Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júlí 2026 18:50 Natasha Anasi skoraði þriðja mark Grindavíkur/Njarðvíkur gegn Fram. vísir/guðmundur Grindavík/Njarðvík er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna eftir 0-3 sigur á Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Grindavík/Njarðvík kemst í bikarúrslit en þar mætir liðið Þrótti 12. september næstkomandi. Hannah McLaughlin og Ellie Coffield skoruðu fyrstu tvö mörk Grindavíkur/Njarðvíkur með skotum rétt fyrir utan vítateig og Natasha Anasi gerði svo þriðja markið með skalla eftir hornspyrnu. Nánar verður fjallað um leikinn síðar í kvöld. Fram UMF Grindavík UMF Njarðvík Mjólkurbikar kvenna Besta deild kvenna