna. Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl frá Meistaravöllum birtast hér á Vísi seinna í kvöld. KR Víkingur Reykjavík Besta deild karla Íslenski boltinn