Allhvöss norðvestanátt og gular viðvaranir í gildi Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2022 07:47 Gular viðvaranir eru í gildi á austanverðu landinu fram á kvöld. Veðurstofan Áfram verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert í dag, en dregur úr vindi í kvöld og nótt. Annars staðar má reikna með mun hægari breytileg átt á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á austanverðu landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning norðan- og austanlands, en að það dragi smám saman úr úrkomu þar í dag. Víða léttskýjað sunnan- og vestanlands, en sums staðar lágskýjabakkar við vesturströndina. Svalt norðaustanlands, en hlýjast á Suðausturlandi þar sem hiti getur náð tuttugu gráðum síðdegis. Gular viðvaranir tóku gildi á austanverðu landinu í gærkvöldi vegna hvassviðrisins og verða í gildi fram á kvöld. Austurland að Glettingi: 3. júlí kl. 21:30 til 4. júlí kl. 20: Hvassviðri 13-18 m/s, hvassast syðst. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Austfirðir: 3. júlí kl. 21:30 – 4. júlí kl. 19:00. Hvassviðri 13-20 m/s, hvassast syðst. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Suðausturland: Norðvestan hvassviðri. 3. júlí kl. 21:30 til 4. júlí kl. 14:00. Hvassviðri 13-20 m/s, hvassast austantil. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, einkum í Öræfum, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. „Þykknar upp á Suður- og Vesturlandi í nótt með dálítilli súld á morgun. Skýjað með köflum í öðrum landshlutum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 18 stig að deginum, hlýjast á Suðausturlandi. Síðan má búast við mildum suðvestlægum eða vestlægum áttum með dálítilli vætu í flestum landshlutum, einkum vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt en norðvestan 5-10 norðaustantil fram eftir degi. Víða bjartviðri, en skýjað og þurrt að mestu á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti 10 til 17 stig. Á miðvikudag: Suðvestlæg átt 5-10 m/s. Súld eða rigning með köflum, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Vestlæg átt 5-13 m/s og víða rigning eða súld öðru hvoru. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast suðaustanlands. Á föstudag, laugardag og sunnudag: Útlit fyrir suðvestlægar áttir. Víða dálitil væta, en úrkomuminna austantil. Hiti 10 til 15 stig.
Veður Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Sjá meira