Tónlist

Vel heppnað lokarennsli hjá íslenska hópnum: „Hljóðið var fullkomið“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Sigga, Elín og Beta á stóra sviðinu á æfingu.
Sigga, Elín og Beta á stóra sviðinu á æfingu. EBU

Lokarennsli Systra var að klárast og þær stóðu sig með prýði. Engin tæknivandamál í útsendingunni sem við sáum í blaðamannahöllinni. Blaðamenn klöppuðu að loknu atriði Systra.

Systur hljómuðu mjög vel á öllum sjónvarpsskjám hér í blaðamannahöllinni. Hljóðið var líka ótrúlega flott inni í keppnishöllinni sjálfri og áhrorfendur urðu ekki varir við neitt athugavert við hljóðið. Hljómsveitin fékk sérstaka auka hljóðæfingu fyrir rennslið vegna vandamálanna sem komu upp á dómararennslinu í gærkvöldi.

„Hljóðið var fullkomið og stemmningin í hópnum er virkilega góð fyrir kvöldið,“ sagði Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi hópsins við okkur rétt í þessu. 

Við ræddum við Systur á hótelinu þeirra fyrr í dag og töluðu þau meðal annars um klúðrið í hljóðinu á dómararennslinu í gær.

„Við heyrðum í röddunum okkar en við heyrðum ekki í tónlistinni sjálfri, almennilega. Hún var mjög lág. Þá panikkar maður bara, ó nei,“ sagði Sigga um það sem fór í gegnum huga hennar.

„Það er bara ákveðin martröð tónlistarmanna,“ sagði Elín.

Þær segja vera með frábæran hóp í kringum sig sem hjálpi þeim og hafi þjálfað fyrir augnablik sem þetta.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. 

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

Eurovisionvaktin: Engum hlíft á fyrra undankvöldinu

Fyrra undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×