Markalaust í Brighton

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ekki fjörinu fyrir að fara í Brighton í kvöld.
Ekki fjörinu fyrir að fara í Brighton í kvöld. vísir/Getty

Það var því ekki úr vegi að leiknum skyldi ljúka með markalausu jafntefli í fremur bragðdaufum leik.

Heimamenn voru líklegri og komst Leandro Trossard líklega næst því að skora þegar Belginn öflugi átti skot sem hafnaði í þverslánni.

Brighton ekki unnið neinn af síðustu átta leikjum sínum í deildinni en þrátt fyrir það situr liðið í áttunda sæti deildarinnar.

Leeds aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum og er aðeins þremur stigum frá fallsvæðinu þar sem liðið hefur tólf stig í 17.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira