Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Hjörvar Ólafsson skrifar 3. maí 2026 19:48 Valdimar Þór Ingimundarson skoraði annað mark Víkings í leiknum suður með sjó í kvöld. Vísir/Diego Víkingur lagði Keflavík að velli með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í fimmtu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á HS Orku-vellinum í Keflavík í kvöld. Liðin skoruðu sitt hvort markið í fyrri hálfleik en bæði mörkin komu eftir hornspyrnu. Gunnar Vatnhamar skallaði boltann í netið um miðjan fyrri hálfleik eftir hornspyrnu Viktors Örlygs Andréssonar. Marin Brigic jafnaði svo metin með skoti af stuttu færi eftir rúmlega hálftíma. Muhamed Alghoul sendi boltann fyrir úr hornspynu og Brigic var réttur maður á réttum stað og skoraði. Róbert Orri Þorkelsson fór meiddur af velli hjá Víkingi í fyrri hálfleik og Oliver Ekroth leysti hann af hólmi. Ingvar Jónsson var síðan að glíma við magakveisu og fór af velli í hálfleik. Aron Snær Friðriksson fyllti skarð Ingvars á milli stanganna. Bæði lið fengu fín færi til þess að komast yfir framan af í seinni hálfleik og Keflvíkingar gerðu tvisvar sinnum tilkall til þess að fá vítaspyrnu. Annars vegar þegar Stefán Ljubicic og Gunnar Vatnhamar áttust við og svo þegar Eiður Orri Ragnarsson var tæklaður eftir að skot hans reið af. Það hefur töluvert verið rætt og ritað um þá breidd sem er í leikmannahópi Víkings og þreföld skipting Sölva Geirs Ottesen um miðjan seinni hálfleik hleypti lífi í leik Víkings. Daníel Hafsteinsson var einn af þeim sem komu inná í þeirri skiptingu og hann átti sendingu á Valdimar Þór Ingimundarson þegar Valdimar Þór kom gestunum yfir um það bil 10 mínútum fyrir leikslok. Daníel innsiglaði svo sigur Víkings í uppbótartíma leiksins. Elías Már Ómarsson lagði þá boltann til baka á Daníel sem skoraði með hnitmiðuðu skoti. Niðurstaðan 3-1 sigur Víkings sem er með 13 stig eftir fimm leiki og er tveimur stigum á eftir KR sem trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Keflavík er hins vegar með fjögur stig líkt og KA í níunda til tíunda sæti. Besta deild karla Keflavík ÍF Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn