Leik lokið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Árni Gísli Magnússon skrifar 7. ágúst 2026 19:52 Hin unga Karen Hulda Hrafnsdóttir, sem er hér fremst á myndinni, skoraði mikilvægt mark í sigrinum í kvöld. Vísir/Diego Hin unga Karen Hulda Hrafnsdóttir skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir Þór/KA í 2-0 sigri á Fram í fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Norðankonur stöðvuðu þar með fjögurra leikja sigurgöngu Framkvenna. Þór/KA er að komast í gang og fjær botninum þar sem þær dúsuðu stóran hluta sumars en þetta var fjórði sigur liðsins í síðustu sex leikjum. Karen Hulda, sem er aðeins sautján ára gömul, hefur komið sterk inn í miðvörðinn og er nú farin að skora mörk eins og lærimóðirin við hlið hennar, Arna Sif Ásgrímsdóttir, var líka þekkt fyrir. Arna Sif átti þátt í markinu sem kom eftir aukaspyrnu og í upphafi seinni hálfleiks. Erin Flurey innsiglaði síðan sigurinn eftir einstaklingsframtak undir lok leiksins. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Fram