Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. ágúst 2026 19:50 Natasha Anasi og stöllur hennar í Grindavík/Njarðvík hafa unnið síðustu þrjá deildarleiki sína á heimavelli. vísir/Guðmundur Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings. Þetta var þriðji heimasigur Grindavíkur/Njarðvíkur í röð og þriðji sigur liðsins á Fram í sumar. Grindavík/Njarðvík er áfram í 5. sæti deildarinnar, nú með 22 stig, fjórum stigum frá neðri hlutanum. Fram er með sextán stig í 8. sætinu, þremur stigum frá fallsæti en bara tveimur frá efri hlutanum. Nánar verður fjallað um leikinn síðar í kvöld. Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Fram