Erlent

Íbúar þróunarlanda bjartsýnni

Íbúar Nígeríu er jákvæðir gagnvart efnahagshorfum þó svo að gríðarleg fátækt sé í landinu.
Íbúar Nígeríu er jákvæðir gagnvart efnahagshorfum þó svo að gríðarleg fátækt sé í landinu. mynd/AFP
Talsverður munur er á viðhorfum íbúa þróunarlanda og efnameiri landa til efnahagsvandamála samkvæmt könnun BBC. Könnunarfyrirtækið Globescan framkvæmdi rannsóknina fyrir BBC World Service og tók hún til alls 25 þjóða.

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að viðhorf íbúa þróunarlanda sé mun jákvæðara en efnameiri landa.

Alls tóku 25.000 manns þátt í rannsókninni.

Samkvæmt könnuninni eru íbúar Japans, Frakkalands og Bretlands afar svartsýnir á framtíðarhorfur efnahagsins. Íbúar Nígeríu eru aftur á móti mjög bjartsýnir á komandi ár en tæplega 70% Nígeríubúa telja góða tíma vera framundan. Þegnar Keníu og Egyptalands voru einnig mjög jákvæðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×