Uppgjör: ÍA-Keflavík 97-96 | Skagamenn enduðu níu leikja taphrinu Sverrir Mar Smárason skrifar 19. febrúar 2026 20:55 Egor Koulechov fékk tækifæri til að vinna leikinn en klikkaði á lokaskoti leiksins. VÍSIR/VILHELM Skagamenn unnu langþráðan sigur í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í AvAir höllina á Akranesi. Leikurinn sveiflaðist fram og aftur en heimamenn unnu að lokum eins stigs sigur, 97-96. Skagamenn höfðu fyrir leikinn tapað níu deildarleikjum í röð og vildu ólmir snúa því við í leik kvöldsins. Nú var liðið loks fullskipað og allir heilir. Keflavík byrjaði fyrsta leikhlutann betur og komust fljótlega 6 stigum yfir en um miðjan leikhlutann vöknuðu Skagamenn og tóku yfir leikinn. Eftir gott áhlaup var staðan jöfn og heimamenn í góðum gír. Darryl Morsell var atkvæðamestur í upphafi og staðan eftir fyrsta leikhluta 31-27, heimamönnum í vil. Það var allt annað uppi á teningnum í 2. leikhluta. Gestirnir virtust hafa náð að slípa vörnina vel og lokuðu á sókn Skagamanna. Óskar Þór, þjálfari ÍA, fór að hreyfa bekkinn meira en lítið breyttist. Keflvíkingar tóku forystuna snemma í leikhlutanum, litu ekki um öxl og fóru með tíu stiga forskot inn í hálfleikinn, 45-55. Aftur sveiflaðist leikurinn í þriðja leikhluta. Vörn Skagamanna hertist nú og gekk Keflavík verr að skora. Ivan Gavrilovic minnti á sig í leikhlutanum fyrir ÍA og sömuleiðis Styrmir Jónasson sem setti niður þrjá stóra þrista, þar á meðal flautuþrist undir lokin til þess að minnka muninn niður í þrjú stig. Staðan eftir þriðja leikhluta var 74-77, gestunum í vil. Fjórði leikhluti varð alvöru spenna. Skagamenn tóku forystuna snemma en Keflavík var aldrei langt undan. Þegar 30 sekúndur voru eftir tóku Skagamenn leikhlé, leiddu með einu stigi, en Gavrilovic klikkaði á skotinu. Sem betur fer fyrir ÍA klikkaði Egor sömuleiðis á skotinu hinum megin og Skagamenn unnu sinn fyrsta leik síðan í lok nóvember, 97-96. Með sigrinum halda Skagamenn lífi í vonum sínum um að halda sér uppi í Bónus-deildinni en Keflavík siglir lygnan sjó með 20 stig og stefnir í úrslitakeppnina. Atvik leiksins Það er stemningsþristurinn sem Styrmir Jónasson setti niður þegar flautan gall í lok þriðja leikhluta. Það setti tóninn inn í lokakaflann fyrir ÍA. Það má líka nefna þessi tvö skot sem fyrir sigri sem klikkuðu undir lokin hvoru megin. Stjörnur og skúrkar Darryl Morsell var magnaður í liði ÍA í kvöld með 36 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar. Ivan Gavrilovic var sömuleiðis flottur með 24 stig og 7 fráköst. Í liði Keflavíkur var stigaskorun dreifð en Egor Koulechov stendur upp úr með 24 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar. Skagamenn verða að fá meira frá Ilja Dokovic. Hann endaði með 9 stig og 10 stoðsendingar en hitti aðeins úr 3 skotum af 11. Erlendur leikmaður sem líklega kostar sitt verður að gera meira. Dómararnir Vel dæmdur leikur hjá tríói kvöldsins. Umgjörð og stemning Það var minna mætt en venjulega á skaganum í kvöld en þegar leið á leikinn var það ekki að sjá. Stúkan eltir alltaf andann og baráttuna í liðinu og þegar heimamenn komust aftur yfir í 4. leikhluta varð allt vitlaust í stúkunni til enda. Það var mikill fögnuður í leikslok og þessi sigur gerði ansi mikið fyrir körfuboltasamfélagið á Akranesi. Bónus-deild karla ÍA Keflavík ÍF