Lífið samstarf

„Töfrakremið” sem stjörnurnar dásama loksins mætt til landsins

Elira

Kim Kardashian, Gigi Hadid, Jennifer Aniston og Victoria Beckham hætta ekki að dásama vörurnar frá Augustinus Bader.

Í 30 ár hefur Augustinus Bader, virtur stofnfrumufræðingur og prófessor í líftækni, þróað einstaka tækni og hágæðahúðvörur sem hjálpa til við að draga úr öldrun húðar, litablettum, bólum og þurrki og fá húðina til að endurnýja sig og ljóma.

Vörurnar komu á markað árið 2018 og hafa allar götur síðan verið einar af vinsælustu vörunum hjá stjörnunum en Kim Kardashian, Gigi Hadid, Jennifer Aniston og Victoria Beckham hætta ekki að dásama vörurnar. Merkið hefur unnið yfir 50 verðlaun fyrir vörur sínar og nýjasta rósin í hnappagatið bættist við þegar The Rich Cream, einstaklega áhrifaríkt rakakrem sem eykur frumuendurnýjun, var valið besta krem allra tíma af 300 sérfræðingum í faginu.

Victoria Beckham, Jennifer Aniston og Kim Kardashian nota vörurnar frá Augustinus Bader.Getty

Þessar einstöku húðvörur fást nú loksins á Íslandi en snyrtivöruverslunin Elira sem opnaði í Smáralind í lok október selur þessar undravörur. 

„Augustinus Bader merkið er á allra vörum úti í heimi og öll stærstu tímaritin fjalla um kremin, meðal annars Vogue. Fólk er einfaldlega að sjá frábæran árangur með notkun þessara vara“ segir Rakel Ósk Guðbjartsdóttir, snyrtifræðingur og eigandi Elira. Rakel segir vörurnar skila sýnilegum árangri eftir 27 daga notkun. Húðin verður heilbrigðari, stinnari og sterkari og kremin vinna á fínum línum, roða í húð og litabreytingum.

Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta mikilvæg

„Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húðvara og hvað hentar húðgerð hvers og eins. Hér í Elira vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu“ segir Rakel en meðal annarra vörumerkja sem fást í Elira eru Chanel, RMS Beauty, Evolve Organic, Comfort Zone, Mykitco og Marc Inbane.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×