Enski boltinn

Reiknar með nýjum andlitum á næstunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arteta klappar fyrir stuðningsmönnum Rangers eftir leikinn í gær.
Arteta klappar fyrir stuðningsmönnum Rangers eftir leikinn í gær. Stuart MacFarlane/Arsenal FC

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, reiknar með að fá nýja leikmenn til félagsins á næstu dögum en þetta sagði hann í samtali við heimasíðu félagsins.

Arsenal gerði í gær 2-2 jafntefli við Rangers. EFtir að hafa lent tvívegis undir þá kom Lundúnarliðið til baka og Eddie Nketiah bjargaði jafnteflinu undir lokin.

Fyrr í vikunni hafði Arsenal tapað fyrir Hibernians en stjórinn er sáttur að það hafi ekki verið nein meiðsli í fyrstu vikunni.

„Við höfum æft stíft og spilað tvo leiki. Nú förum við til Bandaríkjanna í næstu viku,“ sagði Arteta við heimasíðu félagsins. Hann á von á nýjum leikmönnum á næstunni.

„Það voru ekki nein meiðsli sem er mjög jákvætt í fyrstu vikunni. Við fáum nýja leikmenn, sem vonandi koma, svo ég er mjög jákvæður.“

Arsenal ferðast nú til Bandaríkjanna þar sem liðið tekur þátt í Florida Cup ásamt Everton, Inter Mílan og Millonarios frá Kólumbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×