Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Árni Sæberg skrifar 6. mars 2026 16:30 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Lýður Valberg Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið vera til marks um uppgjöf á þeim verkefnum sem hún tók að sér eftir síðustu kosningar. Valkyrjurnar svokölluðu ætli að leita sér pólitísks skjóls í deilum um Evrópusambandið næstu mánuði.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, líst ekkert sérstaklega vel á þau áform. „Mér sýnist ríkisstjórnin vera búin að gefast upp á þeim verkefnum sem hún tók að sér eftir síðustu kosningar og þeim verkefnum sem skipta almenning verulega máli, sem eru að ná niður verðbólgu, ná niður vöxtum og svo boðuðu þau síðasta haust verðmætasköpunarhaust, sem hefur farið mjög lítið fyrir. Þannig að mér finnst uppgjöf ríkisstjórnarinnar vera algjör og einhvern veginn til þess að fela verkefnaleysi sitt, þá á núna að efna til deilna um Evrópusambandið,“ segir hún í samtali við fréttastofu. Treystir þjóðinni algjörlega Þannig ætli þær Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín og Inga Sæland að leita pólitísks skjóls í Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Forgangsröðun þeirra sé algjörlega röng. „Ég vil samt taka það fram að ég treysti þjóðinni algjörlega en ég treysti bara ekki þessari ríkisstjórn. Forsætisráðherra hefur sjálf sagt að þetta sé ekki rétti tíminn til að fara í þessa vegferð og að svona mál krefjist mjög sterks umboðs og mikillar samstöðu og ekkert af þessu á við núna. Nú hegðar ríkisstjórnin sér eins og hún hafi fengið slíkt umboð en það liggur ekkert fyrir um slíkt. Mér þykir það skjóta mjög skökku við að ríkisstjórnin ætlar núna að fara í þessa vegferð þegar það liggur fyrir, og ég leyfi mér að fullyrða, að það er ekki meirihlutastuðningur fyrir málið á Alþingi. Ég held að það hljóti að vera án fordæma að þjóðríki ætli að hefja þessa vegferð þegar meirihluti Alþingis er ekki hlynntur vegferðinni.“ Þar vísi hún til þess að það sé skýrt að Flokkur fólksins sé á móti inngöngu í Evrópusambandið. „Það hlýtur að vera eitthvað spaugilegt við það að formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, hún hefur sex sinnum lagt fram þingsályktun um að fella niður þessar aðildarviðræður sem hófust í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.“ Tímasetningin ekki í takt við hagsmuni þjóðarinnar Þá segir Guðrún mikilvægt að hafa tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst, í huga. Hún sé ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar í huga heldur ráði hentisemi ríkisstjórnarinnar för. „Það eru ekki hagsmunir þjóðarinnar að ætla að fara hér í lok sumars að greiða um þetta atkvæði þegar að þær tala mjög fyrir því að hér á að vera mjög upplýst umræða og þjóðin á að geta tekið upplýsta ákvörðun fyrir þessa atkvæðagreiðslu. En við þekkjum það öll að Ísland leggst í dvala nánast yfir sumarið þegar fólk er í fríum sínum með sína fjölskyldu og er að gera allt aðra hluti heldur en að fylgjast með pólitík.“ Lýðskrum sem hún harðneitar Ríkisstjórnin muni reyna að stilla því þannig upp að andstaða við Evrópusambandið sé andstaða við lýðræðið og það að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Því hafni hún algjörlega. „Það er lýðskrum og ég vil að þjóðin fái að segja sitt, en ég vil að þjóðin fái að segja sitt á grundvelli staðreynda og upplýstrar og vandaðrar umræðu. Ekki á grundvelli frasapólitíkur og sýndarmennsku.“ Hún hafi sérstakar áhyggjur af þessu í ljósi þess að aðeins tveir mánuðir eru til sveitarstjórnarkosninga og að fáir starfsdagar séu eftir af vorþinginu. „Ég hef heyrt í mörgu sveitarstjórnarfólki í dag sem lýsir yfir þungum áhyggjum af því að þessi kosning um að hefja aftur aðildarviðræður að Evrópusambandinu muni lita mjög kosningabaráttu við sveitarstjórnarkosningarnar og það þykir mér miður, því að það eiga að vera tvö aðskilin mál.“
Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent