Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn 25. apríl 2026 18:16 Jérémy Doku fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty Manchester City er komið í úrslitaleik enska bikarsins í fótbolta eftir 2-1 torsóttan sigur gegn Southampton á Wembley í dag. Það skýrist á morgun hverjum City mætir í úrslitaleiknum. Southampton komst yfir í leik dagsins með marki frá Finn Azaz á 79.mínútu. 1-0. Lítið eftir af leiknum og Manchester City að flýta sér en lærisveinar Pep Guardiola fóru þó ekki á taugum. Fjórum mínútum eftir mark Azaz hafði Jérémy Doku jafnaði metin fyrir Manchester City með marki eftir stoðsendingu frá Tijjani Reijnders. Skriðþunginn nú með Manchester City en leikmenn liðsins hömruðu járnið á meðan það var heitt. Þegar komið var fram á 87.mínútu skoraði Nico González það sem reyndist sigurmark leiksins fyrir Manchester City. Lokatölur 2-1 sigur Manchester City Lærisveinar Pep Guardiola spila því til úrslita í enska bikarnum og það ræðst á morgun hvort þeir mæti liði Chelsea eða Leeds United þar. Enski boltinn Manchester City