Enski boltinn

McClaren ætlar að fljúga til Bandaríkjanna til að hitta Beckham

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Steve McClaren, knattspyrnustjóri enska landsliðsins, ætlar að fljúga til Bandaríkjanna á fimmtudaginn til að hitta David Beckham og meta styrkleika bandarísku deildarinnar. Beckham hefur ekki ennþá spilað í deildinni vegna meiðsla og er ekki líklegt að hann verði tilbúinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Þýskalandi í næstu viku.

„Ég veit að David hefur verið að berjast við þessi meiðsli, en ég ætla að fljúga til hans og spjalla við hann um ástand hans. Ég þarf líka að tala við þjálfarann Frank Yallop og stjórnarformanninn Alexei Lalas," sagði McClaren. „Ég verð líka að sjá leik í deildinni svo að ég geti séð styrkleika deildarinnar sjálfur. Mikið hefur verið skrifað um að deildin sé of auðveld en ég verð að sjá það sjálfur."

McClaren er einnig að undirbúa sig fyrir að skoða leikmenn fjögurra liða þegar deildin hefst um næstu helgi. Hann ætlar að skoða leikmenn West Ham, Manchester United, Tottenham og Portsmouth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×