Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Andri Broddason skrifar 7. ágúst 2026 13:45 Það var tekið vel á móti Bartłomiej Kubkowski þegar hann kom í land þrátt fyrir að hann væri örmagna. Dziwnów Commune/Zeglarski Pólskur sundkappi varð á dögunum fyrsti maðurinn í sögunni til að synda yfir Eystrasaltið án þess að fara úr vatninu. Hann synti frá Svíþjóð til Póllands og var 56 klukkustundir að synda í sjónum.
Bartłomiej Kubkowski, pólskur sundkappi, var staddur í bænum Kåseberga í Suður-Svíþjóð þegar hann hóf að synda. Áfangastaðurinn var Dziwnów-ströndin í Póllandi en Kubkowski synti 160 kílómetra til að komast þangað. Það voru tveir bátar sem fylgdu honum á meðan hann var að synda en til að tilraunin yrði gild mátti hann ekki snerta bátana. Frá bátunum fékk hann vatn og mat til að nærast á meðan hann var í sjónum. Það var nauðsynlegt þar sem hann varði 56 klukkustundum í sjónum. Til þess að vera formlega fyrsti maðurinn til að synda óstuddur yfir Eystrasaltið þurfti hann að synda á ströndina og standa upp án aðstoðar. Það reyndist erfitt fyrir Kubowski enda var hann gjörsamlega örmagna þegar hann náði loks að komast á land og vissi varla sitt rjúkandi ráð en það hafðist að lokum. Congratulations to Bartłomiej Kubkowski who just became the first person ever to swim across the Baltic Sea between Sweden and Poland.He spent 56 hours in the water without sleeping and swam 160 km (100 miles). pic.twitter.com/DjC4RBoWoi— Visegrád 24 (@visegrad24) August 2, 2026 Þetta var fimmta tilraunin hans til að synda yfir Eystrasaltið. Síðasta tilraun hans var árið 2025 en þar missti Kubkowski meðvitund ellefu kílómetra frá pólsku ströndinni. Ástæðan fyrir sundinu var að safna peningum fyrir gott málefni. Hann var að synda fyrir góðgerðarsamtök sem aðstoða börn sem þurfa aðgerð gegn krabbameini og náði hann að safna 140 þúsund evrum eða um 20 milljónum króna.
Sund Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Sjá meira