Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-95 | Grindvíkingar með níu fingur á deildarmeistaratitlinum Siggeir Ævarsson skrifar 19. febrúar 2026 18:32 DeAndre Kane kann illa við að tapa körfuboltaleikjum og ætlaði sko alls ekki að gera það í kvöld. Vísir/Guðmundur Grindvíkingar tóku á móti ÍR-ingum í kvöld í ansi fjörugum og hröðum leik. Heimamenn mættu til leiks án Daniel Mortensen sem snéri sig á ökkla í síðasta leik og var Valur Orri því mættur í byrjunarliðið og þá snéri Ólafur Ólafsson aftur í liðið eftir meiðsli. Gestirnir fóru ágætlega af stað og leiddu í upphafi leiksins en Grindvíkingar voru fljótir að snúa leiknum við og voru tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 30-20. Í öðrum leikhluta var boðið upp á mikið þristaregn frá báðum liðum en alls voru komnir 15 þristar á tölfræðiblaðið í hálfleik. ÍR tók gott áhlaup undir lok hálfleiksins og náði að minnka muninn í tvö stig, 44-42 þar sem Grindvíkingar voru að spila illa á báðum endum vallarins. Þeir rönkuðu þó við sér í kjölfarið og leiddu með ellefu stigum í hálfleik, 61-50. Grindvíkingar voru mun betri framan af þriðja leikhluta en þristar frá Kavas héldu ÍR-ingum á lífi. Heimamenn náðu þó að ýta muninn upp í þrettán stig og þá tók Borche gott leikhlé og ÍR kláraði leikhlutann á góðu áhlaupi. Staðan 82-75 fyrir lokaátökin og leikurinn galopinn. ÍR-ingar hófu leikhlutann með látum og tveir þristar frá Hákoni í röð þýddu að munurinn var allt í einu kominn niður í eitt stig og nóg eftir af körfubolta. Í kjölfarið lauk hvíld Jeremy Pargo og Jordan Semple á bekk Grindavíkur, sennilega töluvert á undan áætlun. Eftir þetta hægðist mjög á stigaskorinu en hvorugu liðinu tókst að skora í rúmar tvær mínútur í kjölfarið. Það hentar Grindvíkingum sennilega betur að hægja aðeins á leiknum og náðu þeir að ýta muninum aftur upp í níu stig þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Reynslan reyndist Grindvíkingum dýrmæt í brakinu þar sem þeir héldu haus og mjötluðu þennan sigur með seiglunni. Lokatölur í Grindavík 100-95. Atvik leiksins Það varð áhugavert atvik í fjórða leikhluta þar sem Grindvíkingar voru að bruna í sókn en einn leikmaður ÍR lá meiddur hinumegin á vellinum. Dómarar leiksins ákváðu að stöðva leikinn þrátt fyrir að ekki væri um höfuðmeiðsl að ræða og voru Grindvíkingar vægast sagt ósáttir. Sem betur fer fyrir dómara leiksins hafði þetta atvik þó ekki úrslitaáhrif á úrslitin. Stjörnur og skúrkar DeAndre Kane mætti afar einbeittur og ákveðinn til leiks en hann lét auðvitað reka sig út úr húsi síðast þegar liðin mættust. Í viðtali eftir leik sagði hann þó að hann hefði ekki haft þá frammistöðu bakvið eyrað að þessu sinni. Kane skoraði 28 stig í kvöld og var afar skilvirkur í öllum sínum sóknaraðgerðum. Þá var Jeremy Pargo einnig mjög öflugur með 21 stig og níu stoðsendingar og Jordan Semple skoraði sömuleiðis 21 stig og tók tíu fráköst. Hjá ÍR endaði Hákon Örn stigahæstur með 24 stig, og munaði mestu um þristana fimm sem hann setti. Falko var nálægt þrefaldri tvennu, 21 stig, átta fráköst og átta stoðsendingar. Þá átti Matej Kavas mjög fínan leik, endaði með 23 stig, átta fráköst og fimm stoðsendingar. Dómararnir Það var spilað fast í kvöld en tiltölulega lítið flautað og það er alltaf best svo lengi sem það fer ekki í taugarnar á leikmönnum. Ágætlega dæmdur leikur en það voru í það minnsta tvö mjög skrítin atvik. Annars vegar það sem er nefnt hér að ofan og svo þegar Kane fiskaði villu í stöðunni 96-90. Dómarinn næst boltanum dæmdi en Simmi ætlaði augljóslega að dæma sóknarvillu. Það væri áhugavert að sjá endursýningu á þessu atviki. Stemming og umgjörð Virkilega góð mæting Grindavíkurmegin í kvöld og góð stemming í stúkunni. Það mættu aftur á móti bara um það bil 25 ÍR-ingar. Hvar eru Ghetto Hooligans eiginlega á þessum síðustu og verstu tímum? Viðtöl Fleiri viðtöl væntanleg Bónus-deild karla UMF Grindavík ÍR