Upp­gjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi mið­vörðurinn hetja norðankvenna

Árni Gísli Magnússon skrifar
Hin unga Karen Hulda Hrafnsdóttir, sem er hér fremst á myndinni, skoraði mikilvægt mark í sigrinum í kvöld.
Hin unga Karen Hulda Hrafnsdóttir, sem er hér fremst á myndinni, skoraði mikilvægt mark í sigrinum í kvöld. Vísir/Diego

Þór/KA vann 2-0 sigur á Fram í fimmtándu umferð Bestu deildar kvenna með tveimur mörkum í síðari hálfleik og heldur liðið þar með áfram frábærum árangri sínum á VÍS-vellinum. Síðasta tap liðsins á heimavelli kom þann 30. maí.

Þór/KA lyfti sér upp í sjöunda sæti með sigrinum en Fram er áfram í sjötta sæti.

Fyrri hálfleikur var lítið fyrir augað og skiptust liðin nokkuð jafnt á að halda í boltann en Framkonur sáu aðeins meira af boltanum þó. Lítið var um opin færi og skot á markið voru af löngu færi og lítil hætta sem skapaðist.

Seinni hálfleikur var líflegri og kom mark strax eftir átta mínútur. Hildur Anna Birgisdóttir lyfti boltanum inn í teig þar sem Arna Sif Ásgrímsdóttir fór upp í skallaboltann í þann mund sem Ashley Orkus, markmaður Fram, var að grípa boltann. Þær lentu aðeins saman sem varð til þess að boltinn hrökk fyrir fætur Karenar Huldu Hrafnsdóttur sem tók sér ágætis tíma í að koma boltanum í markið af stuttu færi.

Framarar heimtuðu brot á Örnu Sif í aðdragandanum en ekkert var dæmt og markið stóð.

Karen er aðeins 17 ára gömul og var þetta hennar fyrsta mark í efstu deild.

Nokkrum mínútum síðar slapp Alda Ólafsdóttir ein í gegnum vörn Þór/KA og féll svo eftir að hafa farið fram hjá Alessöndru Augur markmanni. Framarar heimtuðu víti en líklega náði Alessandra að slá í boltann.

Á 67. mínútu virtist svo María Dögg Jóhannesdóttir vera að bæta við marki þegar hún skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf Hildar Önnu en rangstaða var dæmd sem var líklega á tæpasta vaði.

Fram hélt meira í boltann og sótti nokkuð stíft en Þór/KA varðist vel og beitti skyndisóknum og skilaði ein slík marki á 84. mínútu. Framarar misstu boltann eftir illa útfærða stutta hornspyrnu og Hildur Anna bar boltann upp, kom honum á Margréti Árnadóttur sem setti boltann á Erin Flurey sem fíflaði nokkra varnarmenn og kláraði vel ein gegn markmanni.

Lokatölur 2-0 fyrir Þór/KA.

Atvik leiksins

Fyrra mark leiksins sem Karen Hulda skorar. Þetta er hennar fyrsta mark í efstu deild sem er alltaf stór áfangi.

Stjörnur og skúrkar

Varnarlína Þór/KA eins og hún leggur sig var frábær. Arna Sif og Karen Hulda voru í miðvarðarstöðunum og Karen skoraði auðvitað líka. María Dögg og Angela Mary voru vel samstilltar og áttu góðan leik. Þá geta María og Angela ógnað vel fram á við líka og María var óheppin að markið hennar taldi ekki í dag.

Erin Flurey var erfið við að eiga upp á topp en hún er líkamlega sterk og heldur boltanum gríðarlega vel. Hún sýndi svo gæði sín í markinu sem hún skoraði til að klára leikinn.

Hjá Fram voru þær Una Rós Unnarsdóttir og Alda Ólafsdóttir skæðastar en þeim tókst ekki að binda endahnút á sóknirnar.

Dómarinn

Heilt yfir var Sveinn Arnar með fín tök á leiknum en það voru nokkur atriði sem má deila um. Ég fullyrði að margir dómarar hefðu dæmt aukaspyrnu á Örnu Sif þegar hún fer í skallaboltann um leið og Ashley markmaður Fram reynir að grípa hann og Þór/KA skorar í framhaldinu en þar með sagt hefði ekki endilega verið réttur dómur að flauta. Hversu heilagur er markmaðurinn í teignum? Má útileikmaður ekki hoppa upp í skallaboltann? Þetta eru spurningar sem erfitt er að svara en líklega er erfitt að svara.

María Dögg skorar mark með skalla eftir fyrirgjöf en er dæmd rangstæð sem virkaði mjög tæpt en ekki er hægt að sjá það með vissu í sjónvarpsútsendingu og treystum við á að Ágúst Örn á línunni hafi verið með það rétt.

Í lok leiks kemur fyrirgjöf fyrir mark Þór/KA og Angela Mary Helgadóttir leggur boltann í fyrsta á lofti til baka á markmann sinn og eflaust hægt að túlka það sem sendingu og þar með óbeina aukaspyrnu.

Enginn dómari – enginn leikur sagði einhver og því látum við hér við sitja.

Stemning og umgjörð

Alltof dræm mæting á leikinn en áhorfendur voru einungis 82 talsins. Veðrið gæti eitthvað spilað inn í sem er nú yfirleitt mikið betra í höfuðstað Norðurlands.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira