Leik lokið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 7. ágúst 2026 19:55 Emma Nicole Phillips var kona kvöldsins í uppgjöri nýliðanna en hér fagnar hún einu marka sinna. Sýn Sport Emma Nicole Phillips var kona kvöldsins í uppgjöri nýliðanna en hún skoraði fernu í einum hálfleik þegar Grindavík/Njarðvík vann 4-2 sigur á ÍBV í fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna. Allison Patricia Clark kom ÍBV yfir í upphafi leiks en Emma Nicole svaraði með fjórum mörkum á rúmlega tuttugu mínútna kafla. Grindavík/Njarðvík var því 4-1 yfir í hálfleik en varamaðurinn Ágústa María Valtýsdóttir minnkaði muninn fyrir Eyjakonur í seinni hálfleik. Grindavík/Njarðvík er nú aðeins tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í fjórða sætinu eða sæti ofar. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild kvenna ÍBV UMF Grindavík UMF Njarðvík