Erlent

Hertóku dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum

Frá Feneyjum
Frá Feneyjum Getty Images

Ítalskir stuðningsmenn danskra mótmælenda hafa hertekið dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum. Um 50 mótmælendur eru í byggingunni og um 50 til viðbótar utan við skrifstofuna. „Við höfum hertekið dönsku ræðisskrifstofuna til að sýna samtöðu með dönskum félögum okkar. Við mótmælum fangelsun 700 félaga okkar", sagði Luca Casarini, einn mótmælenda við Politiken.  Feneyjarlögreglan hefur sent um 50 menn á staðinn sem þó hafa enn ekki ráðist inn í húsið.

Mótmælendur krefjast fundar við danska ræðismanninn og að hann sendi dönsku ríkisstjórninni kvörtun vegna þess hve margir hafa verið handteknir.

Búið er að mála merki ræðisskrifstofunnar bleikt og skrifa 69 fyrir ofan það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×