Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning norðan- og austanlands, en að það dragi smám saman úr úrkomu þar í dag. Víða léttskýjað sunnan- og vestanlands, en sums staðar lágskýjabakkar við vesturströndina. Svalt norðaustanlands, en hlýjast á Suðausturlandi þar sem hiti getur náð tuttugu gráðum síðdegis.
Gular viðvaranir tóku gildi á austanverðu landinu í gærkvöldi vegna hvassviðrisins og verða í gildi fram á kvöld.
- Austurland að Glettingi: 3. júlí kl. 21:30 til 4. júlí kl. 20: Hvassviðri 13-18 m/s, hvassast syðst. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
- Austfirðir: 3. júlí kl. 21:30 – 4. júlí kl. 19:00. Hvassviðri 13-20 m/s, hvassast syðst. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
- Suðausturland: Norðvestan hvassviðri. 3. júlí kl. 21:30 til 4. júlí kl. 14:00. Hvassviðri 13-20 m/s, hvassast austantil. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 30 m/s, einkum í Öræfum, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
„Þykknar upp á Suður- og Vesturlandi í nótt með dálítilli súld á morgun. Skýjað með köflum í öðrum landshlutum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 18 stig að deginum, hlýjast á Suðausturlandi. Síðan má búast við mildum suðvestlægum eða vestlægum áttum með dálítilli vætu í flestum landshlutum, einkum vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt en norðvestan 5-10 norðaustantil fram eftir degi. Víða bjartviðri, en skýjað og þurrt að mestu á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti 10 til 17 stig.
Á miðvikudag: Suðvestlæg átt 5-10 m/s. Súld eða rigning með köflum, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag: Vestlæg átt 5-13 m/s og víða rigning eða súld öðru hvoru. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á föstudag, laugardag og sunnudag: Útlit fyrir suðvestlægar áttir. Víða dálitil væta, en úrkomuminna austantil. Hiti 10 til 15 stig.