Erlent

Minnst 70 fórust

Mynd/GettyImages - úr safni

Nú er ljóst að minnst sjötíu fórust í jarðskjálftunum sem riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Þetta sagði talsmaður forseta landsins á fréttamannafundi í morgun. Tveir skjálftar riðu yfir snemma í morgun, sá fyrri 6,3 á richter en sá síðari 6,0. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa Panang-héraðs, sem verst varð úti í jarðskjálftanum enda hefur héraðið mátt þola miklar hamfarir af völdum jarðskjálfta á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×